Filiz skrifaði:
Der Häkelrand funktioniert bei mir überhaupt nicht. Entweder ich mache etwas grundlegend falsch oder es ist einfach komplett falsch beschrieben. Zusätzlich verwirrt mich das in der englischen Anleitung von treble crochet also doppelten Stäbchen und double crochet gesprochen wird, in der Deutschen Übersetzung wird aber nie von doppelten Stäbchen gesprochen. Vielleicht können Sie die Anleitung noch mal anpassen oder ein Video hochladen? Das würde mir sicherlich sehr helfen. Viele Dank
30.04.2019 - 13:13DROPS Design svaraði:
Liebe Filiz, die erste Reihe sollte wie im diesem Video gehäkelt aber nur mit 1 Lm zwischen jedem festen Maschen - dann wird die 2. Reihe mit Pikot (= wie in diesem Video) gehäkelt. Beachten Sie, daß 1 treble in Uk-Eng = 1 double crochet in US-Englishh = 1 Stäbchen). Viel Spaß beim häkeln!
30.04.2019 - 15:07
Marianne Karlsson skrifaði:
Jag undrar hur jag får moss-stickningen att stämma när jag sätter ihop benen på rundstickan? Båda benen är ju exakt lika och det blir då två lika maskor i mitten. Var är mitt fram?
22.04.2019 - 19:29
Nic skrifaði:
Hallo liebes Dropsteam! Statt 3 Krausrippen müssten es 6Reihen Perlmuster heißen an der Stelle, wo beide Beine auf eine Rundnadel genommen werden. Oder? iele Grüße!
24.03.2019 - 22:27DROPS Design svaraði:
Liebe Nic, ja genau, eine Korrektur erfolgt bald in der deutschen Anleitung. Viel Spaß beim stricken!
25.03.2019 - 12:06
Helle skrifaði:
Der skal hækles rundt i kanten. Følgende er det jeg har spørgsmål til: 4 luftmasker (ok), 1 stangmaske (ok) i 4. luftmaske fra nålen (ok), spring over 1 fastmaske (??) + 1 luftmaske (spring over? Hækle?) + 1 fastmaske, hækl 1 fastmaske om næste luftmaske(??). () er med mine kommentarer. Jeg forstår ikke hvad jeg skal efter de 4 luftmasker er fæstnet til række 1 med en stangmaske.
24.03.2019 - 14:32DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Du har heklet 1 rad, slik at du har annenhver fastmaske og luftmaske hele veien rundt. På neste rad, innenfor de to *-* skal du altså hekle 4 luftmasker og så 1 stav i den 4. luftmasken fra nålen. Nå skal du hoppe over de neste 3 maskene (1 fastmaske, 1 luftmaske og 1 fastmaske) og hekle 1 fastmaske om neste luftmasken (altså i den 4. masken) God fornøyelse
28.03.2019 - 10:23
Anita skrifaði:
Etter at bena er satt på samme pinne står det: Strikk 3 riller, frem og tilbake, med start midt foran. Hva mens med dette? Skal ikke alt strikkes i perlestrikk?
14.03.2019 - 19:26DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Det skal strikkes 6 pinner perlestrikk frem og tilbake. Oppskriften er nå rettet. Takk for beskjed, og god fornøyelse
25.03.2019 - 11:24
Wilma skrifaði:
Please explain 3 ridges in overall after legs are joined
06.03.2019 - 18:47DROPS Design svaraði:
Dear Wilma, work next row casting on 3 new sts at the end of this row, turn and work next row casting on 3 new sts at the end of this row (= there are now 6 more sts on needle). Now insert marker to mark the sides. Continue back and forth and increase on each side for the front pieces. Happy knitting!
07.03.2019 - 08:49
Baby Talk#babytalkonesie |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaður galli án ermasauma og húfa fyrir börn í perluprjóni, garðaprjóni og hekluðum kanti. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð á galla: 1 mán til 2 ára. Stærð á húfu: fyrriburar til 4 ára.
DROPS Baby 33-30 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um galla): Aukið er út innan við 1 kantlykkju. Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um galla): Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrstu eru prjónaðar 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað er áfram fram og til baka upp að ermi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki, framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Axla- og ermasaumar eru saumaðir og heklaður er kantur í kringum opið á gallanum í lokin. Allur gallinn er prjónaður í perluprjóni. SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós lavender Baby Merino. Prjónið PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (8.-8.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi (þ.e.a.s. fellið af lykkjur hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkant að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan. Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar kantlykkjur að framan í lok 2 næstu umferða (fyrir kant) = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær merkja framstykki og bakstykki. Nú eru auknar út lykkjur við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvort annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-0-3 (2-13) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-16-17 (21-15) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN JAFNFRAMT ÞVÍ SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI. FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá prjónamerki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki). HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG: HÆGRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrra prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í byrjun á umferð eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi). Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og úrtökur hafa verið gerðar eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki. Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt – þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar eins og áður fyrir hálsmáli. BAKSTYKKI: = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur. Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af við framstykkin. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan og saumið þær 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki á gallanum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar skálmar þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar ermar þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós lavender Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babytalkonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.