Ana Lucía skrifaði:
Hola! Estoy haciendo el patrón en talla S, al llegar a los 14 cm de la espalda tengo 69 puntos (3 puntos musgo a cada lado (6), 60 puntos en A3A y 3 puntos en A3B). Luego mencionan que debo aumentar 1 punto dentro de los 3 puntos en punto musgo a cada lado (ya tendría 2 puntos más = 71 puntos en total) y luego dicen que debo aumentar 1 punto a cada lado en cada fila por el lado derecho 5 veces (tendría 10 puntos más = 81 puntos en total) y ustedes mencionan que solo son 79?
04.06.2020 - 00:09DROPS Design svaraði:
Hola Ana Lucia! Cuando la labor mida 14 cm (medidos desde el hombro), aumentar 1 punto dentro de los 3 puntos en punto musgo a cada lado - aumentar 1 punto a cada lado en cada fila por el lado derecho (= cada segunda fila) 5 veces en total (10 puntos mas) = 79 puntos. Buen trabajo!
20.11.2020 - 10:11
Emilie skrifaði:
Strikker toppen i størrelse L, men får ikke A3.A til å stemme over både A1 og A2. Får den til å stemme over A2 men ikke over A1 uansett hvordan jeg vrir og vender på det. Hvordan skal jeg få det til å gå opp?
10.04.2020 - 20:39DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, jo men hvis du sørger for at hver 2.mønster pind forskydes over A.1 og A.2 så kommer det til at gå op. God fornøjelse!
29.04.2020 - 09:58
Mari skrifaði:
Buongiorno Nella taglia XL quando unisco le spalle dietro, non combaciano i motivi A3 non combacia su A2 e A1 Non capisco dove sbaglio!
12.09.2019 - 17:20DROPS Design svaraði:
Buongiorno Mari. Quando lavora il diagramma A3 deve iniziare dalla riga che le consente di proseguire correttamente il motivo lavorato con i diagrammi A1 e A2. Non necessariamente è la prima riga. Buon lavoro!
12.09.2019 - 23:21
Sylke Thompson skrifaði:
Ich bin eigentlich fertig, aber beim abketten hat sich der rand zusammen gezogen. wie kann ich das vermeiden
10.09.2019 - 00:37DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Thompson, Sie können mit einer größeren Nadel abketten. Viel Spaß beim stricken!
10.09.2019 - 09:23
Jances Antifave skrifaði:
How do you know how many balls od yarn to use
22.05.2019 - 17:57DROPS Design svaraði:
Hi Jances Antifave, there is 50 g in a ball, so in size S you will need 7 balls (350 g in total). Happy knitting!
22.05.2019 - 18:21
Merete skrifaði:
Tak for svar på tidligere. Matematikken passer fint hvis jeg kun skal strikke A3, men det kommer ikke til at passe med både A1og A2. Jeg tilføjer 37 masker mellem A1 og A2. Hvis de skal kunne strikkes sammen med mønsteret i A1 og A2 burde dette masketal fratrukket 3 være deleligt med 6. Uanset hvad der så foregår at retstrik i kanten. Jeg kan i hvert fald ikke få det til at passe på nogen måde. Til gengæld fungerer det smukt hvis jeg tilføjer 39 masker i midten i stedet for 37!
20.08.2018 - 16:14
Henny skrifaði:
Op een hoogte van 14 cm moet je aan de goede kant meerderen en de gebreide steken aan de zijkant in patroon A3 inbreien. Hoe doe je dit zonder dat het patroon verspringt?
14.08.2018 - 21:26DROPS Design svaraði:
Dag Henny, Je breit de gemeerderde steken in A.3, zodra er genoeg steken zijn om ze in patroon te breien. Als er nog niet genoeg steken zijn, brei je ze in tricotsteek.
15.08.2018 - 10:15
Merete skrifaði:
Jeg strikker denne top i str XL og kan ikke få mønsteret til at passe. Når jeg samler højre og venstre skulder med opslag har jeg 73 masker. Jeg strikker 3 masker retstrik og 2 masker glatstrik og fortsætter med diagram A3, så det stemmer med mønsteret på diagram A2 og videre over de opslagene masker frem til den anden skulder. Og her passer mønsteret så ikke længere over det der på skulderen er strikket efter A1, men er forskudt med 2 masker. Er der mon en fejl i opskriften?
11.07.2018 - 16:02DROPS Design svaraði:
Hej Merete, Du har 73 masker, de yderste 5 masker i hver side strikkes i retstrik/glatstrik, det vil sige at du har 63 masker tilbage til A.3. Hvis du strikker A.3A over 6 masker 10 gange, så har du 3 masker tilbage hvor du strikker A.3B (så mønsteret bliver ens i hver side). God fornøjelse!
20.08.2018 - 15:51
Loving Summer#lovingsummertop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL
DROPS 190-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið er út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat. ÚTAUKNING-2 (fram- og bakstykki): Aukið út hvoru megin við prjónamerki + 1 lykkja í hvorri hlið. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Framstykkin og bakstykkin er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig niður að fram-bakstykki, síðan eru allar lykkjur settar á sama hringprjón. Prjónið síðan í hring. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 18-18-18-18-18-18 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 12 lykkjur), 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 2 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri öxl, en prjónið A.2 í stað A.1. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Prjónið 1 umferð frá réttu, fitjið upp 33-33-35-37-39-41 nýjar lykkjur og prjónið til baka lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn = 69-69-71-73-75-77 lykkjur. Prjónið þannig – frá röngu: 3 lykkjur garðaprjón, A.2, 39-39-41-43-45-47 lykkjur í garðaprjóni, A.1, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 39-39-41-43-45-47 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, 0-0-1-2-0-1 lykkjur í sléttprjóni, A.3 A yfir næstu 60-60-60-60-66-66 lykkjur, A.3 B (= 3 lykkjur),0-0-1-2-0-1 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón – ATH! Passið uppá að A.3 passið yfir A.2 og A.1. Þegar stykkið mælist 14-12-11-11-9-8 cm (mælt frá öxl) aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls 5-9-11-13-17-20 sinnum = 79-87-93-99-109-117 lykkjur, útauknar lykkjur í hlið eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Þegar útaukning í hlið hefur verið gerð til loka, leggið stykkið til hliðar en endið eftir heila umferð frá röngu, stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 18-18-18-18-18-18 lykkjur á prjón 4 með Cotton Light. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 12 lykkjur), 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, en prjónið A.2 í stað A.1. Prjónið þar til stykkið mælist 6 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Prjónið 1 umferð frá réttu, fitjið upp 33-33-35-37-39-41 nýjar lykkjur og prjónið til baka lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn = 69-69-71-73-75-77 lykkjur. Prjónið þannig – frá röngu: 3 lykkjur garðaprjón, A.2, 39-39-41-43-45-47 lykkjur garðaprjón, A.3, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 39-39-41-43-45-47 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, 0-0-1-2-0-1 lykkjur sléttprjón, A.3 A yfir næstu 60-60-60-60-66-66 lykkjur, A.3 B (= 3 lykkjur),0-0-1-2-0-1 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón – ATH! Passið uppá að A.3 passi yfir A.2 og A.1. Þegar stykkið mælist 14-12-11-11-9-8 cm (mælt frá öxl) aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjón í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls 5-9-11-13-17-20 sinnum = 79-87-93-99-109-117 lykkjur, útauknar lykkjur í hlið eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Þegar útaukning hefur verið gerð til loka, leggið stykkið til hliðar en endið eftir umferð frá röngu, stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm frá öxl. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 79-87-93-99-109-117 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-8-12-14-20 nýjar lykkjur, prjónið 79-87-93-99-109-117 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-8-12-14-20 nýjar lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-186-202-222-246-274 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið næstu 3 umferðir þannig: Haldið áfram í sléttprjóni, en prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-20-26 lykkjur í hvorri hlið (1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið) fyrir handveg. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hlið (= 4 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2, endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, nú eru ca 244-262-280-302-328-358 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 yfir allar lykkjur, fellið síðan af. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lovingsummertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.