Ann Karin Pedersen skrifaði:
Pinne nr er kun veiledende. Får du for mange masker på 10 cm, bytt til tykkere pinner. Får du for få masker på 10 cm, bytt til tynnere pinner. Skal vel være omvendt?
12.11.2022 - 10:01
Connie skrifaði:
Skal luen sys sammen bak? Eller skal den strikkes rundt? Instruksjonvideo viser strikking frem og tilbake. Får det ikke til å fungere når jeg strikker rundt. Finnes det en video som viser hvordan man strikker luen rundt på rundpinn?
10.11.2020 - 22:32DROPS Design svaraði:
Hej. Den ska stickas runt och i denna video kan du se hur man gör för att sticka runt i helpatent med två färger. Mvh DROPS Design
11.11.2020 - 09:41
Helén skrifaði:
Hej! Skulle vilja sticka ”fram och tillbaka” dvs ej runt...finns det mönster på det sättet?
18.11.2019 - 20:20DROPS Design svaraði:
Hej Helén, i videon nedan ser du hur man kan sticka patent fram och tillbaka :)
How to work English rib with two colours from Garnstudio Drops design on Vimeo.
19.11.2019 - 13:22
Natacha Gillam skrifaði:
Bonjour et déjà merci pour tous ces modèles plus beaux les uns que les autres. ma question, votre explication pour ce modèle nous donnent des rayures horizontales mais la photo est en rayures verticales tellement plus joli. avez vous les explications pour les rayures verticales? Merci d'avance pour votre réponse. Meilleures salutations Natacha
05.12.2018 - 20:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gillam et merci. Les côtes anglaises bicolores se tricotent avec alternativement l'une et l'autre couleur, mais, en tricotant alternativement avec l'une et l'autre couleur le jeté et la m glissée (tour 2 en gris perle) et le jeté et la m glissée (tour 3 en bruyère), on va obtenir les rayures verticales. Cette vidéo montre les côtes anglaises en allers et retours mais vous permettra de visualiser comment en tricotant 1 rang de chaque couleur, on obtient des rayures verticales. Bon tricot!
06.12.2018 - 09:56
Katja Retzlaff skrifaði:
Oben beim Kragenschal steht, dass man folgendes Material braucht: 50-50-50 g Farbe 14, erika 50-50-50 g Farbe 03, perlgrau Sind es jetzt 3 Knäuel a 50 gr. oder wie verstehe ich das? LG aus Hückeswagen Katja
23.11.2018 - 11:34DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Retzlaff, es sind 50 g (= 1 Knäuel) Air je in Farbe 14 und in Farbe 03 pro Grösse (= 100 g insgesamt in jede Grösse). Viel Spaß beim stricken!
23.11.2018 - 15:06
Sanne skrifaði:
Lækker
03.07.2018 - 21:48
Wild Berry Crush#wildberrycrushset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Air í tveggja lita klukkuprjóni.
DROPS 192-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM: UMFERÐ 1: Prjónið með litnum fjólublár. Prjónið * 1 uppslátt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið með litnum perlugrár. * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 3: Prjónið með litnum fjólublár. * Prjónið uppsláttinn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð með litnum fjólublár! Prjónið að lykkju með prjónamerki, steypið uppslættinum yfir og óprjónuðu sléttu lykkjuna eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið), steypið því næst uppslættinum og óprjónuðu lykkjunni yfir (= alls 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hálsskjól): Öll útaukning er gerð í 1 umferð með fjólublár. Aukið út í sléttri lykkju þannig: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: * Prjónið uppslátt og lykkju slétt saman, en bíðið með að steypa lykkju yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkju og uppslátt slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstur, en það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningu, þannig að næsta umferð í klukkuprjóni prjónast lykkjan sem á að prjónast saman með uppslætti án uppsláttar. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HÚFA: Fitjið upp 81-84-87 lykkjur á hringprjón 6 með litnum fjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið * 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* = 54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM – sjá útskýringu að ofan = 27-28-29 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-26 cm – stillið af að endað sé eftir 2. umferð (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með fjólublár) – fækkið um 2-0-2 lykkjur þannig: STÆRÐ S/M – L/XL: Prjónið 1 lykkju klukkuprjón eins og áður (= sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða), takið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunna laust yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá, 1 lykkja brugðið) og steypið uppslættinum og óprjónuðu lykkjunni yfir, prjonið út umferðina eins og áður. ALLAR STÆRÐIR: = 52-56-56 lykkjur (= 26-28-28 lykkjur slétt). Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju klukkuprjón eins og áður, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 11-13-13 lykkjur klukkuprjón eins og áður, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju slétt, prjónið 13 lykkjur klukkuprjón eins og áður, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 11-13-13 lykkjur klukkuprjón eins og áður, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju slétt og endið með 13 lykkjur klukkuprjón eins og áður. Í næstu umferð með litnum fjólublár er fækkað um 2 lykkjur á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með litnum fjólublár) alls 5-6-6 sinnum = 12-8-8 lykkjur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 31-32-33 cm. Brjótið uppá húfuna ca 5 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 90-105-120 lykkjur á hringprjón 8 með litnum fjólublár og prjónið í hring. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið þannig: * 1 lykkja brugðin, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* = 60-70-80 lykkjur. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar hálsskjólið mælist 12 cm er aukið út um 4 lykkjur í 5. hverja lykkju slétt (þ.e.a.s. í 10. hverja lykkju) – sjá ÚTAUKNING = 84-98-112 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni í tveimur litum þar til stykkið mælist 20-21-22 cm, stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð með litnum fjólublár. Fellið af með litnum fjólublár, með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af saman með sléttri lykkju. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildberrycrushset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.