Maria Angeles skrifaði:
Me gustaría hacer este padrón pero yo voy a comprar lanas a una casa que las tienen de vosotros y no me saben enseñar
03.03.2024 - 19:15
Maria Angeles skrifaði:
Me gusta muchísimo este patrón pero no sé cómo hacerlo porque yo voy a un sitio a comprar la lana y no me enseñan nada a ver si podían ayudarme
03.03.2024 - 19:14
Isabelle skrifaði:
Je souhaite doublé le fils. (car trop tranrparent ) que me conseillez vous comme taille d'aiguilles s'il vous plait ? merci
13.09.2023 - 12:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, si vous doublez le fil, vous risquez de ne pas avoir le bon échantillon, et il vous faudra donc recalculer entièrement les explications par rapport à votre propre échantillon pour avoir les bonnes mesures. Essayez de tricoter le fil en double en faisant différents essais et différentes tailles d'aiguilles (7, 8, 9 par exemple) pour trouver la texture qui vous convient, et, sur la base de ce nouvel échantillon, vous pourrez trouver des modèles correspondants (utilisez alors le convertisseur ou cette leçon pour connaître votre nouvelle quantité nécessaire). Bon tricot!
13.09.2023 - 13:24
Susan Haugaard skrifaði:
Hej, strikker str XL, der er 75 masker, jeg skal tage ud 8 gange i hvert vrang parti. Det giver til sidst 1 ret og 9 vrang * 37= 333 masker! I følge Jeres opskrift, skal der være 1 ret og 10 vrang, men I får det til KUN 275 masker. Jeg forstår det ikke.
01.09.2020 - 20:26DROPS Design svaraði:
Hej Susan, du har 75 masker, starter med at strikke 1ret/2vrang (25 gange), tager ud 8 x 25= 200 = ialt 275 masker. God fornøjelse!
02.09.2020 - 15:21
Maria José skrifaði:
Gostaria saber como onde encontro lojas telefone sait dessas blusas linda tem watsap desse já agradeço....
14.05.2020 - 02:47DROPS Design svaraði:
Obrigado pelo seu interesse em nossos modelos e fios! Basta clicar no link abaixo para ver a lista de lojas DROPS. e contactar qualquer uma delas por telefone ou por whatsapp. https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=28&cid=28
15.05.2020 - 10:54
Arlenproject skrifaði:
Buonasera, vorrei sapere se il giro a maglia diritta (che si ripete ogni 8 ferri) va fatto anche nella scollatura o se va iniziato dopo che si e' passati ai ferri piu grossi. La parte della scollatura mi viene troppo alta come fosse un collo alto. Grazie per l'aiuto
06.12.2019 - 17:00DROPS Design svaraði:
Buongiorno Arlenproject. Il giro a diritto viene ripetuto ogni 8 giri per tutto lo sprone. Buon lavoro!
09.12.2019 - 16:38
Fleur de Lavande#fleurdelavandesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Peysa með hringlaga berustykki, stroffi og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 184-4 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman er prjónuð 1 umferð slétt yfir allar lykkjur í 8. hverri umferð á öllu berustykki. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan hverri sléttri lykkju umferðina hringinn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt ef prjónuð er slétt umferð – lesið LEIÐBEININGAR). Næsta skipti sem aukið er út í hverri brugðinni mynstureiningu er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri sléttri lykkju, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (snúinn slétt ef prjónuð er slétt umferð). Haldið svona áfram með útaukningu til skiptis á undan og á eftir sléttum lykkjum. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 207 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 41,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 41. og 42. lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað á hringprjóna, ofan frá og niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 69-69-75-75-78-84 lykkjur á stutta hringprjóna 4,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan einungis með 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Haldið áfram með stroff – lesið LEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu – lesið ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist: S: 8, 10, 13, 16 og 19 cm = 207 lykkjur. M: 8, 10, 12, 15, 18 og 21 cm = 230 lykkjur. L: 8, 10, 13, 16, 19 og 23 cm = 250 lykkjur. XL: 8, 10, 12, 15, 18, 21 og 25 cm = 275 lykkjur. XXL: 8, 10, 13, 16, 19, 23 og 27 cm = 286 lykkjur. XXXL: 8, 10, 13, 16, 19, 23 og 28 cm = 308 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með stroff með 1 lykkju slétt og 8-9-9-10-10-10 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5-6-6-5-10-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 = 212-236-256-280-296-312 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 42-48-52-56-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 64-70-76-84-90-98 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-48-52-56-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), og prjónið þær 64-70-76-84-90-98 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-168-184-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (ef prjónfestan passar á hæðina þá jafngildir þetta 10 útaukningsumferðir í hvorri hlið) = ca 180-192-208-224-240-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan laust af með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-48-52-56-58-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-54-60-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-10-12-14-15-15 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-35-33 cm frá skiptingu undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið síðan laust af með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fleurdelavandesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.