DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-45
DROPS Design: Mynstur nr u-802
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 - 30 cm
Hæð á sokk: 24 - 24 - 25 - 26 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100-100 g litur nr 77, ljós eik
50-50-50-100 g nr 13, kirsuber
50-50-50-50 g litur nr 53, koksgrár
50-50-50-50 g litur nr 68, ljós himinblár
50-50-50-50 g litur nr 01, natur
50-50-50-50 g litur nr 45, ljós ólífa
50-50-50-50 g litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50 g litur nr 65, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynstur er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 7-7-8-8l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 7-7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 12-14-14-14 l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um tá):
Fækkið l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum kirsuberjarauður. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 60-60-64-64 l. Prjónið A.1 (= 4 l) alls 15-15-16-16 sinnum á breiddina. Í síðustu umf A.1 er fækkað um 0-0-4-4 l jafnt yfir = 60 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 0-0-1-3 umf með litnum ljós himinblár. Prjónið A.2 (= 10 l) alls 6 sinnum á breidd, setjið 1 prjónamerki eftir 25 l (þ.e.a.s. mitt í 3. mynstureiningu á A.2 = merkir miðju að framan). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 0-0-2-3 umf með litnum himinblár. Prjónið A.3 (= 4 l), í síðustu umf á A.3 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 56 l. Prjónið A.4 (= 7 l) alls 8 sinnum á breidd. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17 cm. Prjónið síðan A.5 (= 6 l), í fyrstu umf er fækkað um 2 l jafnt yfir = 54 l. Í umf 3 er fækkað um 2-0-0-0 l jafnt yfir = 52-54-54-54 l. Í umf 6 er fækkað um 4-0-0-0 l jafnt yfir = 48-54-54-54 l. Mynsturteikning A.5 er prjónuð 8-9-9-9 sinnum hringinn. Prjónið síðan A.6 (= 4 l), í fyrstu umf er fækkað um 0-2-0-0 l eða aukið út um 0-0-2-2 l jafnt yfir = 48-52-56-56 l. Mynstur A.6 er prjónað 12-13-14-14 sinnum hringinn. Prjónið 1 umf með litnum ljós eik. Stykkið mælist ca 24-24-25-26 cm.

Stillið umf af þannig að byrjað er á 24-26-28-28 l frá prjónamerki fyrir miðju að framan. Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 l á þráð (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l = miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með ljósri eik og sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hæl-l í 5-5½-6-6½ cm.
Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl með ljósri eik og 24-26-28-28 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón með litnum ljós eik og fækkið l hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu l á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu l á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið l svona í annarri hverri umf alls 5-8-7-5 sinnum = 48-48-54-60 l. Prjónið síðan með litnum ljós eik þar til stykkið mælist ca 9-10-13-15 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 13-14-14-15 cm). Prjónið A.7 (= 6 l) alls 8-8-9-10 sinnum hringinn. Í síðustu umf í A.7 er fækkað um 4-0-2-4 l jafnt yfir = 44-48-52-56 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.8 (= 4 l) alls 11-12-13-14 sinnum hringinn. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn kirsuberjarauður. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 5-6-6-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt, en þegar fyrra prjónamerki er sett í mynstur A.2 er það sett á eftir 35 l (þ.e.a.s. mitt í 4. mynstureiningu á A.2 = merkir miðju að framan).

Mynstur

symbols = litur ljós eik
symbols = litur kirsuber
symbols = litur koksgrár
symbols = litur ljós himinblár
symbols = litur natur
symbols = litur ljós ólífa
symbols = litur sinnepsgulur
symbols = litur gallabuxnablár
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Minnas Sleepy Sheep

Tina, Germany

Sleepy Sheep

Silvia Stasch, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Marjolaine Duchesne wrote:

J’ai tout acheté ma laine pour faire ce modèle, mais j’ai du fil A, au lieu du fil B, une erreur. Après avoir presque terminé mon premier bas, j’ai vu que c’était trop petit. Je voudrais tellement réussir ce modèle, auriez vous une solution ´à mon problème? Pensez vous qu’en prenant la plus grande taille indiquée, ça donnerait la petite taille? Merci à l’avance !

24.02.2021 - 15:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duchesne, vérifiez bien votre échantillon, vous devez avoir 22 m x 30 rangs jersey et jacquard pour 10 x 10 cm, adaptez la taille de vos aiguilles si besoin - pensez à bien tricoter le jacquard souplement, les fils derrière ne doivent pas être trop tirés pour conserver la souplesse. N'hésitez pas à montrer votre ouvrage à votre magasin (même par mail), on saura vous apporter des conseils plus personnalisés. Bon tricot!

25.02.2021 - 06:58

country flag Marjan Roest wrote:

Moet ik bij deze veelkleurige sok de draden steeds meenemen of bij wisseling doorknippen als er met twee nieuwe kleuren moet begonnen? Heel gedoe !! Bvd.

22.07.2020 - 09:40

DROPS Design answered:

Dag Marjan,

Het kan beide en het hangt er een beetje vanaf wat je zelf prettig vindt. Als je van kleur moet wisselen en de kleur wordt lang niet gebruikt, kan je hem afknippen en afwerken. Als je de betreffende kleur binnenkort weer nodig hebt, kan je hem in de hoogte meenemen.

23.07.2020 - 12:12

country flag Veronica wrote:

Ho appena finito di fare questo modello, purtroppo le misure dal tallone alla punta non mi sono risultate corrette, ho misurato 10 cm dal segnapunti sul tallone ma la misura risultante è di molto superiore alla taglia indicata. Non capisco dove ho sbagliato, sapete darmi qualche indicazione?

10.10.2019 - 22:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Veronica, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Ha misurato 10 cm dal tallone e poi iniziato a lavorare A.7? Buon lavoro!

11.10.2019 - 09:16

country flag Orysia wrote:

How do I avoid the jog in back of socks where contrast colours change?

17.09.2018 - 01:17

country flag Kniterella wrote:

I have almost knitted A1 chart, Tension is out 24 stitches on 3.50mm needles measured over 4" then on front half of sock on rnd 5 of A1. I am knitting them a bit bigger in calf I intend to sell the socks in my Etsy shop. What should I do. I'm a loose Knitter but new to Continental. I have been knitting English throwing yarn with rt finger but not yarn over finger. Please advise, shpuld I frog it all n start again? The knitted fabric feels just right am weaving in CC yarn.

09.09.2018 - 02:00

country flag Tarja wrote:

Karisma is only 100 % wool. How good It is for socks, because it does not have any polyamide?

15.12.2017 - 23:19

DROPS Design answered:

Dear Tarja, you can use Karisma for the socks. If you want a strong yarn you can choose a yarn with Polyamide such as Fabel (Superwash) or Nord (not Superwash) but will have then to adjust the pattern since it's not the same yarn group. Happy knitting!

18.12.2017 - 08:53

country flag Hélène wrote:

Bonjour! Ce patron est vraiment très joli!

09.01.2017 - 19:32

country flag Michèle Balon wrote:

Je crains qu'il y ait une erreur de quantité pour ce joli modèle : vous indiquez en effet 100 g de chêne clair, or les motifs de cette couleur ne sont pas nombreux et semblent utiliser peu de laine. Par contre 50 g de naturel paraissent nettement insuffisants et le rose aussi, je pense... Etant tricoteuse, je vais corriger de moi-même mais ce serait bien de vérifier pour modifier les quantités sur le modèle. Merci et bonne journée.

03.12.2016 - 11:01

country flag Jenneke wrote:

Ik vroeg mij af waar je de markeerder voor de hiel plaatst. Meet je vanaf de hiel of vanaf de plaats waar je bent begonnen met licht eiken? Alvast bedankt!

11.11.2016 - 10:49

DROPS Design answered:

Hoi Jenneke. Je plaatst de markeerder zoals er staat in het patroon: Plaats 1 markeerder aan elke kant van de 24-26-28-28 st op de bovenkant van de voet. Je doet dit nadat je de st hebt opgenomen in licht eiken. En dan MEET NU HET WERK VANAF HIER.

11.11.2016 - 15:12

country flag Marjon Peuteman wrote:

Ik heb dit patroon gebruikt om een muts en sjaal voor een klein meisje mee te breien. Ik heb Cotton Merino gebruikt ipv Karisma en het resultaat was zeer geslaagd. het was ontzettend leuk om te breien met al die vrolijke kleuren en leuke motieven, ik werd er helemaal happy van :-)

02.10.2016 - 09:29