Emmanuelle skrifaði:
Bonjour, pour ce modèle le fil des aiguilles circulaires doivent être de 40 cm. Est-ce que cela pose un problème si celles que j'utilise font 60 cm? Merci pour votre réponse. Cordialement
17.01.2025 - 17:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Emmanuelle, on utilise une aiguille circulaire d'une circonférence inférieure à celle de l'ouvrage, donc, en fonction de la taille choisie, vous pourrez soit utiliser une aiguille circulaire de 60 cm au lieu d'une 40, soit utiliser la technique du magic loop avec une 80 cm. Bon tricot!
20.01.2025 - 07:23
Nina skrifaði:
Ich stricke diesen Pullover in Größe M. Meine Maschenprobe stimmt. Wie angegeben habe ich 88 Maschen angeschlagen. Leider ist der Halsausschnitt viel zu eng und geht nicht über den Kopf! Ich habe es bereits mit dem altnorwegischen Anschlag, der sehr elastisch ist, versucht. Passt trotzdem nicht. Auf dem Foto sieht der Ausschnitt sehr weit aus. Was kann ich tun?
26.03.2021 - 12:29DROPS Design svaraði:
Liebe Nina, versuchen Sie mit 3 oder 4 Fäden die Maschen anzuschlagen, so kann das Ihnen helfen, dann stricken Sie weiter mit nur 2 Fäden. Versuchen Sie mit grösseren Nadeln, es kann auch helfen. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2021 - 13:44
Anna skrifaði:
Hej, hvor mange nøgler bliver brugt til en stribe? jeg overvejer at strikke modellen med kun en farve pr stribe I stedet for at blande.
12.07.2019 - 21:44DROPS Design svaraði:
Hei Anna. Det har vi ikke dessverre ikke oversikt over. mvh Drops design
26.08.2019 - 10:57
Leen skrifaði:
Ik zou deze trui graag breien, maar dan in één kleur ipv strepen. Hoeveel gr heb ik dan in totaal nodig?
14.05.2019 - 11:04DROPS Design svaraði:
Dag Leen,
Het is niet precies bekend hoeveel er nodig is, maar het zijn vrij brede strepen, dus je zult ongeveer dezelfde hoeveelheid nodig hebben. Mocht je garen over houden: Meestal kun je overgebleven bollen garen terug brengen bij de winkel waar je het gekocht hebt. Vraag naar de voorwaarden bij je verkooppunt.
15.05.2019 - 08:44
Sandrine skrifaði:
Beau modèle que j'aimerais faire. La Kid-Silk coloris 30 sera t-elle disponible prochainement?
08.02.2019 - 09:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, elle devrait être disponible d'ici quelques semaines, merci. Bon tricot!
08.02.2019 - 10:04
Raun skrifaði:
Flot model. Jeg afventer også svar på, hvornår opskriften kommer?🤗
03.02.2019 - 19:19DROPS Design svaraði:
Hej Raun, Ja er den ikke flot :) den kommer her i løbet af vinteren. Følg med her: DROPS Forår & Sommer 2019
07.02.2019 - 16:07
Janine skrifaði:
Mooie kleuren en helemaal in! Ik zie graag het partoon
30.01.2019 - 07:56
Ulla skrifaði:
Er det lenge til oppskrift kommer? Gleder meg
16.01.2019 - 11:01
Bring Spring#bringspringsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum á að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju saman. RENDUR-1 (á við um berustykki og fram- og bakstykki): 10-11-12-12-12-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði ljós beige (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði gulur (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði bleikfjólublár (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublár (= 2 þræðir). Prjónið síðan með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. RENDUR-2 (á við um berustykki og ermar): Haldið áfram þar til prjónaðir hafa verið alls 12-12-12-13-13-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði ljós bleikfjólublár (= 2 þræðir) frá fyrri randar umferð á berustykki. 12-12-12-13-13-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublár (= 2 þræðir). Prjónið síðan með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-32-28-32-24-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-120-120-128-124-134 lykkjur. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur + 1 þráð ljós beige (= 2 þræðir) og prjónið næstu umferð jafnframt því sem sett eru 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 19-24-24-25-24-26 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið fyrsta prjónamerki hér, prjónið 12-12-12-14-14-15 lykkjur slétt (= ermi), setjið annað prjónamerki hér, prjónið 38-48-48-50-48-52 lykkjur slétt (= framstykki), setjið þriðja prjónamerki hér, prjónið 12-12-12-14-14-15 lykkjur (= ermi), setjið fjórða prjónamerki hér og prjónið þær 19-24-24-25-24-26 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 21-23-24-26-28-30 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 268-304-312-336-348-374 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Ef þetta mál hefur ekki verið náð, prjónið áfram án útaukninga þar til náð hefur verið réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-48-52-55-60 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-60-60-64-64-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-96-104-110-120 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-60-60-64-64-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-48-52-55-60 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-212-228-244-264 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 220-240-252-272-292-316 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-60-60-64-64-67 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkjur í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-68-70-74-76-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og RENDUR-2. Þegar stykkið mælist 40-38-38-36-34-33 cm frá skiptingu (styttra máli í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 56-64-64-72-72-80 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 28-32-32-36-36-40 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma i veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 45-43-43-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bringspringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.