DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 186-30

#carlypullover

DROPS Design: ai-103
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð).
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 7.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 80-84-88-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Byrjun á umferð = miðja að aftan.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 15-16-17-18-18-20 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2-2-2-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 10-10-10-12-12-12 lykkjur slétt, 30-32-34-36-36-40 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar, 10-10-10-12-12-12 lykkjur slétt, 15-16-17-18-18-20 lykkjur slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2-2-2-3 jafnt yfir þessar lykkjur = 88-88-96-104-104-116 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 14-14-16-17-17-20 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (= ermi), A.1, prjónið 28-28-32-34-34-40 lykkjur slétt (= framstykki), A.1, prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (= ermi), A.1, prjónið 14-14-16-17-17-20 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Haldið áfram með mynstur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-23-23-26-28-30 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 248-272-280-312-328-356 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón (án útaukningar) þar til stykkið mælist 23-26-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.

Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 39-42-43-48-52-57 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-52-54-60-60-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 78-84-86-96-104-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-60-60-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 39-42-43-48-52-57 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-180-192-208-228-248 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 25-24-25-24-24-24 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-36 lykkjur jafnt yfir– lesið ÚTAUKNING = 192-208-220-240-264-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með prjónum 5,5. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.
Setjið 46-52-54-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á hringprjón/sokkaprjón 5,5 og fitjið að auki upp 6-6-10-8-10-10 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-11-14-15-15-16 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-34-33-31-30-29 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram með stroff í 5 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-39-37-36-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
Diagram for DROPS 186-30

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (135)

country flag Deni skrifaði:

Can you help me with the first row after yoke where increases start?I'm making XL size but can't figure out how to begin.

21.05.2020 - 09:35

DROPS Design svaraði:

Dear Deni, before increasing for raglan you will first increase evenly on some sts: with larger needle work as follows: knit 18 sts inc 2 sts (= there are now 20 sts), knit 12 sts, knit 36 sts inc 4 sts (= there are now 40 sts), knit 12 sts, knit 18 sts inc 2 sts (there are now 20 sts) = there are now: 20+12+40+12+20= 104 sts on needle. Now work A.1 increasing for raglan as explained under RAGLAN. Happy knitting!

22.05.2020 - 09:42

country flag Karen Frisk skrifaði:

Jeg kan ikke få opskriften til at passe, jeg er nået til der hvor man skal sætte ærmerne på snor. Jeg har fået 24 masker for meget. Opskriften må være forkert? Det ville være en kæmpe hjælp, hvis det fremgik om raglanmønstret A1 skal tælle med på ærmesiden? Hvordan kan man redde opskriften? Jeg har trevlet op, og kommer til det samme mærkelige antal masker igen... HJÆLP!!!

13.05.2020 - 12:54

country flag Anne skrifaði:

Hej. Jeg har lige strikket denne opskrift i str. M og fulgt opskrift og antal masker hele vejen, men den er ALT for bred!!! Måler 65 cm i bredden og jeg Har 14 masker på pind 5,5 på 10 cm i strikkefasthed , så forstår ikke hvorfor og er nødt til at pille det hele op igen. Øv øv. Hvad går der galt???

07.05.2020 - 07:26

DROPS Design svaraði:

Hej Anne, for at få målene i opskriften, så er du nødt til at følge strikkefastheden ifølge opskriften, som er 16 masker på 10 cm i bredden. (har du færre masker (14) så vil den blive for bred og har du flere, vil den blive for smal) Øv men du er nødt til at starte forfra hvis du vil have den mindre. :)

08.05.2020 - 09:49

country flag Joanne skrifaði:

Hi. Im doing the Carly pullover. On the first row of the pattern for the raglan, it says knit 14,then 4,then 28 then 4 then 14. It says continue at the same time increasing on each side of raglan every 2 round. I understand that but my problem is. This works out 64 stitches above? I have 88 on my needles, am i just carried on knitting the pattern? But the arms are not even? I followed the pattern correctly and had 88 as i was supposed to have. So im 24 over and not sure?

17.04.2020 - 00:07

DROPS Design svaraði:

Dear Joanne, you should have 88 stitches on this round: Knit 14 (=half back piece), A.1 (= 6 stitches), knit 4 (= sleeve), A.1 (= 6 stitches), knit 28 (= front piece), A.1 (= 6 stitches), knit 4 (= sleeve), A.1 (= 6 stitches), knit 14 (= half back piece) = 14+6+4+6+28+6+4+6+14= 88 sts. Round starts on mid on back piece, there are 28 stitches for front and back piece, 4 ssts on each sleeve and 6 sts for each of the 4 raglan line. Hope this helps. Happy knitting!

17.04.2020 - 09:00

country flag Elin Lønne skrifaði:

Har strikket ferdig bolen. (Str xxl) det står du skal øke 36 masker før vrangbord nede. Det må jo være feil. Du vil jo få et»skjørt» da. Jeg økte ingenting, og den ble fortsatt for vid.

13.04.2020 - 08:25

country flag Ulla skrifaði:

Är det möjligen så, att de sista 5-6 raderna på Ärmen har blivit omkastad ordning p storlekarna? Jag utgår från det, men det bör väl rättas till.

06.04.2020 - 16:09

DROPS Design svaraði:

Hej Är det att ärmarna är kortare i de större storlekarna du tänker på? I de större storlekarna kommer den totala vidden (från handled till handled) att vara större än i de mindre storlekarna, även om själva ärmen är kortare. De större storlekarna har längre ärmkupa samt bredare axelvidd. Detta resulterar i en bra passform i alla storlekar. Mvh DROPS Design

14.04.2020 - 12:32

country flag Jorien skrifaði:

Hoi! Ik ben bezig met de trui in maat M en begin nu bij het stuk met de raglan. Bij het meerderen van 1 st aan elke kant (=8 per naald) en elke 2e naald in totaal 23 st meerderen kom ik op een totaal aantal steken van 274 uit ipv 272? Maak ik hier ergens een rekenfout? Groeten, jorien

26.03.2020 - 17:41

DROPS Design svaraði:

Dag Jorien,

Voordat je begint met de meerderingen heb je 88 steken op de naald. Je meerdert 23 x 8 steken (=184 steken), dan heb je in totaal 272 steken op de naald. Kan het zijn dat je per ongeluk ergens meerderingen overgeslagen hebt?

27.03.2020 - 13:01

country flag Christine Burton skrifaði:

Hi, I have just finished knitting the Carly sweater in Drops Air and I love it. I would love to knit one for my adult niece but she would need a Extra Small. Is it possible to get the instructions for that size? Thanks Christine

25.03.2020 - 19:23

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Burton, we are unfortunately unable to adjust every pattern to every single request but you'll find here some garments in size XS that could help you to make the desired adjustments. Your DROPS store will be able to help you, even par mail or telephone. Happy knitting!

26.03.2020 - 10:37

country flag Christine skrifaði:

Hi, I don’ t understand why there are increases before ribbing , especially in the body area before the band.? I knit the pattern as stated (I am knitting the smallest size) and increased 24 stitches! It looked ridiculous and flared out before the band. I therefore took it out and did not increase stitches and it looks fine. I am now on the sleeves and the pattern again stated increases before ribbing.? Is this a misprint by any chance? Thank you

19.03.2020 - 14:53

DROPS Design svaraði:

Dear Christine, you increase before ribbed edge because ribbing requires more stitches for same width, and even more when working with the smaller needle. But if you rather get a tighter edge, then you can keep same number of stitches or even decrease if you like to. read also here. Happy knitting!

19.03.2020 - 14:58

country flag Gitte Munk skrifaði:

Hej\r\nLige inden man skal tage af til ærmer, står der, at man skal strikke ret til arb måler x cm fra opslåningskanten midt foran. Hvor er det?\r\nVh Gitte

05.03.2020 - 06:09