Mike Rooney skrifaði:
I am so happy to come across this piece of write up, very much advanced my understanding to the next top level. Great job and continue to do same.Baywatch Jacket
01.09.2019 - 11:29
Baywatch Jacket skrifaði:
I am so happy to come across this piece of write up, very much advanced my understanding to the next top level. Great job and continue to do same.
01.09.2019 - 11:28
King skrifaði:
Its excellence and decent post. Thanks for sharing. indian girl Halloween costume
30.08.2019 - 21:12
Tessa skrifaði:
Decreasing the sleeves, is it decreasing 2 stitches every 2 cm, for a total of 14 times? Or decrease 14 stitches every 2 cm? I don't see how the total decreases add up in the pattern. I'm working on an L sized jumper.
19.08.2019 - 10:57DROPS Design svaraði:
Dear Tessa, in size L you will decrease 2 stitches mid under sleeve on every 2 cm a total of 14 times = 28 sts will be decreased in total. There were 64 sts - 28 sts = 36 sts remain. Happy knitting!
19.08.2019 - 11:46
Åse skrifaði:
Det må være en feil i denne oppskriften. Det står under Bolen at en skal strikke til 25 cm i L, så øke m og så strikke vrangbord. Dette tror jeg skal være 35 cm, ellers kan ikke hel lengde bli ca 58 cm. Jeg holder på med avsluttende vrangbord nede nå, og strikker slik. Det er passelig.
07.08.2019 - 10:13
åse skrifaði:
Skal det økes helt nederst, altså rett før jeg feller av med vrangborden? Jeg er ferdig med raglan, og starter nå under ermene. Tenkte at jeg bare skulle strikke rett ned nå.
02.08.2019 - 13:45DROPS Design svaraði:
Hej Åse, ja nu strikker du rett ned. Om du ikke øker når du bytter til rundpinne 4,5 ret før kanten, så kan kanten let bli for tight :) God fornøjelse!
02.08.2019 - 15:14
KLA skrifaði:
Hei igjen! Jeg forstår fortsatt ikke hvor det skal markeres og hvor A1 er. Har forsøkt flere ganger og gjort det feil. Kan du gi et konkret eksempel på hvor jeg skal markere og øke, utdrag oppskriften (med antall masker osv.)? :-)
01.08.2019 - 10:20DROPS Design svaraði:
Hej igen, hvis du strikker ifølge opskriften "neste omgang strikkes slik" så vi du få de fire A.1 i hver raglanovergang mellem bol og ærmer. Du har da 4-4-4-6-6-6 masker rett på hvert erme og 28-28-32-34-34-40 masker rett på for og bagstykke (alt efter hvilken størrelse du strikker) og så med A.1 imellem hver. Du kan også altid få hjælp i butikken hvor du har købt dit DROPS garn. God fornøjelse!
02.08.2019 - 09:52
KLA skrifaði:
Stilte et spørsmål tidligere som jeg håper dere kan hjelpe meg med :-)
30.07.2019 - 21:19DROPS Design svaraði:
Hei KLA. A.1 er diagrammet nederst på siden, og dette strikkes over 6 masker i hver raglanlinje. Altså i hver overgang mellom bol og ermer. Du øker 1 maske på hver side av disse 6 maskene i hver A.1 annenhver omgang, som forklart. Kanskje kan det hjelp å sette 1 merke rett før og etter hver A.1 slik at du lettere holder oversikten over hvor det skal økes? God fornøyelse
31.07.2019 - 14:56
KLA skrifaði:
Hei! Lurer bare på hva A1 symboliserer? Sliter med å forstå hvor det skal økes/markeres på raglanfellingen. Setter så pris på hjelp, da jeg er klar for å komme i gang :-D
30.07.2019 - 13:37
Carla skrifaði:
Hello, before starting the body and separating the stitches for the sleeves, where do the raglan stithes go? to the body or the sleeves? or half on sleeves and half on body?
22.06.2019 - 05:52DROPS Design svaraði:
Dear Carla, the part of stitches from raglan line worked to the body/sleeves depends from the size, for ex. you will work 5-5-4-5-7-7 sts from raglan line to half back piece on dividing round. Make sure you have the correct number of sts increased on each piece and just work the dividing round as explained for your size. Happy knitting!
24.06.2019 - 07:21
Carly Pullover#carlypullover |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Peysa með laskalínu. prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 7. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 80-84-88-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Byrjun á umferð = miðja að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 15-16-17-18-18-20 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2-2-2-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 10-10-10-12-12-12 lykkjur slétt, 30-32-34-36-36-40 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar, 10-10-10-12-12-12 lykkjur slétt, 15-16-17-18-18-20 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2-2-2-3 jafnt yfir þessar lykkjur = 88-88-96-104-104-116 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 14-14-16-17-17-20 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (= ermi), A.1, prjónið 28-28-32-34-34-40 lykkjur slétt (= framstykki), A.1, prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (= ermi), A.1, prjónið 14-14-16-17-17-20 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Haldið áfram með mynstur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-23-23-26-28-30 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 248-272-280-312-328-356 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón (án útaukningar) þar til stykkið mælist 23-26-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 39-42-43-48-52-57 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-52-54-60-60-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 78-84-86-96-104-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-60-60-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 39-42-43-48-52-57 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-192-208-228-248 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 25-24-25-24-24-24 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-36 lykkjur jafnt yfir– lesið ÚTAUKNING = 192-208-220-240-264-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með prjónum 5,5. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Setjið 46-52-54-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á hringprjón/sokkaprjón 5,5 og fitjið að auki upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-11-14-15-15-16 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-34-33-31-30-29 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram með stroff í 5 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-39-37-36-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carlypullover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.