DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ashbury Park

Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 185-12
DROPS Design: Mynstur ai-097
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-450-500-550 g litur 04, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan = byrjun á umferð.
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur brugðið til baka.
Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 26,6.
Í þessu dæmi er prjónað til skipist ca 25. og 26. hver lykkja og 26. og 27. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 26. Og 27. Hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

AFFELLING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki er staðsett hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjón. Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með litnum milligrár Air. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-4-5-4-5-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 77-80-83-88-91-96 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Til að flíkin passi betur er prjónuð lítil UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, aftan í hnakka.
Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 7-10-13-14-17-18 lykkjur jafnt yfir = 84-90-96-102-108-114 lykkjur.
Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig:
Prjónið og aukið út eftir mynsturteikningu A.1 (14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum) – Lesið LEIÐBEININGAR!
Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 224-240-256-272-288-304 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-23-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan með litnum milligrár til loka. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S:
Haldið áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan.

STÆRÐ M, L, XL, XXL, XXXL:
Aukið út um 6-5-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í 5.-5.-5.-7.-6. hverri umferð 1-2-2-2-3 sinnum = 246-266-288-304-328 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-28-30-32-34 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-10-10-8-14 lykkjur jafnt yfir = 236-258-276-298-312-342 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 35-38-41-45-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-82-90-96-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 36-39-41-45-48-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 154-166-180-196-212-234 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 142-154-168-184-200-222 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 31-33-32-32-32-32 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 10-14-16-16-20-22 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-200-220-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 47-52-56-59-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-58-64-67-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur.
Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu eru felldar af 2 lykkjur undir ermi – lesið AFFELLING. Fellið svona áf í 9.-6.-5.-5.-4.-4. hverri umferð 9-11-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-46 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-4-2-3-2-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 47-45-45-43-41-41 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.04.2021
Ný mynsturteikning A.1 í stærð XL+XXL+XXXL (búið er að taka eitt x úr síðustu umferð)
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1 í báðum stærðum (umferð með 7. útaukningu og umferðum eftir það)
Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
FRAM- OG BAKSTYKKI:...Haldið áfram þar til stykkið mælist 31-33-32-32-32-32 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 10-14-16-16-20-22 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-200-220-244 lykkjur.

Mynstur

symbols = milligrár
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Julia wrote:

For the body the pattern says ‘Work 1 round where you increase 10-12-16-16-20-22 stitches evenly on round = 152-166-184-200-220-244 stitches’. But 166 stitches (for medium) are not divisible by 4 and so the rib does not work - it ends up with knit 2 followed by another knit 2 at the end of each row. Should it be increase 14 stitches to 168? Thanks

19.12.2022 - 22:43

country flag Marie-Claude Roy wrote:

Je ne comprends pas à quoi sert l’explication intitulée: AUGMENTATIONS (côtés dos & devant) à effectuer de part et d’autre du marqueur étant donné qu’il n’y a que des DIMINUTIONS sous la section DOS & DEVANT (à part un tour d’augmentations à intervalles réguliers à la fin)

01.12.2021 - 21:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, il semble que cette section devrait effectivement être supprimée, nos stylistes vont vérifier cela, merci pour votre retour. Bonne continuation!

02.12.2021 - 08:56

country flag Marie-Claude Roy wrote:

En fait c’est au 27e rang, la 13e maille (dernière sur la gauche).

26.11.2021 - 13:20

DROPS Design answered:

Merci pour la précision, cette maille me paraît juste, mais je transmets votre remarque à nos stylistes, encore merci.

26.11.2021 - 15:58

country flag Marie-Claude Roy wrote:

Il persiste toujours une erreur dans le jacquard…. 26e rang de A1 XL XXL XXXL, il y a un x de trop. Dommage, je m’en suis rendue compte plusieurs rangs plus tard et n’ai pas eu le cœur à défaire….

26.11.2021 - 04:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, le 26ème rang correspond au motif du pull et de l'autre taille - l'erreur corrigée se trouvait au dernier rang de A.1. Ou bien à quelle maille pensez-vous? Bon tricot!

26.11.2021 - 07:53

country flag Nele wrote:

Hallo bei der letzten Reihe von A1 bei XL-XXXL ist ein x zuviel 4 Masche. Das Muster passt bei S-L

16.01.2021 - 13:52

DROPS Design answered:

Liebe Nele, danke für den Hinweis, Diagram wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

27.04.2021 - 09:08

country flag Louise Lacelle wrote:

Bonjour, j’aimerais avoir plus d’explication sur les cotes 2/2. À la fin des manches et des devant/dos. Je ne comprend pas trop quand je dois faire les jetés! Merci!

07.12.2020 - 18:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacelle, cette vidéo montre comment rabattre avec des jetés, cette technique permet que les mailles rabattues restent souples et ne resserrent pas l'ouvrage (le bas des poignets et le bas du pull ici). Faites simplement 1 jeté toutes les 4 mailles et rabattez ce jeté comme si c'était une maille normale (la vidéo montre comment faire). Bon tricot!

08.12.2020 - 08:30

country flag Julia wrote:

SIZES M, L, XL, XXL, XXXL: Increase 6-5-8-8-8 stitches evenly on every 5th-5th-5th-7th-6th round, 1-2-2-2-3 times = 246-266-288-304-328 stitches. Continue until the piece measures 27-28-30-32-34 cm. ALL SIZES: Knit 1 round where you increase 12-12-10-10-8-14 stitches evenly on round = 236-258-276-298-312-342 stitches. Is this correct? For size M I will have 266 stitches after 1st paragraph but 258 after 2nd despite increasing 12. Is it decrease instead? Thank you

22.03.2020 - 19:26

DROPS Design answered:

Dear Julia, when piece measures 27 cm in size M you have 234 sts (Size M to XXXL = size M is here 1st size) then you work 1 round increasing 12 sts evenly = 258 sts (size M is here 2nd size again). Happy knitting!

23.03.2020 - 10:48

country flag Susan England wrote:

Still having problems with this pattern. Do I increase each side of the marker? And do I increase 6 pattern stitches etc?

08.11.2019 - 22:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs England, not sure what you mean here sorry. You first increase as shown in the diagram for your size. Then, in size M, you increase 6 sts evenly (to get 246 sts in total), these stitches are increased evenly (a href="https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=28&cid=19">read more here) and are worked with the background colour (coloured pattern is now finished). Hope it helps. Happy knitting!

11.11.2019 - 10:15

country flag Eva-Britt Gundersen Ovesen wrote:

Hei jeg fant ut det med oppskriften,hadde oversett at den biten i mønstret som gjelder for alle str,untatt small.Så da ble L det som er xl.Sånt skjer😀

04.11.2019 - 10:48

country flag Susan England wrote:

How do I incorporate the increase stitches into the pattern? I seem to be losing the pattern as it increases

03.11.2019 - 18:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs England, the increases for yoke are included in the diagram A.1, make the yarn overs with the background colour and work the new stitches as shown in diagram. Do not hesitate to add markers between each repeat so that you can check number of stitches and pattern on every round. Happy knitting!

05.11.2019 - 07:53