Marianne Stahl skrifaði:
Flot med lidt edderkoppespind på bærestykket, men skulle være højere i halsen - lidt ligesom ærmerne.
14.06.2018 - 18:54
Lelletta skrifaði:
Che dire! bello e...da fare presto!!! :)
07.06.2018 - 01:22
Ľudmila Hoffmanová skrifaði:
The pullover is beautiful, please in Czech :-).
06.06.2018 - 21:44
Britt skrifaði:
Sød, men den skulle bare havde været lidt højre i halsen.
06.06.2018 - 12:02
Mihók Blanka skrifaði:
Ez a minta annyira tetszik ,hog szeretném megkotni
05.06.2018 - 19:05
Pyramids#pyramidssweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal eða Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-30 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Þegar það verða meira en 6 lykkjur á milli litaskipta í mynstri, tvinnið þræðina saman með hvorum öðrum, svo að það verði ekki of löng hopp á röngunni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjiið upp 70-74-76-83-86-90 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum ljós grár. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 5-11-4-2-4-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 75-85-80-85-90-100 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Prjónið A.1a (= 5 lykkjur) yfir allar lykkjur (= alls 15-17-16-17-18-20 sinnum á breidd). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b yfir A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 210-238-256-272-288-320 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-21-24-24-26-26 cm frá uppfitjunarkanti. Stykkið er nú prjónað áfram með litnum natur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 30-32-35-38-41-47 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-68-73-79-85-97 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið 30-34-36-39-42-48 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki) = 138-150-164-180-192-216 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-12-12-12 nýrra lykkja á hvorri hlið á stykki (= 70-76-83-91-97-109 lykkjur á bakstykki). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 7-7-7-8-9-7 sinnum = 166-178-192-212-228-244 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur þar til fram- og bakstykki mælist 31-31-32-32-32-32 cm, frá þar sem stykkið skiptist frá ermum. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist alls ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-52-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-12-12 lykkjum undir ermi með litnum natur = 52-60-66-70-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-12-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn með natur. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 4-8-10-12-12-13 sinnum = 44-44-46-46-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-36-34-32-31 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út um 0-0-2-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-48-52 lykkjur. Síðan er skipt yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónað * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 43-41-41-39-37-36 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pyramidssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.