TOUSANNA skrifaði:
Het is voor mij niet helemaal duidelijk wanneer voeg ik de 2 markeer draden in na het breien van de pas ??
08.01.2018 - 17:17DROPS Design svaraði:
Hoi Tousanna, Inderdaad na het breien van de pas voeg je de markeerdraden in. De steken van de mouwen staan op dat moment op hulpdraden en je hebt nieuwe steken opgezet in de zijkant op het lijf onder de mouwen. De markeerdraden die je dan invoegt, geven de zijkanten aan.
09.01.2018 - 21:44
Malene Nielsen skrifaði:
Tror i skal rette en del i opskriften. der er flere steder hvor maskeantal og cm ikke passer
08.01.2018 - 15:57
Gry skrifaði:
Jeg øgede ærmelængden med 4 cm, og alligevel stopper de lige under albuen. Det giver slet ikke mening, at ærmerne skal være 27 cm på en XXXL, når de er 34 cm på en S. Jeg strikkede XL, og tillagde 4 cm på både ærmer og krop. Den er tættere på en L i størrelse end en XL. Halsen er også meget smallere end på billedet.
07.12.2017 - 11:21
Ingeborg skrifaði:
Als ik de mouwen ga breien, blijf ik twee grote gaten in het werk houden aan beide zijden van de zes extra opgezette steken. Hoe kan ik deze zo klein mogelijk houden?
06.12.2017 - 23:33DROPS Design svaraði:
Hallo Ingeborg, Deze gaten naai je naderhand dicht door de opgezette steken onder de mouw bij het pand en de mouw aan elkaar te naaien.
07.12.2017 - 12:18
Linda skrifaði:
I am knitting size L and have 272 stitches before splitting for arms. When I follow the instructions to split for arms they are only for 266 stitches and I have an extra 6 stitches?
30.11.2017 - 17:24DROPS Design svaraði:
Dear Linda, in size L there are 256 sts after A.1, then you increase 5 sts evenly 2 times: 256 + 10 = 266 sts. Happy knitting!
01.12.2017 - 08:51
Susanne Christensen skrifaði:
Hej. Jeg tænker, I er nødt til at rette opskriften til, så man ikke er i tvivl, hvor mange masker der skal øges efter diagram 1A. Det står meget kringlet - og faktisk fremgår det, at man skal ende med 288 masker og ikke 266 masker.
01.11.2017 - 21:52
Marie skrifaði:
Bonjour pour ce modèle il me faut 8 pelotes de laine ... si je change pour de la big merino je prévois 8 pelotes aussi ??? merci pour votre aide !
23.09.2017 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, quand on choisit une alternative, on doit recalculer le métrage, vous trouverez toutes les explications ici. Bon tricot!
25.09.2017 - 10:02Tatiana skrifaði:
Thanks a lot!!!
20.09.2017 - 14:44Tatiana skrifaði:
Oh, sorry, i missed that my size will have 266 st (but full amount will be 272 st === 256+16=272) and it`s wrong too
20.09.2017 - 10:34DROPS Design svaraði:
See answer below in size L :)
20.09.2017 - 14:00Tatiana skrifaði:
Hello, help me please. I finished entire diagram A1 (for size L=256 st), and now i must do increases, 8 st every 5 row for 2 times, and amount of my stithes should become 288, but i will increase only 16 stitches. Where i am wrong?
20.09.2017 - 10:25DROPS Design svaraði:
Dear Tatiana, after A.1 there are 256 sts, you then increase 5 sts (5 sts in size M and 8 sts in 3 larger sizes) every 5th round 2 times (= + 10 sts) = 266 sts. Happy knitting!
20.09.2017 - 14:00
Ashbury Park#ashburyparksweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 183-20 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan = byrjun á umferð. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur brugðið til baka. Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 26,6. Í þessu dæmi er prjónað til skiptis ca 25. og 26. hver lykkja og 26. og 27. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 26. og 27. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki er staðsett hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjón. Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með litnum milligrár Air. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-4-5-4-5-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 77-80-83-88-91-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Til að flíkin passi betur er prjónuð lítil UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, aftan í hnakka. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-10-13-14-17-18 lykkjur jafnt yfir = 84-90-96-102-108-114 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið og aukið út eftir mynsturteikningu A.1 (14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum) – lesið LEIÐBEININGAR! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 224-240-256-272-288-304 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-23-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan með litnum milligrár til loka. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S: Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 220 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá uppfitjunarkanti. Stærð S er nú lokið, haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ M, L, XL, XXL, XXXL: Aukið út 6-5-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í 5.-5.-5.-7.-6. hverri umferð 1-2-2-2-3 sinnum = 246-266-288-304-328 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-28-30-32-34 cm. ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-35-38-42-46-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 63-71-77-85-92-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 32-36-39-43-46-50 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-154-170-186-204-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm og 20 cm = 150-166-182-198-216-232 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 30-30-30-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 180-196-212-232-252-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 47-52-56-59-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-58-64-67-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð 9-11-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-46 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-32-32-30-28-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-4-2-3-2-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Stykkið mælist ca 40-38-38-36-34-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ashburyparksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.