DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Emerald Queen

Prjónuð tunika úr DROPS Air með djúpri laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-1
DROPS Design: Mynstur nr ai-038
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 g nr 19, skógargrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚTAUKNING FYRIR ERMI:
Aukið er út um 1 lykkju á hvorri ermi með því að auka út samkvæmt A.2 og á undan A.3 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður sléttur svo það myndist gat.

ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN OG MIÐJU AÐ AFTAN:
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í við miðju að framan og við miðju að aftan þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri við miðju að framan/miðju að aftan og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru báðir uppslættirnir næst miðju lykkju prjónaðir slétt svo það myndist gat, tveir síðustu uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki við miðju að framan og við miðju að aftan þannig:
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við miðju að framan/miðju að aftan og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir slétt svo það myndist gat.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að gataröðin rofni þegar aukið er út fyrir ermum í 4. hverri umferð og ekki lengur í annarri hverri umferð þá er prjónað áfram í þeim umferðum sem áður voru með útaukningu þannig:
Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Á undan A.3: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið1 sinni uppá prjóninn.

LEIÐBEININGAR-2:
Ef óskað er eftir aðeins minni vídd á fram- og bakstykki er það hægt eftir skiptingu fyrir ermum, þá er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan í t.d. 8. hverri umferð (fækkið lykkjum í umferð með útaukningu):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðju lykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja), sláið 1sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (þessi úrtaka kemur til með að gefa ca 8 cm minni vídd neðst niðri á fram- og bakstykki.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 66-66-70-70-74-74 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum Air. Takið frá annan þráðinn og prjónið áfram með 1 þræði Air þannig: Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.1 (= 12 lykkjur sem auknar eru út til 18 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1 (= 12 lykkjur sem auknar eru út til 18 lykkjur), 7-7-9-9-11-11 lykkjur sléttprjón (setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum lykkjum = miðja að framan), A.1 (= 12 l sem auknar eru út til 18 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1 (= 12 lykkjur sem auknar eru til 18 lykkjur) og 7-7-9-9-11-11 l sléttprjón (setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum lykkjum = miðja að aftan) = 90-90-94-94-98-98 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 20 lykkjur), aukið út um 1 lykkju – LESIÐ ÚTAUKNING FYRIR ERMI, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir ermi, prjónið A.3 (= 20 lykkjur), prjónið 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN OG VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN, prjónið 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 20 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir ermi, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir ermi, prjónið A.3 (= 20 lykkjur), prjónið 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= miðja að aftan) og prjónið 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón = 102-102-106-106-110-110 lykkjur á prjóni.

Prjónið síðan sléttprjón í hring með A.2 og A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir ermum og útaukning við miðju að framan og við miðju að aftan þannig:

ERMI:
Aukið út í annarri hverri umferð alls 10-13-15-21-23-27 sinnum (meðtalin útaukning sem útskýrð var í fyrstu umferð), aukið nú út í 4. hverri umferð alls 11-11-11-9-9-8 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING-1.

MIÐJA AÐ FRAMAN OG MIÐJA AÐ AFTAN:
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 11-14-15-18-21-25 sinnum (meðtalin útaukning eins og útskýrt var í fyrstu umferð). Aukið nú um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 21-20-21-21-20-18 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Á eftir síðustu útaukningu á fram- og bakstykki og ermum eru 346-378-402-442-474-510 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 11 lykkjur (= að miðju á milli 2 lykkjur brugðið í A.2), setjið næstu 62-68-72-80-84-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir næstu 111-121-129-141-153-165 lykkjur á framstykki (þ.e.a.s. 11 lykkjur í A.3, 89-99-107-119-131-143 lykkjur sléttprjón, 11 lykkjur í A.2), setjið næstu 62-68-72-80-84-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið 100-110-118-130-142-154 l sem eftir eru á bakstykki eins og áður (þ.e.a.s. 11 lykkjur í A.3, 89-99-107-119-131-143 lykkjur sléttprjón). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI
= 234-254-274-298-326-354 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.4 (= 12 lykkjur), 4-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón, A.5 (= 11 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að miðjuykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að A.2, prjónið A.4 (= 12 lykkjur), 4-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón, A.5 (= 12 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT heldur útaukning við miðju að framan og við miðju að aftan áfram í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20 sinnum í hvorri hlið við miðju að framan/miðju að aftan frá prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR-2 = 314-334-354-378-406-434 lykkjur í umferð (prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru lykkjur í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 (= 12 lykkjur færri) = 302-322-342-366-394-422 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Skiptið aftur til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af (þetta er gert til að koma í veg fyrir að affellingakanturinn verði stífur).

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Setjið lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 68-74-80-88-94-102 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun (= mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað yfir tvo kaðla með því að prjóna lykkjur í hvorum kaðli slétt saman 2 og 2 (= 6 l færri) = 62-68-74-82-88-96 l. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 12-14-17-20-22-25 sinnum og í stærð S: Í 4. hverri umferð, í stærð M: Í 3. hverri umferð, í stærð L: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð, í stærð XL: Í annarri hverri umferð, í stærð XXL: Til skiptis í hverri og annarri hverri umferð og í stærð XXXL: Í hverri umferð = 38-40-40-42-44-46 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-21-20-19-17-16 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-10-10-8-11-9 l jafnt yfir = 45-50-50-50-55-55 l. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 15 cm er skipt til baka yfir á sokkaprjón 5 áður en fellt er af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið (þetta er gert til að koma í veg fyrir að affellingakanturinn verði stífur).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.03.2017
Uppskriftin hefur verið skrifuð upp á nýtt og það eru fleiri nýjar mynsturteikningar
Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2017
Mynstrið hefur verið uppfært í mynsturteikningu A.2A og A.2B sem einnig er búið að leiðrétta undir berustykki

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = prjónið 1 lykkju framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjón
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (165)

country flag THINE KRISTOFFERSEN wrote:

Takk for svar, men det er fremdeles feil i oppskriften som ligger ute på sidene deres..

17.04.2024 - 17:23

country flag Thine Kristoffersen wrote:

Hei😊Har begynt å strikke denne, og det er feil i mønsteret. Det står at det er rettet feil i mønsteret på denne, men oppskriften ligger fremdeles ute med feil. Er det mulig at dere legger ut rett oppskrift?

16.04.2024 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Thine, opskriften her på nettet blev opdateret 2017 :)

17.04.2024 - 15:36

country flag Staephanie Koot wrote:

Dit lijkt niet de oplossing te zijn: tussen A2 en A3 zitten in oplopende mate tricosteken (R)- van boven naar beneden uitlopend. Als je de extra steek (gaatje) niet na, maar voor A2 maakt en niet voor, maar na A3 krijg je aan beiden kanten symmetrische kabels met aan iedere kant een gaatje. Ik denk dat het patroon op dit punt verbeterd moet worden.

09.02.2024 - 18:37

country flag Staephanie Koot wrote:

Klopt het patroon wel mbt volgorde A2 en A3? Als ik die volgorde aanhoud, komen de gaatjes tussen de kabels ipv ernaast. Volgens mij moet eerst A3 en dan A2 gebreid worden. Of is dit op te lossen door de instructie aan te passen en voor A.2 en na A.3 te meerderen zodat de gaatjes op de juiste plek vallen? Zo niet hoor ik graag hoe ik de gaatjes aan beide kanten van de kabel krijg zoals op de foto's te zien is.

06.02.2024 - 13:55

DROPS Design answered:

Dag Staephanie,

Je breit het werk van boven naar beneden en je breit A.2 en A.3 achter elkaar zodat de gaatjes aan de buitenkant van de kabels in de raglanlijnen komen. De telpatronen lees je van onder naar boven.

07.02.2024 - 19:19

country flag Staephanie Koot wrote:

Klopt het patroon wel mbt volgorde A2 en A3? Als ik die volgorde aanhoud, komen de gaatjes tussen de kabels ipv ernaast. Volgens mij moet eerst A3 en dan A2 gebreid worden.

06.02.2024 - 10:51

country flag Anette wrote:

Hallo, ab der Teilung nach vordere und hintere Mitte . Kommt die Anweisung 11 M = bis zur Mitte zwischen 2 Linksmachen in A.2 zu stricken. Mit 11 Maschen passt das aber nicht. Somit kommt man dann auch in das Vorderteil nicht korrekt rein. Wo ist der Fehler?

26.11.2023 - 08:41

country flag Anette wrote:

Bin sehr verzweifelt. Bin sehr geübte Strickerin, aber ab der Teilung für Ärmel und Vorder-Rückenteil geht nichts mehr.

25.11.2023 - 17:18

country flag Ingrid wrote:

Als je spreekt van elke naald is dat dan heengaande en teruggaande naald? Om de twee naalden is dan heen- terug- heen en nog eens terug en dan weer meerderen?\r\nZo niet wordt het werk heel kort

08.10.2023 - 19:47

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Omdat je in de rondte breit heb je geen heengaande en teruggaande naald. Je breit de hele tijd rondjes op de goede kant. Bij het meerderen voor de raglan meerder je om de naald. Dus de ene naald wel en de andere naald niet.

Als je het werk heen en weer zou breien zou je alleen aan de goede kant meerderen en niet aan de verkeerde kant, dus ook om de naald.

15.10.2023 - 17:16

country flag Paula L Buckelew wrote:

Can this pattern or any other sweater patterns in you collection be made with straight needles? I can not use circular or double pointed needles.

28.01.2023 - 01:55

DROPS Design answered:

Dear Paula, we usually work with circular needles or double pointed needles. However, you can adapt some patterns to straight needles; here you can see how:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!

29.01.2023 - 20:48

country flag Marita wrote:

Jeg strikker og kommet til under armen. Men forstår ikke hvor jeg skal legge 8m mellom. Jeg forstår ikke hvordan mønsteret skal strikkes videre. Skal halve fletta fra foran og bak under armen bli med i armen? Det ser ikke slik ut på bilde av modellen forfra. Er det to fletter hele veien ned, med 8m rett mellom på siden. Ser ikke hvordan det skal bli.?

07.11.2022 - 17:49

DROPS Design answered:

Hei Marita. Ja, det er 2 fletter hele veien ned og 8 masker glattstrikk mellom flettene ( i str. XXL). mvh DROPS Design

14.11.2022 - 09:16