Janine skrifaði:
Prachtig klassiek patroon! Waar blijft het patroon?
20.01.2019 - 19:42
April skrifaði:
Simple yet refined...please make this pattern available ASAP.
18.01.2019 - 02:26
Marnel skrifaði:
Zou deze graag willen breien
15.01.2019 - 17:01
Ynke skrifaði:
Prachtig klassiek ontwerp! Graag meer in dit genre.
14.01.2019 - 12:10
Uschi skrifaði:
Mir gefallen diese klassisch zeitlosen edlen Modelle. Bitte mehr in dieser Art.
11.01.2019 - 15:08
Dejean skrifaði:
J’aime beaucoup de pull, chic et sport.
11.01.2019 - 14:45
Ilse skrifaði:
Ein wunderschönes zeitloses Modell.
11.01.2019 - 05:28
Edith skrifaði:
Das ist mein Favorit. Sieht toll aus.
30.12.2018 - 14:47
Eileen skrifaði:
For me this is the stand-out design in the collection. I like it so much that I have already bought the yarn!
29.12.2018 - 19:10
Paula skrifaði:
Stilren och samtidigt intressant. Riktigt snygg!
21.12.2018 - 21:14
Stone Fields#stonefieldssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Vegna garðaprjóns þá kemur berustykkið til með að dragast aðeins saman á hæðina þegar það liggur flatt, takið því öll mál þegar stykkinu er haldið uppi, eða dragið létt í á meðan mælt er. Ef berustykkið er of stutt er hægt að prjóna áfram með mynstur eins og áður (án þess að auka lykkjum). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umferð er mynstrið undirbúið og aukið er út fyrir laskalínu þannig: (Byrjun á umferð er mitt að aftan). Prjónið 5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón, fyrsta umferð byrjar með brugðnum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2-2-2-2-4-4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2-2-2-2-4-4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki) fram og til baka. Prjónið 1 umferð slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn (= útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með sléttprjón/garðaprjón svona og aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 16 lykkjur garðaprjón á milli erma og fram- og bakstykkis, aukið svona út í annarri hverri umferð alls 25-27-29-32-34-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 288-308-328-356-380-400 lykkjur í umferð. Berustykki á að mælast 20-22-23-26-27-29 cm frá prjónamerki – SJÁ LEIÐBEININGAR! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-33-36-40-43-46 lykkjur sléttprjón, 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið garðaprjón yfir næstu 12-11-11-12-14-14 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 60-66-72-80-86-92 lykkjur, prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= framstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir síðustu 30-33-36-40-43-46 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-192-208-228-252-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og garðaprjóni yfir lykkjur sem eru í hlið (= þær lykkjur með garðaprjóni sem eru eftir í hvorri hlið á framstykki/bakstykki og nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið á hverri einingu í garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan eins og áður (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 2 lykkjur í miðju á hverri einingu með garðaprjóni með því að prjóna 4 miðju lykkjur saman 2 og 2 (= alls 4 lykkjur færri í umferð). Aukið út/fækkið lykkjum svona þar til einungis eru 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkinu. ATH: Lykkjufjöldinn í umferð er sá sami, en lykkjurnar í garðaprjóni kemur smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni. Haldið áfram í sléttprjón og 8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið svona þar til stykkið mælist 23-23-24-23-24-25 cm frá skiptingu (ca 48-50-52-54-56-59 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið garðaprjón í 6 cm. Fellið laust af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-65 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-66-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-74-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og garðaprjóni yfir lykkjur sem eru á botni á ermi (= þær lykkjur með garðaprjóni sem eru eftir á ermi og nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið við hverja einingu með garðaprjóni eins og áður (= alls 2 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 2 lykkjur í miðju á hverri einingu í garðaprjóni með því að prjóna 4 miðju lykkjur saman 2 og 2 (= alls 2 lykkjur færri í umferð). ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami í umferð, en lykkjur í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni. Aukið/fækkið lykkjum svona þar til ekki eru nokkrar lykkjur með garðaprjóni eftir og haldið síðan áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjurnar. Nú er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-4.-4. Hverri umferð alls 13-15-17-18-18-19 sinnum = 42-44-46-48-50-54 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 6 cm í garðaprjóni. Ermin mælist ca 43-42-41-39-38-37 cm frá skiptingu. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonefieldssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.