DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Adele

Prjónuð peysa með kanti með bylgjumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Belle.

DROPS 187-14
DROPS Design: Mynstur vs-044
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur 04, fífill
50-100-100-100-100-100 g litur 03, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Fyrsta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð frá röngu!

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur í bylgjumynstri með litnum ljós beige. Síðan er skipt yfir í litinn fífill og prjónaðar eru 4 umferðir garðaprjón áður en haldið er áfram í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 121-121-137-137-153-169 lykkjur með litnum ljós beige á hringprjón 4. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 – veljið mynstur fyrir þína stærð (= 8 mynstureiningar með 14-14-16-16-18-20 lykkjur), A.3 (= 4 lykkjur). Í 2 síðustu umferðum í A.1-A.3 er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar (merkir klauf) – ATH: fækkað er um 1 lykkju í næst síðustu umferð í A.1 = 122-122-138-138-154-170 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 er lokið er skipt yfir í litinn fífill. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-12-18-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 102-110-120-130-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-1-2-3-4-5 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 94-102-112-122-134-146 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-1-3-2-2-2 sinnum = 82-84-86-88-90-92 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-37-39-41-43-45 cm fellið af miðju 40-40-42-42-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm frá prjónamerki. Setjið nú miðju 22-22-24-24-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Stillið af við bakstykki. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp.
Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós beige. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 – ATH: Fyrsta umferð í mynsturteikningu er frá röngu og er prjónuð brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Í umferð sem kemur á eftir þar sem prjónað var saman við uppfitjunarkantinn (= umferð með ör í mynsturteikningu) er skipt yfir í litinn fífill. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-5-5-4-4-3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6. hverri umferð 11-12-7-6-0-0 sinnum og í 4. hverri umferð 0-0-7-9-17-18 sinnum = 66-70-76-80-86-90 lykkjur. Þegar ermin mælist 33-33-32-32-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur þar til ermin mælist 40-41-41-42-42-43 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 44-45-45-46-46-47 cm meðtalinn kantur neðst niðri á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlir með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður meðfram hlið að lykkju sem fitjuð var upp fyrir klauf (= 8 cm fyrir klauf). Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp 100-100-106-106-112-112 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) með litnum fífil og á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.4 í hring þar til umferð 7 í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum, en í 4. hverri lykkju er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. ATH: Affellingarkanturinn má ekki verða stífur, þá kemur kantur með uppábroti að snúa út eftir frágang. Brjótið uppá við gataumferð í A.4 þannig að kantur fyrir saum verði innan á flíkinni. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjónið. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur!

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.05.2018
Leiðrétting: Mynsturteikning hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2018
FRAMSTYKKI:..Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, bruðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið - það eiga að myndast göt. ATH: Þegar mynsturteikning A.4 er prjónuð í kanti í hálsi er uppslátturinn prjónaður slétt í næstu umferð - það eiga að myndast göt!
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 4 lykkjur slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið þeim aftur yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri). Lyftið síðustu lykkjunni til baka yfir á hægri prjón
symbols = prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkju sem var prjónuð yfir síðustu, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri).
symbols = prjónið 5 lykkjur slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri). Lyftið síðustu lykkjunni til baka yfir á hægri prjón
symbols = prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri)
symbols = þessi umferð er prjónuð þannig: Brettið uppá gataumferð (= 4 umferð í mynsturteikningu) að röngu á stykki. Setjið fyrstu lykkju í uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjonið 2 fyrstu lykkjurnar (þ.e.a.s. fyrsta lykkja á prjóni + fyrsta lykkja frá uppfitjunarkanti) slétt saman. Setjið næstu lykkju á uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar saman (þ.e.a.s. næstu lykkju í umferð + næstu lykkju frá uppfitjunarkanti). Haldið svona áfram að prjóna eina lykkju frá uppfitjunarkanti saman við næstu lykkju á vinstri prjón þar til allar lykkjurnar hafa verið prjónaðar saman við uppfitjunarkantinn.
symbols = í þessari umferð er skipt yfir í litinn fífill
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Adele

Valérie, France

Adele in Lavender blue

Stricklala, Austria

187-14 Adele

Eva, Germany

Adele Sweater

Barbara, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Christina wrote:

Hej Drops 187-13 Jag förstår inte hur jag ska göra varvet * (stjärna) , vända upp det stickade till baksidan? Tacksam för hjälp, kan ni visa hur jag ska göra.

05.01.2021 - 15:41

DROPS Design answered:

Hei Christina. Har du sett hjelpevideoene til denne genseren? Selv om den viser et skjørt, så er teknikken den sammen. Se på: Hur man stickar en vikt kant till en kjol. mvh DROPS design

13.01.2021 - 14:58

country flag Martina wrote:

Ich verstehe die letzten 2 Reihen des Wellenmusters nicht. Ich soll lt. Anleitung am Ende der vorletzten Reihe eine Masche aufnehmen, und am Ende der letzten Reihe. Lt. Anleitung und Diagramm soll ich aber am Ende der vorletzten Reihe auch 1 Masche abnehmen (= 2 Maschen zusammenstricken). Das macht doch keinen Sinn? Wenn ich 1 Masche zunehme und 1 Masche abnehme, ist die Maschenzahl doch die gleiche, dann kann ich das doch so lassen, wie es ist (also weder auf- noch abnehmen)?

21.12.2020 - 21:02

DROPS Design answered:

Liebe Martina, man braucht für die Naht eine Masche mehr beiseitig (deshalb muss man 2 Maschen anschlagen), aber bei der vorletzte Reihe in A.1 wird nur 1 Masche abgenommen. Viel Spaß beim stricken!

22.12.2020 - 09:41

country flag Anne M Sullivan wrote:

Doing cap of sleeve, the instructions say cast off 4 stitches each side 1 time then 3 stitches 1 time then 2 stitches and continue until sleeve measures 41 (was 33). Then cast off 3 stitches 1 time and then cast off rest. Now does this mean 2 stitches 1 time or beginning each row until work measures 41cms?

03.02.2020 - 17:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sullivan, this means you will cast off 2 stitches at the beginning of the rows from RS and from WS until the sleeve measures 41 cm from the marker thread. The number of times/stitches cast off will depend on your tension in height, measurement is here more important than number of rows/stitches, but just make sure you cast off the same number of stitches on each side. Happy knitting!

04.02.2020 - 10:31

country flag Marchal Christina wrote:

Bonjour, J'ai acheté le nombre de pelotes qui étaient indiqués. Hors, je n'ai pas assez de couleur beige pour finir le début de mon devant. Il est écrit 50g. Est ce une erreur? Je vous avoue, je suis très décu de ne pas pouvoir finir mon pull et je dois attendre une demaine maintenant pour recevoir la pelote manquante.

11.01.2020 - 18:39

country flag Louise Weber wrote:

Kan det passe at der i symbolforklaring we blevet byttet rundt på forklaringerne af hhv. 4 masker ret sammen og 4 masker drejet sammen? Forklaringerne stemmer ikke overens med de videoer i har af "strik 4 masker ret sammen" og "4 masker drejet ret sammen"

23.05.2019 - 23:02

DROPS Design answered:

Hei Louise. Symbolforklaringen stemmer: når du strikker rett sammen flyttes alle masker tilbake på venstre pinne, når det strikkes VRIDD rett sammen forblir de på høyre pinne. Det er også dette som vises i videoene. . God fornøyelse

24.05.2019 - 08:22

country flag Marie wrote:

Bonjour pourriez vous me donner plus d explications pour les 4 mailles tricotees ensemble à gauche et à droite. Merci

26.03.2019 - 20:31

DROPS Design answered:

Bonjour Marie! Pour tricoter 4 mailles ensemble suivez simplement la technique du video ICI. Les autres tutoriels vidéo associes a ce modele se trouvent a gauche des explications. Bon travail!

27.03.2019 - 07:47

country flag Pamela Cornish wrote:

Hi, I don't understand how to work the folded eyelet row. Am I right in understanding that each cast on stitch should be used. If so, I am confused because I have just decreased by a lot on the knitting row and therefore if I do that I will run out of stitches to keep using to knit together with the cast on stitch. I hope that this makes sense! Thanks. Pam

03.08.2018 - 17:17

DROPS Design answered:

Dear Pamela, there is no decrease on the piece before you finish the folded edge. On the row the eyelets are done aside the edge stitches *1 yarnover, 2KTOG* should be repeated, that is one yarnover for every knitted together stitch. I hope this helps. Happy Knitting!

04.08.2018 - 23:44

country flag Sara Karlsson wrote:

Hej Jag får inte ihop antalet maskor som ska vara på framsida per axel. Jag har 84 maskor och ska sätta de 22 i mitten på en tråd, då får jag 31 per sida. Så ska jag minska 2 maskor 3 gånger = 6 maskor och 1 maska 2 gånger. Då har jag minskat 8 maskor per sida och har då 23 maskor men i mönstret står det att jag ska ha 21? Vad blir fel? Mvh Sara Karlsson

05.07.2018 - 21:51

DROPS Design answered:

Hej Sara, vi ser var du menar. Vi skall be design titta på mönstret och lägga ut en rättelse. Om inte du vill vänta på den, kan du minska 2 maskor till så du har samma antal maskor som på ryggen. Tack för information och lycka till :)

09.07.2018 - 08:49

country flag Anne wrote:

Hej. Jeg er nået til at skulle lave ærmekuppel og forstår ikke hvordan der skal tages ind i den forbindelse. \r\n1. Tages der ind på både start og slut af hver pind?\r\n2. Tages der både ind på ret og vrang pinde?\r\n3. Når der står: 2 masker til ærmet måler X, skal man så blive ved med at tage to masker ind og i så fald, hvor mange masker skal der så være i alt når der står luk de resterende m af?

01.06.2018 - 14:34

DROPS Design answered:

Hei Anne. Når det står at du skal felle på begynnelsen av hver pinne i hver side, betyr dette at det felles fra både rettsiden og vrangsiden – kun på begynnelsen av pinnen. Når det står fell 4 masker 1 gang, betyr dette at det felles over 2 pinner: Fell 4 masker på starten av pinnen fra retten, snu arbeidet, fell 4 masker på starten av pinnen fra vrangen = 8 masker felt. Videre står det fell 2 masker til arbeidet måler X, da skal det felles på samme måte: 2 masker felles på begynnelsen av hver pinne til riktig mål. God fornøyelse.

06.06.2018 - 13:11

country flag Csikósné Monika wrote:

Kedves Drops!Nem értem a * jelölésnél leírt kötésmódot!Kérek szépen segitséget!Mi az pl. hogy kezdőszél vetkező szeme?Köszönöm!Németül is probáltam de úgy sem értem.

03.03.2018 - 19:02

DROPS Design answered:

Kedves Monika, itt a szegély szélét a lyuksornál félbe hajtjuk, és a kezdőszél szemeit egyenként összekötjük a kötőtűn levő szemekkel - varrás helyett így rögzítjük a dupla szélt. kezdőszél következő szemét kötjük össze a kötőtűn lévő következő szemmel. Sikeres kézimunkázást!

04.03.2018 - 18:45