Sara skrifaði:
Vad betyder detta "Sätt 2 markörer i arbetet utan att sticka maskorna"? Betyder det att man helt enkelt trär på markören på stickan och flyttar över den varje varv så att den alltid är mellan samma maskor men alltid på det nya varvet? Jag har försökt klura ut varför man behöver dem för Nos & Huvud, men blir inte riktigt klok på det. Man ser ju på nästa varv att man gjort en ökning genom omslag eftersom ökningen inte ser ut som en vanlig rät maska. Tack på förhand! :)
02.03.2020 - 17:03DROPS Design svaraði:
Hej Ja då sätter du bara markörer i arbetet utan att sticka ett varv när du gör det (det är bara för att nästa förklarade varv i texten ska vara från avigsidan). Markörerna flyttar du bara med upp i kommande varv och du ser i texten att de markerar var du ska göra ökningar på de nästa 2 varven. Lycka till!
03.03.2020 - 14:38
Johanna skrifaði:
Hallo! Ich wollte diesen tollen Hund stricken, da ein Familienmitglied jetzt schwanger ist. Aber ich denke, dass 50 cm vielleicht ein bisschen zu gross für das Baby wird, auch wenn das Baby 1-2 Jahre alt ist... Könnte ich die Beschreibung einfach halbieren, oder wird das nicht funktionieren? Müsste ich dann auch was anderes beachten, zB dünnere Wolle und Nadeln? Vielen Dank im Voraus!
02.03.2020 - 16:56DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, wenn Sie eine dünnere Wolle stricken, dann wird die Maschenprobe unterschiedlich und der Hund kleiner - Siehe FAQ, Maschenprobe hier - Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne weiter helfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
03.03.2020 - 09:33
Johanna skrifaði:
Hej! Tänkte sticka denna fina hund då en familjemedlem väntar barn. Tänker att 50 cm blir väldigt stort för en liten bebis, även när bebisen är några år gammalt. Kan man halvera beskrivningen rätt av eller kommer det att bli konstigt? Måste jag tänka på något annat i sådana fall, typ att använda tunnare garn och stickor? Tack så mycket på förhand!
02.03.2020 - 16:54DROPS Design svaraði:
Hej Johanna, tycker inte den är för stor ;) Men du kan ju också sticka Arnie the Caterpillar fast lite kortare
03.03.2020 - 15:29
Ida skrifaði:
Har ni någon video där ni visar hur ni maskar av med omslag för att avmaskingskanten inte ska strama (som ni beskriver i kopplet)?
22.03.2018 - 11:43DROPS Design svaraði:
Hej Ida, ja här har du den :)
How to bind off with yarn overs (yo) from Garnstudio Drops design on Vimeo.
22.03.2018 - 12:08
Manu skrifaði:
Hallo, danke für die schnelle Antwort. Ich habe nochmal eine Frage bezüglich der Beine. Wenn ich beim Aschlagsfaden zusammenziehe sind noch 2 Seiten offen. Wird dann die eine Seite zusammengenäht? Dann mit Watte befüllt und dann angenäht? Danke
08.12.2017 - 08:57DROPS Design svaraði:
Liebe Manu, ja genau so werden die Beinen zusammen- bzw angenäht. Viel Spaß beim stricken!
08.12.2017 - 13:30
Manu skrifaði:
Hallo, ich habe trotz des verschränkt links abstricken der Umschläge Löcher in der Schnauze.. Ist das normal oder mache ich etwas falsch????
19.11.2017 - 19:54DROPS Design svaraði:
Liebe Manu, versuchen Sie die Umschläge nicht zu locker zu stricken, sonnst können Sie auch eine andere Zunahmetechnik benutzen. Viel Spaß beim stricken!
20.11.2017 - 09:46
Gisele Tinel skrifaði:
Oh c'est adorable ! Y a-t-il d'autres modèles d'animaux, ou de jouets ? Merci d'avance.
29.09.2017 - 12:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tinel et merci. Vous trouverez ici tous nos modèles de jouets au tricot ou au crochet. Bon tricot!
29.09.2017 - 13:34
Allie Woof the Dog#dropsalliewoofthedog |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður hundur / leikfang í garðaprjóni og perluprjóni með hálsól úr DROPS Big Merino.
DROPS Children 30-24 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HUNDUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hundurinn er prjónaður í stykkjum fram og til baka sem saumuð eru saman í lokin. NEF OG HÖFUÐ: Fitjið upp 8 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 lykkju slétt = 15 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 13 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 14 sinnum og endið með 1 lykkju slétt = 29 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): 1 lykkja slétt, 27 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), 1 lykkja slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 13 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 44 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið þar til nefið mælist ca 4 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 2 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrra prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 19 lykkjur í umferð, seinna prjónamerkið er sett á eftir næstu 6 lykkjur í umferð (á eftir seinna prjónamerki eru 19 lykkjur á prjóni). Prjónið síðan sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju á undan fyrra prjónamerki og 1 lykkja á eftir seinna prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu = 48 lykkjur í umferð. Haldið áfram í garðaprjón þar til höfuðið mælist 11 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman) = 40 lykkjur. Prjónið 5 umferðir slétt (síðasta umferðin er frá röngu). Prjónið síðan búk eins og útskýrt er að neðan (án þess að klippa þráðinn frá). BÚKUR: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 12 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir ca 3. hverja lykkju) = 52 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 sléttri kantlykkju í hvorri hlið. Prjónið síðan A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 mælist 9 cm (allt stykkið mælist ca 22 cm), prjónið A.2 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 mælist 15 cm (allt stykkið mælist ca 37 cm), setjið 6 prjónamerki frá réttu þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 10 lykkjurnar í umferð, prjónið setjið síðan 5 næstu prjónamerki með 8 lykkja millibili (á eftir síðasta prjónamerki eru 2 lykkjur á prjóni). Haldið áfram með A.2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5 sinnum = 22 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11 lykkjur eftir í umferð. Hundurinn mælist ca 41 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan skott eins og útskýrt er að neðan (án þess að klippa þráðinn frá). SKOTT: Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 11 lykkjur þar til skottið mælist ca 8 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í lok hverrar umferðar með því að prjóna síðustu 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (skottið mælist ca 11 cm). Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Allur hundurinn mælist ca 52 cm með skotti. EYRA: Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei og prjónið garðaprjón. JAFNFRAMT eftir 2 umferðir í garðaprjóni er aukið út um 1 lykkju hvoru megin innanverðri 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 15 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til eyrað mælist 6 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lok umferðar með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjur í umferð slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir. Fækkið nú lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum = 7 lykkjur eftir í umferð. Fellið af. Klippið þráðinn nægilega langt frá til að geta saumað eyrað niður. Prjónið hitt eyrað á sama hátt. FÓTUR: Fitjið upp 12 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei. UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 18 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 16 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), 1 lykkja slétt. Prjónið síðan A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Fellið af þegar fóturinn mælist ca 6 cm. Klippið þráðinn nægilega langan frá til að geta saumað fótinn við búkinn. Þræðið þrá upp og niður í gegnum lykkjurnar meðfram uppfitjunarkanti neðst niðri á fæti, herðið á þræði þannig að opið lokist og festið þráðinn vel. Prjónið annan fót á sama hátt. Prjónið síðan 2 fætur alveg eins, en prjónið A.2 í stað A.1 (= alls 4 fætur, 2 með A.1 og 2 með A.2). FRÁGANGUR: Saumið hundinn saman alla leið frá nefi, síðan meðfram búk og aftast á skotti – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir smá op við miðju að neðan til að geta fyllt með vatti. Fyllið hundinn með vatti og saumið saman opið saman. Saumið út 2 augu með litnum svartur mitt á höfuðið á hundinum og nef með litnum mokka framan á trýni – sjá ljósmynd. Saumið eyru hvoru megin á höfði (það eiga að vera ca 5 cm á milli eyrna efst á höfði). Fyllið hvern fót með vatti og saumið fæturna undir búk á hundinum – sjá ljósmynd fyrir staðsetningu. HÁLSÓL: ATH: Vegna lengdar á hálsól má einungis gera ólina fyrir börn yfir 3 ára að aldri: Fitjið upp 160 lykkjur á prjón 4,5 með litnum mokka. Prjónið 6 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Brjótið uppá annan endann á hálsólinni tvöfalt saman þannig að það myndist lítil lykkja (nægilega stór fyrir hönd sem á að halda í ólina) og saumið niður með smáu spori. Leggið hinn endann á ólinn í kringum hálsinn á hundinum og saumið niður með nokkrum smáum sporum. LÍTIÐ HEKLAÐ BLÓM: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum plóma og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: * Heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um hringinn *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju um hringinn = 5 blöð. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Saumið blómið niður sem skraut á hálsólina við lykkju fyrir hönd. STÓRT HEKLAÐ BLÓM: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: Hekli 1 loftlykkju, heklið 5 fastalykkjur um hringinn, skiptið yfir í litinn dökk fjólublár og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið með litnu m dökk fjólublár í hverja fastalykkju frá fyrri umferð þannig: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 1 stuðull, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð í byrjun umferðar = 5 blöð. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Saumið blómið niður sem skraut á hálsólina við lykkju fyrir hönd. Heklið annað blóm á sama hátt og saumið niður á hálsólina. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsalliewoofthedog eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.