Christine skrifaði:
Any hope that you can do nordic socks in size 44-46? At the moment there is only one design (long socks) and none at all for calf length.
14.04.2022 - 17:42DROPS Design svaraði:
Dear Christine, we have some more nordic socks in this size - find them here. Happy knitting!
19.04.2022 - 14:20
Leonie skrifaði:
Ich habe diese Socken gestrickt und alles hat prima funktioniert. Die Wolle hat sogar für ein zweites Paar (in umgekehrter Farbfolge) gereicht!
12.11.2020 - 12:47
Kisu skrifaði:
Kudoin nämä vihreillä sävyillä nuorelle miehelle. Tykkäsi kovasti sukista. Kiitos ohjeesta, mukava kun löytyy kirjoneule-eläimiä sukan varteen
23.08.2020 - 20:07
Melanie skrifaði:
Gibt es ein Foto von der Socke von hinten, auf dem man das Muster A2 erkennen kann? Bei mir sah das sehr merkwürdig aus und ich verstehe denn Sinn nicht. Vielleicht mache ich etwas falsch?
10.02.2019 - 18:04DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie, es gibt kein Foto von hinten, am Anfang der Runde stricken Sie die 2 M A.2a dann wiederholen Sie A.2b und enden mit den 2 M A.2a (= hinten haben Sie 4 M mit A.2a, dh ungefähr 1 M abewechlsungswiese mit je eine Farbe ( ausser 1. und letzte Reihe). Viel Spaß beim stricken!
11.02.2019 - 10:44
Allison skrifaði:
I just finished knitting these socks for my friend as an Christmas gift, I have enough yarn left over to knit 2 hats that I found on your site (Misty Haze, they're not the exact colors but the colors for these socks work great anyway)! I finished one hat last night and will starting on the other (reversing the color order) tonight!
12.12.2017 - 16:56
Lama Rama Socks#lamaramasocks |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir herra með mynstri af lama / alpakka og norrænu mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-46.
DROPS 185-19 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning er prjónuð með sléttprjóni óháð lit merkt með brugðið. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 15. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 14. og 15. hver lykkja slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 15. hverri lykkju í þessu dæmi. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16-18 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós grár DROPS Fabel. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 56-64-64-72 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 7-8-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör í A.1 er aukið út um 4-0-0-2 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-74 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina er mynsturteikning A.2 prjónuð þannig: Prjónið A.2a 0-1-1-1 sinni (= 2 lykkjur aftan á sokk), prjónið A.2b (= 6-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum) og A.2a 0-1-1-1 sinni (= 2 lykkjur aftan á sokk). Í umferð merktri með ör í A.2 er fækkað um 4-8-0-10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-64-64 lykkjur. Þegar A.2 er lokið á hæðina er A.3 prjónað (= 7-7-8-8 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 er lokið á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt með litnum grár þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 54-58-62-66 lykkjur. Sokkurinn er síðan prjónaður með litnum grár og sléttprjóni til loka. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 22-24-26-28 cm. Haldið nú eftir fyrstu 13-14-15-17 lykkjunum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32-32 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15-17 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 26-28-30-34 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið í síðustu umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Þegar hælúrtakan hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar upp 13-14-16-17 lykkjur hvoru megin við hæl og 28-30-32-32 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 68-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32-32 lykkjur ofan á fæti. Fækkið lykkjum hvoru megin við 28-30-32-32 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-9-10-10 sinnum = 52-56-60-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 18-19-21-23 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6-7 cm eftir að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 26-28-30-32 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við þessi tvö prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2-0 sinnum = 12-16-16-20 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 6-8-8-10 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lamaramasocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.