DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ocean Stripes

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með laskalínu og röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-32
DROPS Design: Mynstur nr ne-222
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 g nr 0300, beige
200-200-200-250-250-300 g nr 0206, ljós beige
200-200-200-250-250-300 g nr 8907, þoka
100-100-150-200-250-300 g nr 6220, milliblár
100-100-150-200-250-300 g nr 6314, gallabuxnablár

ATH: Ef peysan er prjónuð með einum lit þá þarf 600-650-700-800-850-950 g Nepal.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 5,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
RÖND 1: Prjónið 7 cm sléttprjón með beige.
RÖND 2: Prjónið 7 cm sléttprjón með ljós beige.
RÖND 3: Prjónið 7 cm sléttprjóni með þoka.
RÖND 4: Prjónið 7 cm sléttprjón með milliblár.
RÖND 5: Prjónið 7 cm sléttprjón með gallabuxnablár.
Endurtakið rönd 1-5 til loka.

LASKALÍNA:
Aukið er út alveg eins á ermum og á fram- og bakstykki. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar aukið er út í hverri umf er uppslátturinn prjónaður þannig: Prjónið annan hvern uppslátt snúinn slétt, þ.e.a.s. 1. uppslátturinn er prjónaður slétt (það á að myndast gat), 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (það á ekki að myndast gat). Þ.e.a.s. annar hver uppslátturinn verður með gati og annar hver uppsláttur er prjónaður snúinn. Þegar aukið er út í annarri hverri umf eru allir uppslættirnir prjónaðir slétt (það eiga að myndast göt).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út með því að slá 1 sinnni uppá prjóninn hvoru megin við 2. og 5. prjónamerki þannig:
Aukið út í hverri umf alls 16-18-20-24-28-32 sinnum.
Aukið út í annarri hverri umf alls 11-12-12-12-12-12 sinnum (= alls 27-30-32-36-40-44 sinnum).
ERMI:
Aukið út með því að slá 1sinni uppá prjóninn á eftir 3. og 6. prjónamerki og á undan 4. og 1. prjónamerki þannig:
Aukið út í hverri umf alls 0-0-2-2-0-0 sinnum.
Aukið út í annarri hverri umf alls 17-21-21-23-24-26 sinnum.
Aukið út í 4. hverri umf alls 1-0-0-0-1-1 sinni (= alls 18-21-23-25-25-27 sinnum).

ÚRTAKA:
Fækkið l þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).

AFFELLING:
Ef affellingarkanturinn er of stífur þá er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring með RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-74-78-82 l á hringprjóna nr 5,5 með litnum beige DROPS Nepal.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 24-24-28-32-32-36 l jafnt yfir í síðustu umf með sl = 86-90-98-106-110-118 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6.

Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki þannig (2. og 5. prjónamerki er sett í l, hin eru sett í stykkið) þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf, prjónið 17-18-20-22-23-25 l, setjið 2. prjónamerki í næstu l (= miðja að aftan), prjónið 17-18-20-22-23-25 l (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki, prjónið 8 l, setjið 4. prjónamerki (= ermi), prjónið 17-18-20-22-23-25 l, setjið 5. prjónamerki í næstu l (= miðja að framan), prjónið 17-18-20-22-23-25 l (= framstykki), setjið 6. prjónamerki, prjónið síðustu 8 l (= ermi). Aukið út fyrir LASKALÍNA- sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 44-50-54-58-58-62 l á hvorri ermi og
89-97-105-117-127-139 l á bakstykki og framstykki (þ.e.a.s. 44-48-52-58-63-69 l hvoru megin við l með prjónamerki) = alls 266-294-318-350-370-402 l.

Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 44-48-52-58-63-69 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með 2. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn 44-48-52-58-63-69 l, setjið næstu 44-50-54-58-58-62 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið 44-48-52-58-63-69 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með 5. prjónamerki (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 44-48-52-58-63-69 l, setjið næstu 44-50-54-58-58-62 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja) = 194-210-230-254-278-302 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (umf með uppslætti og úrtöku): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í við miðju að framan og við miðju að aftan (= 4 l fleiri) og fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA, (= 4 l færri, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami).
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (umf með uppslætti og úrtöku): Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (umf með uppslætti): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í fyrir miðju að framan og við miðju að aftan (= 4 l fleiri).
UMFERÐ 7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (umf með uppslætti): Prjónið eins og um 6 = 4 l fleiri.

Endurtakið UMFERÐ 1-8 þar til stykkið mælist 35 cm frá prjónamerki (eða prjónið áfram að óskaðri lengd) = ca 64-68-73-79-85-91 l hvoru megin við l með prjónamerki = ca 258-274-294-318-342-366 l alls. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið laust af – LESIÐ AFFELLING!

ERMI:
= 44-50-54-58-58-62 l. Ermin er prjónuð í sléttprjóni með röndum eins og áður. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 6 og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 l undir ermi = 50-56-62-66-68-72 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Fækkið l með ca 4-3½-2½-2-2-2 cm millibili alls 9-11-14-15-15-16 sinnum = 32-34-34-36-38-40 l. Þegar ermin mælist 44-43-42-41-40-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermi.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Johnny wrote:

Jeg synes jeres opskrifter er svære at forstå, fordi I vælger at henvise til noget som står længere oppe. kan I ikke bare fortælle nede i opskriften, at når du kommer til den markør så gør du det og når du når til mærke 2 så gør du det osv. I stedet for at begynde at forklare et andet sted, at efter mærke den og den skal du udtage før og efter mærke den og den skal du udtage efter. Hold jer nu til opskriften og forklar tydeligt nede i den, i stedet for alle de der forklaringer.

07.04.2024 - 01:27

country flag Carol wrote:

Har jag förstått rätt? När man stickar raglan så ökar man totalt 8 m/varv de första 2 v & sedan vartannat v 4 m & vartannat 8 osv. När jag stickar omslagen på ärmarna så blir hålen närmre halsen på 3 & 6 markören om jag ska vrida vartannat omslag när det ökas varje varv.

19.01.2024 - 18:52

DROPS Design answered:

Hei Carol. Se vårt tidligere svar til deg under. mvh DROPS Design

22.01.2024 - 14:10

country flag Carol wrote:

Har jag förstått rätt? När man stickar raglan så ökar man totalt 8 m/varv de första 2 v & sedan vartannat v 4 m & vartannat 8 osv. När jag stickar omslagen på ärmarna så blir hålen närmre halsen på 3 & 6 markören om jag ska vrida vartannat omslag när det ökas varje varv. Fel antar jag. Undrar även över: när man ökar på alla varv stickas alla omslag räta? Det gäller även på fram/bakstycket? Blir inte hålen olika då mot när man ökar vartannat varv?

19.01.2024 - 11:27

DROPS Design answered:

Hei Carol. Det kommer an på hvilken str. du strikker. Du øker 4 masker på ermene og 4 masker foran/bak = 8 økte masker på de omgangen det økes ved hvert merke. Det økes med 1 kast etter 3. og 6.merke og før 4. og 1.merke, da skal da bli likt på begge sider av halsen. Når det økes på hver omgang strikkes kastene på 1. omgang rett = skal bli hull, men neste omgang / 2. omgang strikkes kastene vridd rett = ikke hull. mvh DROPS Design

22.01.2024 - 11:45

country flag Brunni Sahl wrote:

Zusatz zur 1.Frage es wird in jeder Runde zugenommen in der Mitte und es sind doch Löcher abgestrickt in der Mitte,kann doch nicht sein das bei dem 2.Markierer einmal rechts und einmal verschränkt gestrickt wird.

11.11.2023 - 09:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sahl, es soll Löcher in jeder 2. Runde entstehen, so wenn man in jeder Runde zunimmt wird man abwechslungsweise die Umschläge rechts und rechts verschränkt stricken. Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 07:30

country flag Brunni Sahl wrote:

Hallo habe eine Frage zu den Umschlägen abstricken..Wenn in jeder Reihe zugenommen wird, den 1., 3.,5. Umschlag rechts stricken und jeden 2.,4.,6., Umschlag re verschränkt stricken?? Ist das richtig?

11.11.2023 - 09:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sahl, wenn man in jeder Runde zunimmt dann wird 1 Umschlag verschränkt und der 2. Umschlag "normal" gestrickt - siehe Beschreibung under RAGLANZUNAHMEN". Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 07:29

country flag Monica Peyronnet wrote:

There is an error in the second paragraph of the yoke section …if you work 22 sts + 22 + 8 + 22 + 22 + 8 thé total is 104 and NOT 106

19.01.2023 - 15:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Peryonnet, the number of stitches is right, please note that the markers on mid back and on mid front should be inserted in one stitch and not between stitches, so that you will have (4th size): 22 + 1 + 22 (back piece)+ 8 (sleeve) + 22 + 1 + 22 (front piece) + 8 (sleeve = 22+1+22+8+22+1+22+8= 106 sts. Happy knitting!

19.01.2023 - 18:59

country flag Monica Peyronnet wrote:

Am having a lot of trouble doing a yo on either side of the marker middle front and back (which equals basically a double yo) on every row of the yoke because it means I have to do a yo in the yo of the previous row. Obviously if the row after the yo row was knitted (as for the yo of the sleeves which are only done on every other row) I wouldn’t have any problems. How should the increases take place on either side of the mid front and back markers? Help ! I have already undone 3 times!!

19.01.2023 - 15:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Peyronnet, on mid front and mid back, you will not work a double yarn over but 1 yarn over on each side of the stitch with the marker on mid front + on mid back: YO, mid-stitch with marker, YO - on next round you will knit the yarn over twisted to avoid holes. You will increase the number of stitches before the marker on mid front/back + the number of sts after the marker on mid front/back. Hope it can help. Happy knitting!

19.01.2023 - 18:43

country flag Jenny wrote:

I’m not seeing finished measurements for chest size. When looking at the diagram it appears the measurements are for under the arm. Is this actually the chest size?

10.01.2022 - 19:32

DROPS Design answered:

Dear Jenny, the measurements for the chest are the first line after the underarm. It ranges from 42 to 66 cm. Happy knitting!

10.01.2022 - 20:40

country flag Lorena wrote:

Ho un dubbio quando dice che si deve aumentare per il raglan ad ogni giro cosa faccio un giro faccio la gettata e il giro dopo lavoro la maglia gettata oppure devo lavorare la maglia gettata e fare contemporaneamente un’altra gettata ? E quando è ogni 2 giri? Grazie

12.07.2021 - 00:30

DROPS Design answered:

Buonasera Lorena, quando si aumenta su tutti i giri deve lavorare come indicato su tutti i giri. Ogni 2 giri si intende 1 giro si e 1 no. Buon lavoro!

14.07.2021 - 18:20

country flag Christine wrote:

I also am confused after placing markers. I do not see instructions as to how many times to increase every round and how many times to increase every other rounds for the raglan.

23.01.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dear Christine, you then increase for raglan as explained under RAGLAN at the very beginning of the pattern. You will incrase with/without yarn overs and on a different rythm on body and sleeve. Happy knitting!

25.01.2021 - 08:55