Emilie JOUBERT skrifaði:
Bonjour, n'y aurait-il pas une faute au début de l'empiècement il est dit que l'on doit prendre les aig n 4 pour faire le col en côtes 2/2. ?? N'est-ce pas plutôt les aig 3,5?
24.01.2018 - 18:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Joubert, les côtes du col se tricotent en 4, mais celles du bas du pull et des manches se tricotent en 3,5. Bon tricot!
25.01.2018 - 08:10
Emilie JOUBERT skrifaði:
J'ai commandé le bleu forêt n°31 merino extra fine et la couleur ne correspond pas à ce que l'on voit sur cette photo, elle est en réalité (belle) mais beaucoup plus "terne". Un peu déçue... Même si ce n'est pas grave.
24.01.2018 - 18:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Joubert, n'oubliez pas que les couleurs vont être différentes d'un écran à l'autre, et il peut y avoir également parfois des différentes en fonction du bain. Bon tricot!
25.01.2018 - 08:53
Emilie JOUBERT skrifaði:
Je comprends que cela est pour la taille 2 ans, la 1ère consigne? J'avoue que le modèle est un peu confondant...
20.01.2018 - 18:13
Emilie JOUBERT skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi il y a 2 consignes différentes d'augmentation pour les manches??? Merci! AUGMENTER........ 14 fois tous les 2 tours, puis 1 fois tous les 4 tours (= 15 fois au total). ….............….............. AUGMEnter ........11-12-12-12-12 fois tous les 2 tours, et 5-5-6-6-7 fois tous les 4 tours (16-17-18-18-19 fois au total).
20.01.2018 - 18:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Joubert, pour que le pull ait la bonne forme, on augmente différemment pour le devant/pour le dos et pour les manches. En taille 2 ans, on va augmenter pour le devant et le dos: 2 m avant A.1/après A.2: 4 x tous les 2 tours puis 1 m avant A.1/après A.2: 12 x tous les 2 tours. En même temps, augmentez pour les manches: 1 m après A.1/avant A.2: 14 x tous les 2 tours et 1 x tous les 4 tours. Bon tricot!
22.01.2018 - 09:25
Anna-Lena Sjöblom skrifaði:
Hej! Jag håller på och stickar denna tröja nu. Jag förstår inte varför man inte ska ha 3,5 stickor på halsresåren, och ta ihop en massa maskor efter resåren? Det blir ju som en dålig polokrage, inte alls snyggt! Vad är tanken? Jag kommer då inte att öka maskor före nedre resåren, för jag vill inte ha en lös resår där.
26.11.2017 - 13:00DROPS Design svaraði:
Du kan givetvis sticka resåren i halsen på st nr 3,5 om du tycker att resåren blir för vid annars.
27.11.2017 - 17:31
María skrifaði:
Hola! He de hacer los aumentos del cuerpo al mismo tiempo que los de las mangas, ¿es correcto?
04.10.2017 - 15:37DROPS Design svaraði:
Hola Maria. Es correcto, trabajamos los aumentos para el cuerpo y las mangas al mismo tiempo, pero el número de aumentos es diferente, por eso está explicado por separado.
07.10.2017 - 18:55
Kyra skrifaði:
Ik ben begonnen met dit patroon. Ik heb een vraag over het tegelijkertijd meerderen bij de pas. In het patroon staat bij meerderen voor de raglan, zie hierboven. Maar daaronder staat het meerderen uitgelegd voor voor/achterpand en mouwen. Is dit dezelfde meerdering als de raglan? Welke meerdering moet ik nu uitvoeren?
12.09.2017 - 21:41DROPS Design svaraði:
Hallo Kyra, In dit geval staat onder 'RAGLAN' uitgelegd waar je moet meerderen. Daaronder staat uitgelegd hoe je moet meerderen voor de verschillende maten.
13.09.2017 - 13:02
Le Petit Bûcheron#lepetitbucheronsweater |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Sky. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 og A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á UNDAN A.1 (á einungis við um stærð 2 ára): Prjónið fram að 1 lykkju á undan A.1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á EFTIR A.1 (á einungis við um stærð 2 ára): Prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN A.1/A.2 (á við um allar stærðir): Prjónið fram að A.1/A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1/A.2. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR A.1/A.2 (á við um allar stærðir): Prjónið A.1/A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-92-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Merino Extra Fine eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið 3 cm stroffi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 72-76-80-80-84-84 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá miðju að aftan: Prjónið 7-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 8 lykkjur), 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.2 (= 8 lykkjur), 14-16-18-18-20-20 lykkjur sléttprjón (= framstykki),A.1, 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.2, 7-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH! Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum. STÆRÐ 2 ÁRA: AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 4 lykkjur á bakstykki og 4 lykkjur á framstykki (= 2 lykkjur á undan A.1 /eftir A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 4 sinnum. Aukið síðan út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan A.1/eftir A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 12 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM: Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á eftir A.1/á undan A.2): Aukið út í annarri hverri umferð 14 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 15 sinnum). STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára: AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan A.1/á eftir A.2): Aukið út í annarri hverri umferð 21-22-24-24-26 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM: Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á eftir A.1/á undan A.2): Aukið svona út í annarri hverri umferð 11-12-12-12-12 sinnum, aukið síðan svona út í 4. hverri umferð 5-5-6-6-7 sinnum (alls 16-17-18-18-19 sinnum). ALLAR STÆRÐIR: Þegar útaukningu er lokið eru 212-224-236-248-252-264 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 13-15-15-17-17-18 cm frá miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-66-70-74-76-80 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-23-25-29-32 cm frá skiptingu prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 164-172-184-192-204-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 nýjum lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 19-22-26-30-35-39 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-26-30-34-39-43 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lepetitbucheronsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.