DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rivage Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-21
DROPS Design: Mynstur z-855
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 7120, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-6-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5, A.6 og A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 134 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með þeim 124 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kant að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma þannig:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri á ermum.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu þegar búið er að prjóna kant í hálsmáli í garðaprjóni. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-8-8 cm millibili.
1 hnappagat = fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 130-134-138-142-148-156 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að frama í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-26-22-38-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan = 136-160-160-180-180-200 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-52-52-62-62-72 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 23 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 25-31-31-36-36-41 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 21 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki).
Haldið svona áfram með mynstur með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, sléttprjón á fram- og bakstykki og A.1 á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir laskalínu áfram í annarri hverri umferð (þ.e.a.s í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 25-25-31-31-37-37 sinnum við hvert prjónamerki (meðtaldar útaukningar sem eru útskýrðar í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og mynsturteikning sýnir á ermum.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með gatamynstur á ermum eins og útskýrt er að neðan:
GATAMYNSTUR ERMI:
STÆRÐ S og M: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan í ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ L og XL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir, skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ XXL og XXXL: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermar þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þega A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.2 (= 13 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4 (= 8 lykkjur). Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð yfir lykkjur á ermum þannig: Prjónið A.5 (= 13 lykkjur), prjónið A.6 yfir næstu 72 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.7 (= 8 lykkjur). Þegar síðasta umferðin í A.5 til A.7 er eftir, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 336-360-408-428-476-496 lykkjur í umferð. Haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er að ofan þar til síðasta umferð í A.5 til A.7 er eftir.
Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 54-57-64-67-77-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 98-104-118-124-144-152 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 65-71-81-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 54-57-64-67-77-81 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Berustykkið mælist nú ca 20-20-24-24-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt fram. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-234-262-278-318-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum.
Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 242-254-282-298-338-358 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 58-62-70-74-82-86 lykkjur jafnt yfir = 300-316-352-372-420-444 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-71-81-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-79-89-95-99-103 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið þannig: Prjónið 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.8 (= 5 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum) og endið með 4-7-6-9-5-7 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur (gatamynstrið heldur nú fallega áfram yfir ermina).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-17-19-20-21 sinnum = 51-53-55-57-59-61 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-40-37-37-35-35 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-15-17-19-17-19 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-76-76-80 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-44-41-41-39-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
Leiðrétting í mynsturteikningu A.8.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Guylaine wrote:

Je ne comprends pas le diagramme A1, les augmentations se font sur l'endroit, mais il y a deux rangs de 25 mailles, et il faut que je puisse faire mes points ajourés, est-ce possible d'avoir plus d'explications car je suis perdue? merci

30.09.2023 - 20:19

DROPS Design answered:

Bonjour Guylaine, vous augmentez sur l'endroit, par ex au 1er rang = vous avez donc: 1 jeté, les 21 m de A.1, 1 jeté, au rang suivant sur l'envers, vous avez donc 23 mailles (comme dans le diagramme), puis au rang suivant sur l'endroit, vous augmentez de nouveau, mais cette fois de part et d'autre des 23 mailles, soit: 1 jeté, 23 m, 1 jeté. Est-ce bien cette partie que vous n'aviez pas comprise? Bon tricot!

02.10.2023 - 10:08

country flag Marion Ruge wrote:

Vielen Dank für Ihre schnelle Antwort. Leider verstehe ich es noch immer nicht richtig. Laut der Anleitung wird die Passe mit der letzten Reihe von A5 - A7 abgeschlossen. Das bedeutet, ich beginne die Ärmel jeweils mit der ersten Reihe von A8 und A3. A8 geht über 5 Maschen und beginnt in Reihe 5 mit dem Lochmuster, A3 geht über 12 Maschen und beginnt ebenfalls in Reihe 5 mit dem Lochmuster. Was mache ich falsch?

04.09.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ruge, - Ihren Hinweis senden wir unser Design Team, beachten Sie nur, daß das Lochmuster von der Passe weitergestrickt wird so, daß es wie zuvor forsetzt. Die Maschen unter die Ärmel werden glatt rechts gestrickt, wenn sie nicht im Lochmuster wegen den Abnahmen gestrickt werden können. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2023 - 15:14

country flag Marion Ruge wrote:

Ich stricke die Jacke in Größe M. Für die Ärmel habe ich die erforderliche Maschenanzahl von 79 erreicht. Wenn ich nun im Muster stricke wie angegeben (7 M gl. re, A8, A3 (5×), 7 M gl. re) habe ich zwischen den Löchern aus A8 und dem ersten Mustersatz A3 keine Zwischenmaschen. Was mache ich falsch? Vielen Dank im Voraus für Ihre Hilfe

01.09.2023 - 16:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ruge, beginnen Sie A.8 mit der gleichen Reihe wie Sie A.3 weiterstricken sollen, so wird das Muster immer wie zuvor forsetzen. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2023 - 09:27

country flag Hanne Meldgaard wrote:

Er de 5 kantmasker i hver side med i de 160 maker str large

15.03.2022 - 14:06

DROPS Design answered:

Hej Hanne. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design

16.03.2022 - 09:23

country flag Lene wrote:

Hej, jeg synes at diagram A8 er ude af fase med det øvrige ærmemønster? Det lille hulmønster på pinde 5-9 i A8 kommer blot een maske fra tilsvarende hulmønster på A3. Burde det ikke være forskudt opad?

13.02.2021 - 19:42

DROPS Design answered:

Hej Lene, når du udgår fra mønsteret på ærmet som du allerede har strikket, kan det så stemme at du skal strikker A.3 i den anden side ærmet, for at det skal blive forskudt?

18.02.2021 - 09:37

country flag Nena wrote:

C’è un errore nella traduzione italiana e precisamente prima di incominciare i polsini delle maniche: ”Lavorare 1 giro diritto in cui diminuire 17-15-17-19-17-19 maglie in modo uniforme = 68-68-72-76-76-80 maglie.” La parola corretta è “aumentare” e non diminuire ;-)

29.07.2020 - 06:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Nena. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

03.08.2020 - 12:35

country flag Loredana wrote:

Buongiorno, se guardo il diagramma A3 dall'alto verso il basso la sequenza per la manica viene corretta

21.07.2020 - 10:24

country flag Loredana wrote:

Per la manica dice di lavorare 7 maglie, poi A8 ( 5 maglie) e poi A3 x 5 ripetizioni e finire con 7 maglie a maglia rasata. Ma il diagramma A8 alla quinta riga ha il motivo traforato e A3 alla quinta riga ha 2 diritti e poi il motivo traforato. Così facendo il disegno non viene troppo ravvicinato?

20.07.2020 - 21:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana. Trasmetteremo la sua segnalazione alla casa madre. Può lavorare la manica avendo attenzione ad incolonnare correttamente il motivo traforato e a mantenere le giuste distanze tra un motivo e l’altro. Buon lavoro!

21.07.2020 - 08:56

country flag Nicki wrote:

Hi again. Hope you are keeping safe and well. On the sleeves now. Size L. First row: Knit 6, A8, (A3 x 6), Knit 6. This means that the first hole is 8 st from (in front of) the marker, but 14 st from (behind) the marker. Is that right? I was expecting the holes to be in equivalent position on both sides of the marker. Thank you :-)

27.04.2020 - 16:50

DROPS Design answered:

Dear Nicky, the marker is in the middle of the new 8 sts picked up from armhole on body, the knit 6 at the beg of the row are the 4 sts on the left side of the marker (in knitting direction) + the next 2 sts and the last knit 6 at the end of the round are 2 sts + 4 of the 8 new stitches, this means you have K12 mid under arm, K6 on each side of the marker. Happy knitting!

28.04.2020 - 10:02

country flag Nicki wrote:

Thank you for your earlier reply. It will be very helpful when I reach the division for sleeve/body. My query refers to the bit after finishing the raglan increases and before completing the 3rd set of lace (size L A5, 4xA3, A7) on the sleeves in the yoke. In line 17 of 3rd set of lace (or line 65 from cuff), 31 raglan increases have made 85 stitches in the sleeve. The lace pattern diagram is only for 83 stitches and so I have 2 extra stitches. Have I done something wrong?

04.12.2019 - 23:23

DROPS Design answered:

Dear Nicky, sorry for late answer, when working the "lace pattern sleeve", you will always work K1 before/after the lace pattern, increasing first after this K1 at the beg of sleeve and before this K1 at the end of sleeve, then when all increases are done, just work: K1, A.5, A.3, A.7, K1 = 85 sts in size L. Happy knitting!

11.12.2019 - 15:57