Mette skrifaði:
Str.M, og skal til på A5, som starter m. 13m på 1ste omg. og resten er 14m. Også A7, starter m. 8m og ender med 9m. Virker som man skal øke på denne 1ste omg.? Ellers har jeg gjort feil, da jeg har 342m på pinnen, mens det står det skal være 350. Virker jo mest som det skal være en øke omg. til? Og jeg har 71m på ermet, som det jo står jeg skal ha lengre nede i oppskr. Men det står også at jeg skal str. 1 m og sette de resterende 71 på hj.tråd?
12.08.2026 - 22:31DROPS Design svaraði:
Hei Mette. Man starter med 150 masker etter halskanten og man skal øke til raglan på hver 2. omgang 25 ganger. Man øker 8 masker på hver økeomgang = 25 x 8 = 200 økte masker + 150 som man startet med = 350 masker. Har du kun 342 mangler du 1 økeomgang. For å få en bedre passform ved delingen, vil noen av de økte maskene på ermet "gå over" til bolen når man deler arbeidet. Har man riktig maskeantall og følger maskeantallet ved delingen, skal det være riktig. mvh DROPS Design
17.08.2026 - 09:53
Carol M skrifaði:
Yoke instructions are to count 23 stitches for sleeve then place marker thread. Instructions then say to work A1 over the 21 stitches = sleeve. I’m confused, what do I do with the remaining 2 stitches on each sleeve? Thanks for any help.
19.07.2026 - 15:33DROPS Design svaraði:
Dear Carol, there are 2 sts for the raglan with a marker in between, so that you will have: marker, K1 (raglan) - increase when explained - 21 sts sleeve - increase when explained - K1 (raglan), marker, etc. Happy knitting!
11.08.2026 - 11:01
Eslan Mireille skrifaði:
Y a t-il une vidéo pour le modèle Rivage Top Merci d'avance
08.07.2026 - 20:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Eslan, il n'existe pas de vidéo particulière pour ce modèle, vous retrouverez sous l'onglet "Vidéos" certaines techniques utilisées dans ce modèle et sous l'onglet "Leçons" différentes pages pour vous aider; si besoin, n'hésitez pas à poser votre ou vos questions ici même pour que nous puissions vous aider. Bon tricot!
09.07.2026 - 09:22
Karin skrifaði:
Hallöchen, verstehe ich das richtig… ich muss die Diagramme wie folgt stricken: A1 dann A2 usw von unten nach oben gelesen?
30.06.2026 - 19:52DROPS Design svaraði:
Liebe Karin, die Diagramme lesen Sie von unten nach oben; zuerst stricken Sie A.1 dann wenn A.1 fertig ist stricken Sie: A.2 (am Anfang A.1), dann wird man A.3 wiederholen und das Lochmuster mit A.4 enden (am Ende A.1).Hier lesen Sie noch mehr über Diagramme. Viel Spaß beim Stricken!
01.07.2026 - 07:38
Sara Grønfeldt Jensen skrifaði:
Hvordan ved jeg hvilken størrelse jeg skal strikke. Jeg måler 90-92 om brystet
27.06.2026 - 13:37DROPS Design svaraði:
Hei Sara, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. God sommer!
29.06.2026 - 05:07
Eva skrifaði:
Jag har kommit till varv 15 i A5. Stickar storlek XL. Ska jag nu fortsätta öka till raglan på fram- och bakstycket? Om inte - hur gör jag då i början och slutet på fram- och bakstycke?
16.05.2026 - 21:59DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Det skal økes til raglan på hver 2.omgang til det er økt totalt 31 ganger ved hver merketråd (inkludert økningen forklart på første omgang). De nye maskene strikkes i glattstrikk på for- og bakstykket og i hullmønster slik diagrammene viser på ermene. mvh DROPS Design
18.05.2026 - 11:17
Astrid skrifaði:
Ich bin beim Stricken bei A5 bis A7 beim Ärmel am Zunahmestopp angekommen. Nehme ich gar nicht mehr an der Raglanlinie zu, auch nicht am Vorder- und Rückteil?
28.04.2026 - 19:33DROPS Design svaraði:
Liebe Astrid, in A.5 und A.7 wird man je nach der Größe zuerst immer noch zunehmen aber dann in den letzten Reihen nicht mehr, gleichzeitig nehmen Sie beim Vorder- und Rückenteil wie zuvor, bis die Zunahmen in Ihre Größe fertig sind - wenn Sie die letzten Reihen A.5/A.7 stricken (ohne Zunahmen) sollten die Zunahmen in Ihrer Größe auch fertig sein. Viel Spaß beim Stricken!
29.04.2026 - 08:17
Françoise skrifaði:
Bonjour, avec quelle taille d'aiguilles doit on tricoter l'échantillon?
11.04.2026 - 12:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, on tricote l'échantillon ici avec les aiguilles 3. Bon tricot!
13.04.2026 - 08:52
Athanasia skrifaði:
Hallo, ich möchte die Größe L stricken, und finde für den Teil der Ärmel nur die Tabellen A.5 und dann A.7, während Tabelle A.6 nur für die anderen Größen vorgesehen ist. Gehe ich also für Größe L von A.5 gleich zu A.7 über?
05.03.2026 - 18:27DROPS Design svaraði:
Liebe Athanasia, in L stricken Sie nicht A.6 sondern A.3, siehe Absatz LOCHMUSTER ÄRMEL:... GRÖSSE L und XL:... Wenn A.2 bis A.4 1 x in der Höhe gestrickt wurden, die nächste Runde wie folgt über die Ärmelmaschen stricken: A.5 (= 13 Maschen), A.3 über die nächsten 48 Maschen (= 4 Rapporte à 12 Maschen), enden mit A.7 (= 8 Maschen). . Vile Spaß beim Stricken!
06.03.2026 - 07:27
Minu skrifaði:
In dem Rapport von A5-A7 Größe L nach Beendigung der Raglanzunahmen sind es 83 Maschen . Ich habe aber 85 Maschen , wie stricke ich die Ärmel Lochmuster, was mache Ich mit diese 2 Maschen?
11.02.2026 - 11:32
Rivage Top#rivagetop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður toppur með laskaínu úr DROPS Safran eða DROPS Magic. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-23 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir merki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan merki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert merki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við merki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta að ermum. Fram- og bakstykki halda áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-138-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 126-150-150-170-170-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúin slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 merki í byrjun á umferð, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki á undan næstu lykkju. Nú eru 40-52-52-62-62-72 lykkjur á eftir síðasta merki á bakstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir merki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merki, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merki í byrjun á umferð (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan merki. Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og A.1 á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert merki (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan: GATAMYNSTUR ERMI: STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu er lokið eru 326-350-398-418-466-486 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-1-2-0-4-3 lykkjur slétt, setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 98-104-118-124-144-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 94-103-116-124-140-149 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Takið frá öll merki í stykkinu og klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og kanta á ermum til loka hvert stykki fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-252-268-308-328 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið merkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað merkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 232-244-272-288-328-348 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingunni (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-60-68-72-80-84 lykkjur jafnt yfir = 288-304-340-360-408-432 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjónað er síðar dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMUM: Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivagetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.