DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rivage Top

Prjónaður toppur með laskaínu úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-23
DROPS Design: Mynstur e-294
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 g litur 50, mynta

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt.
Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta að ermum. Fram- og bakstykki halda áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-124-128-132-138-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 126-150-150-170-170-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúin slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 40-52-52-62-62-72 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan prjónamerki.
Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og A.1 á ermum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert prjónamerki (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan:
GATAMYNSTUR ERMI:
STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er næsta umferð prjónuð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu er lokið eru 326-350-398-418-466-486 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 4-1-2-0-4-3 lykkjur slétt, setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 98-104-118-124-144-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 94-103-116-124-140-149 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu og klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og kanta á ermum til loka hvert stykki fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-224-252-268-308-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 232-244-272-288-328-348 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-60-68-72-80-84 lykkjur jafnt yfir = 288-304-340-360-408-432 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjónað er síðar dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

KANTUR Á ERMUM:
Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rivage Top

Magda, Italy

Rivage Top

Karin, Germany

Rivage Top

Emmanuelle, France

Rivage Top

Stacie Benedict, United States

Rivage Top

Ana, Spain

Rivage Top

Ana, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Susanne Hansen wrote:

Strikker str S. Hulmønster ærme: A3 strikkes over 2 rapporter. Er dette ikke kun gældende på første p, ellers kommer der da til at mangle 12 m ?

30.06.2021 - 10:52

DROPS Design answered:

Hej Susanne, yderste maske i hver side af de 23 masker indgår i raglan forklaringen. De øvrige 21 masker strikkes som første pind i A.1. På næste omgang har du fået en ny maske (fra raglanudtagningen) det er den du ser i hver side af 2.pind i A.1 (du starter diagrammet fra nederste højre hjørne) God fornøjelse!

30.06.2021 - 13:37

country flag Astrid wrote:

Hei! Strikker i str S, og ved A5-A7 skal man være ferdig med raglan. På starten og slutten av ermene er det felling og hullmønster. På bildet ser det ut som det fortsett er hullmønster på starten og slutten av bak-og forstykket også, men ser ikke noe i oppskriften om det. Skal jeg da ordne hull, også felle rett etterpå der også? Slik at det blir hullmønster på hver side av merkemaskene.

10.06.2021 - 19:35

DROPS Design answered:

Hei Astrid. Raglan: Det økes 2 masker ved hver merketråd og totalt 8 masker på omgangen. På neste omgang strikkes kastene rett slik at det blir hull = Hullmønster på hver side av "raglanlinjen", i tillegg kommer hullmønstret fra diagrammene. mvh DROPS design

14.06.2021 - 10:20

country flag Griet wrote:

Heel veel bedankt!

15.05.2021 - 21:51

country flag Griet wrote:

Sorry, maar ik begrijp nog niet goed of ik elke naald een raglanmeerdering moet maken of niet. Als ik het telpatroon bekijk is het eerst 21 st , dan 2 maal 23 st enz. Dus vermoed ik dat ik om de tweede naald pas een meerdering moet doen.

13.05.2021 - 19:45

DROPS Design answered:

Dag Griet,

Je meerdert op iedere andere naald (dus de ene naald wel en de andere naald niet) voor de raglan en dat doe je 25-25-31-31-37-37 keer in totaal.

15.05.2021 - 14:57

country flag Griet wrote:

Je moet 23 steken voor de mouw markeren en daarna over 21 steken het patroon A1 breien, dan heb je er toch 2 teveel? En het meerderen voor de raglan, is dit elke naald of telkens een naald overslaan? Alvast bedankt

10.05.2021 - 12:14

DROPS Design answered:

Dag Griet,

Je meerdert aan het begin en het einde ook voor de raglan, waardoor je die 2 steken nodig hebt. Dus 1 recht, 1 omslag (= meerdering voor de raglan), 21 steken in patroon, 1 omslag, 1 recht (= raglanmeerdering).

12.05.2021 - 20:54

country flag Connie wrote:

Når man strikker diagram A5 til A7 man skal vel ikke tage ud til raglan på for/bagstyk men kun på ærmer ik ? For hvis man skal det på for/bagstyk så får man jo flere masker end de 152 m man skal have til hvert styk, som der står i opskriften.

26.04.2021 - 21:04

DROPS Design answered:

Hej Connie, RAGLAN: Jo! Tag ud til raglan i hver overgang mellem forstykke/bagstykke og ærmer som forklaret under. Tag ud således efter mærketråden: Strik 1 ret, slå om. Tag ud således før mærketråden: Strik til der er 1 maske tilbage før mærketråden, slå om, strik 1 ret. Dvs der tages 2 masker ud ved hver mærketråd og totalt 8 masker på omgangen. På næste omgang strikkes omslagene ret så der bliver hul. Videre strikkes de nye masker i glatstrik på ryg- og forstykke og i hulmønster på ærmerne.

29.04.2021 - 15:19

country flag Claude wrote:

Bonjour, Je dois réaliser ce modèle en taille Small Votre échantillon est de 24 m x 32 rgs avec aig. 3 J'obtiens avec aig 3 : 30 m x 36 rgs Et avec aig 3,5 : 26 m x 28 rgs Quelle solution me proposez-vous pour réaliser mon pull en taille Small puisque : 1 - j'ai de toute les façons plus de mailles 2 - que je ne peux pas me rabattre sur un modèle qui serait plus petit que celui choisi Merci

12.02.2021 - 15:37

DROPS Design answered:

Bonjour Claude, si vous n'avez pas le bon échantillon, vous n'aurez pas les bonnes mesures finales - réessayez avec des aiguilles plus grosses, lavez et faites sécher votre échantillon pour vérifier les mesures - recommencez jusqu'à ce que vous ayez les bonnes mesures. Retrouvez ici plus d'infos sur l'échantillon. Bon tricot!

12.02.2021 - 16:36

country flag Eli wrote:

Stricke XL, Bei A.5 bzw. A.7 ist an den Rändern 1 Umschlag mit einer überzogenen Masche zu stricken. Hier kommt aber bei mir der Umschlag der Raglanlinie mit dem Umschlag des Musters zusammen. Ich kann also nur EINEN Umschlag machen (das bedeutet, dass ich hier eine Masche abnehme!). Wie ist das Muster zu verstehen? Danke für die Hilfe

20.08.2020 - 14:35

DROPS Design answered:

Liebe Eli, bei der 15. Reihe in A.5/A.7 haben Sie alle Zunahmen fertiggestrickt = Sie haben 31 Mal 8 Maschen pro Runde zugenommen. Ab Runde 17 in A.5/A.7 stricken Sie das Lochmuster für die Passe weiter, aber ohne zuzunehmen, dh am Anfang A.5 und am Ende A.7 stricken Sie 1 Umschlag + 1 Abnahme um das Lochmuster bei den Raglan weiterzustricken (aber ohne zuzunehmen). Viel Spaß beim stricken!

20.08.2020 - 14:47

country flag Christa wrote:

Hallo, ik heb nog een vraagje ivm dit patroon. Bij alle maten staat : verdeel nu de pas voor het lijf en de mouwen en brei de laatste naald als volgt: 4recht - 1-2-0-4-3.?? Voor de rest is alles goed doorgenomen ik kan ik beginnen met breien. Het is een mooie trui dankjewel

24.05.2020 - 14:55

DROPS Design answered:

Dag Christa,

Er stond een tekstfoutje in dat is nu gecorrigeerd naar brei 4-1-2-0-4-3 recht. Veel breiplezier!

05.06.2020 - 12:00

country flag Christa Dewilde wrote:

Hallo ik zou graag dit patroon willen maken (199-23) ik heb nog baby alpaca silk kan ik dit gebruiken? Ik heb maat xxl wat moet ik dan gebruiken voor het patroon? A1 A 2....? Dankjewel 😊

27.04.2020 - 13:08

DROPS Design answered:

Dag Christa,

Ja, BabyAlpaca Silk ik s ook geschikt voor dit patroon. We zijn benieuwd naar je resultaat :) In beschrijving staat duidelijk aangegeven welke telpatronen je wanneer moet gebruiken. Voor sommig telpatronen zijn ze per maat verschillend. De maat staat dan bij de telpatronen. Dus als je bijvoorbeeld A.5 moet breien, neem je het telpatroon A.5 waar jouw bij staat.

28.04.2020 - 20:22