Always Winter |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 179-36 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni hvort sem liturinn sé merktur með brugðið – ATH: Lykkjum er fækkað í hverri umferð merktri með ör. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 7. og 8. hver lykkja saman. LEIÐBEININGAR: Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 12-14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með þessum litum: Prjónið 2 umferðir með litnum sinnepsgulur, 2 umferðir með litnum natur, 2 umferðir með litnum sinnepsgulur og síðan er haldið áfram með litinn natur þar til stroffið mælist 4-4-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkar um 8-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 56-64-64-64 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 7-8-8-8 mynstureiningar 8 lykkjur) – lesið MYNSTUR að ofan. Í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er fækkað um 0-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 56-60-60-60 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 14-15-15-15 mynstureining 4 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 7-7-7-7 mynstureiningar 8 lykkjur). Í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er fækkað um 0-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 56-56-56-56 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (= 9-9-9-9 mynstureiningar 6 lykkjur). Í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er fækkað um 2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-54-54-54 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn (= 12-13-13-13 mynstureiningar 4 lykkjur). Í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er fækkað um 6-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-52 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-26 cm. Haldið áfram með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir (aukið er út með því að slá einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat)= 48-52-56-56 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 27-27-28-29 cm. Í næstu umferð verður að stilla af þannig að það komi eitt stórt blóm ca fyrir miðju ofan á fæti, snúið við þannig að það passi lykkjunum sem settar eru á þráð þannig – haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 lykkjur á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýring að ofan. Þegar hælúrtakan hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar upp 11-12-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl og 24-26-28-28 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti. Fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjurnar á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-8-7-5 sinnum = 48-48-54-60 lykkjur. Prjónið 0-0-3-9 umferðir með litnum ljós blágrár og sléttprjóni. Prjónið síðan A.6 hringinn (= 8-8-9-10 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er A.7 prjónað hringinn (= 11-12-13-14 mynstureiningar 4 lykkjur). Í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er fækkað um 4-0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56 lykkjur. Prjónið síðan með litnum ljós grágrænn og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-4-5-5 cm til loka) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við þessi tvö prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6-7 sinnum = 8-8-8-8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Lilyrose wrote:
Bonjour, Merci beaucoup pour tous vos modèles, malheureusement, en ce qui concerne les chaussettes, elles sont pratiquement toutes sur aiguilles doubles pointes, et je n'y arrive pas. Peut-être un peu plus de modèles avec 2 aiguilles seraient les bienvenues!... Merci
05.03.2018 - 16:56DROPS Design answered:
Bonjour Lilyrose, nous avons quelques modèles de chaussettes tricotées en allers et retours que vous pouvez retrouver sur notre site parmi tous les modèles (voir ici vous les reconnaitrez à la façon transversale de les tricoter. N'hésitez pas à vous aider de nos vidéos pour apprendre à tricoter en rond sur les aiguilles doubles pointes ou pourquoi pas en rond avec la technique du magic loop. Bon tricot!
06.03.2018 - 09:35