Martine PITSCHON skrifaði:
Bonjour : je tricote la taille S. Manches : 64m + 8m sous la manche. + 1m ds les 8m montées ? Le total ne peut être 72m ? Faut-il vraiment ajouter ces 8m supplémentaires ? Merci de votre réponse. Martine
10.09.2018 - 12:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pitschon, vous aviez mis 64 m en attente pour la manche et vous relevez ensuite 1 maille dans chacune des 8 mailles montées sous la manche lorsque vous les avez mises en attente (ces mailles ont ensuite été tricotées pour les côtés du pull avec le dos/le devant) = on a bien 72 mailles pour la manche. Bon tricot!
11.09.2018 - 09:44
Cordula skrifaði:
Schlicht und trotzdem raffiniert. Sehr schön.
15.02.2018 - 21:56
Lisette Van Raadshooven skrifaði:
Lovely sweater for all ages.
16.01.2018 - 20:55
Seguin skrifaði:
Magnifique pull raglan pour l'été
15.01.2018 - 17:45
Doris skrifaði:
Raglan geht immer! Sehr schöner Pullover.
25.12.2017 - 09:37
Golden Girl#goldengirlsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri, laskalínu og A-formi prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 187-25 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð (umferðin byrjar við miðju að aftan) þannig: Prjónið 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi), 34-36-38-42-44-48 lykkjur og aukið út um 3-1-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi) og endið með 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 122-122-130-134-142-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, allur uppsláttur er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 15-15-19-19-19-23 lykkjur slétt, A.1a (= 6 lykkjur), 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, A.2a (= 6 lykkjur), 31-31-39-39-39-47 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 6 lykkjur, 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, A.2a yfir næstu 6 lykkjur og endið með 16-16-20-20-20-24 lykkjur slétt (= 2 lykkjur fleiri í hverri einingu A.1a og A.2a = alls 8 lykkjur fleiri) = 130-130-138-142-150-158 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið nú áfram fyrir laskalínu JAFNFRAMT því sem mynstur er prjónað, lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram: LASKALÍNA: Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.1 og A.2 (= alls 8 lykkjur fleiri). Útaukni uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, svo það myndist gat. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-25-27-30-33-36 sinnum. MYNSTUR: Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a. Mynsturteikning A.1b og A.2b er endurtekin á hæðina. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 298-330-354-382-414-446 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1c yfir A.1b og A.2c yfir A.2b (stilltu af hvora umferð þú byrjar á miðað við mynstur, þ.e.a.s. kaðall heldur áfram eins og áður og gataumferðin er prjónuð hvoru megin við hvern kaðal). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 20-23-24-27-29-31 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir í hverri einingu A.1c og A.2c (= alls 8 lykkjur færri) = 290-322-346-374-406-438 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-44-48-53-59-65 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur, prjónið 81-89-97-107-119-131 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur og endið með 41-45-49-54-60-66 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) yfir miðju lykkjur í hlið undir hvorri ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 31-30-31-30-30-30 cm (nú eru ca 218-230-250-266-290-314 lykkjur í umferð) frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4 og prjónaðar eru 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 64-72-76-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki undir ermi = 72-80-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 15-18-19-20-21-22 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-41-41-38-36-34 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist nú alls 45-42-42-39-37-35 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldengirlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.