Mme PALIS skrifaði:
Bonjour. Est-il possible de faire ce modèle pour une taille 6 ans ? Je le trouve très joli et j'aimerais bien pouvoir le réaliser pour ma fille. Merci d'avance.
24.05.2019 - 19:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Palis, ce modèle est uniquement disponible en taille adulte actuellement. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, pour toute assistance complémentaire, merci de bien vouloir contacter votre magasin DROPS et/ou un forum tricot. Bon tricot!
27.05.2019 - 08:24
Tutti Kompletti skrifaði:
Sind im Diagramm nur die Hinreihen beschrieben?
01.05.2019 - 11:29DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kompletti, alle Reihen sind in den Diagrammen gezeigt - hier lesen Sie mehr über Diagram. Viel Spaß beim stricken!
02.05.2019 - 09:36
DUCHENE skrifaði:
Bonjour, je ne vois pas très bien comment se terminent les torsades sur les côtés de ce pull... Sont-elles arrêtées peu à peu au fil des diminutions sur les 4 mailles jersey en début et fin de rang ? J'ai arrêté mon travail quelques sous les bras.......en attendant votre réponse. Merci d'avance
03.03.2019 - 18:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Duchene, tout à fait, quand on diminue sur les côtés (sous les manches), on a de moins en moins de mailles pour les torsades, on tricote alors ces mailles en jersey (on ne les croise plus car on n'en a plus suffisamment). Bon tricot!
04.03.2019 - 10:59
Anne Blundell skrifaði:
I really love this pattern but do not like the v shaped hem would it be easy to finish the jumper with a straight hem?
08.02.2019 - 08:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Blundell, we are unfortunately not able to adapt every pattern to every single request, but you can take inspiration from this pattern (please note that the tension is different on this one). For any individual assistance you are welcome to request help from your DROPS store - even per mail or telephone. Happy knitting!
08.02.2019 - 09:56
Henriette Welten skrifaði:
Skal man begynne å øke samtidig som man starter å strikke A2a-A2d?
13.01.2019 - 16:34DROPS Design svaraði:
Hei Henriette. Første omgang med mønster strikker du etter diagram A.1a-A.4a, dette er også første omgang med økinger. Etter at A.1a-A.4a er strikket (2 omganger) strikker du A.1b-A.4b samtidig som du fortsetter å øke som forklart. God fornøyelse
16.01.2019 - 14:40
Karin Jensen skrifaði:
Venter på opskrift.
07.08.2018 - 08:46
Monique skrifaði:
Ein schöner Pullover mit aussergewöhnlicher Form!
13.07.2018 - 08:41
SARDA skrifaði:
Très joli et original
06.07.2018 - 09:35
Casual Diamond#casualdiamondsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-19 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Þar sem lykkjum fækkar og fjölgar í mynsturteikningu A.2b og A.3b, getur lykkjufjöldinn breyst miðað við þetta með 4 lykkjur, sérstaklega þar sem lykkjum hefur fækkað. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= alls 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður í vinkil niður að handveg. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, áður en það skiptist yfir í framstykki og bakstykki og það verður klauf í hliðum, stykkið er síðan prjónað áfram fram og til baka. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 122-126-130-146-146-154 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 20-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 142-146-150-170-170-178 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið og aukið út lykkjur þannig: Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1. merki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-6-6-8-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 2. merki í þessa lykkju. Bakstykki: Prjónið A.1a (= 11 lykkjur), A.2a (= 13 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón og setjið 3. merki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 4. merki í þessa lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 5. merki í þessa lykkju, A.3a (= 13 lykkjur), A.4a (= 11 lykkjur). Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 6. merki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-6-6-8-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 7. merki í þessa lykkju. Framstykki: Prjónið A.1a yfir 11 lykkjur, A.2a yfir 13 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón og setjið 8. merki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 9. merki í þessa lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 10. merkið í þessa lykkju, A.3a yfir 13 lykkjur, A.4a yfir 11 lykkjur. Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur á hvorri ermi og 14 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. 2 lykkjur fyrir laskalínu, 2 lykkjur við miðjulykkju og 10 lykkjur fleiri í mynstri A.1a til A.4a) = 174-178-182-202-202-210 lykkjur. Uppslátturinn á ermum og hvoru megin við miðju lykkju eru EKKI prjónaðar snúnar (= gat), á meðan uppslættir á eftir A.2 og á undan A.3 eru prjónaðir snúnir (= ekki gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a til A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.1b til A.4b yfir A.1a til A.4a. Útaukning heldur áfram þannig (fyrsta útaukningin hefur nú þegar verið útskýrð): Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.,4., 6. og 9. merki og á undan 2., 4., 7. og 9. merki í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-36-39 sinum (þ.e.a.s. 25-28-30-32-35-38 sinnum til viðbótar). Þessir uppslættir eru ekki prjónaðir snúnir = gat. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. og 8. merki og á undan 5. og 10. merki í 4. hverri umferð alls 9-11-14-12-16-19 sinnum (þ.e.a.s. 8-10-13-11-15-18 sinnum til viðbótar. Þessir uppslættir eru prjónaðir snúnir = ekki gat. Þegar ölll útaukning hefur verið gerð eru 60-66-70-76-80-86 lykkjur á hvorri ermi og 143-155-167-175-191-207 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki = alls 406-442-474-502-542-586 lykkjur. Stykkið mælist ca 22-24-26-27-30-32 cm frá uppfitjunarkanti, mælt mitt ofan á ermi. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: (síðasta umferð sem er prjónuð er 1 umferð þar sem lykkjum er fjölgað). Vinstri ermi: Setjið fyrstu 60-66-70-76-80-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 merki mitt á milli þessa lykkja. Bakstykki: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (= 143-155-167-175-191-207 lykkjur). Hægri ermi: Setjið lykkjur á þráð og fitjið upp lykkjur undir ermi eins og á vinstri ermi. Framstykki: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (= 143-155-167-175-191-207 lykkjur). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 302-326-350-374-406-438 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrjið við merki undir ermi. Lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Bakstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), A.1b, A.2b og sléttprjón fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttprjón, A.3b og A.4b þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur sléttprjón. Framstykki: Prjónið á sama hátt og á bakstykki. Þ.e.a.s. það fækkar um 4 lykkjur og aukið út um alls 4 lykkjur, þannig að lykkjufjöldinn verðu sá sami. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn = gat). UMFERÐ 3: Bakstykki: prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttprjón og mynstur að merki (= 2 lykkjur fleiri). Framstykki: Prjónið á sama hátt og á bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út um alls 4 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn = gat). Endurtakið umferð 1 til 4. Þ.e.a.s. lykkjur í A.1b til A.4b fækkar og sléttar lykkjur aukast við miðju framan/aftan. Þegar það eru ekki nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-18-18-19-19-19 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, stillið af að síðasta umferðin sé 2. eða 4. umferð. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið við merkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig (= ca 12 cm klauf í hliðum). BAKSTYKKI: Haldið áfram með umferð 1 til 4 (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu) fram og til baka, en nú eru 2 ystu lykkjur í hvorri hlið prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 26-26-26-27-27-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 183-195-207-221-237-253 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður, en jafnið lykkjufjöldann út þannig að það séu 92-100-104-112-120-128 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju, þ.e.a.s. aukið út ca 1-3-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju (= alls 2-6-2-4-4-4 lykkjur fleiri) = 185-201-209-225-241-257 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið nú stroffkant yfir allar lykkjur þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið * 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 2 lykkjur garðaprjón. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, útaukni uppslátturinn er prjónaður inn í stroffi (það eiga að myndast göt). Endurtakið umferð 1 og 2. Þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur og fækkað um 2 lykkjur, þannig að lykkjufjöldinn verði sá sami. Þegar stykkið mælist 30-30-30-31-31-31 cm, frá þar sem fram- og bakstykki skiptist við ermar, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-63-65 cm frá öxl og niður þar sem stykkið er styst. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið 60-66-70-76-80-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-74-78-88-92-98 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8-8-8-12-12-12 lykkja (= fyrir miðju undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-15-18-20-21 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 41-40-38-37-35-33 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #casualdiamondsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.