Susan Perdue skrifaði:
Hello! Where can I find the size guide for this jumper? Thanks!
11.04.2025 - 20:08DROPS Design svaraði:
Hello Susan Perdue! Sizes are: S - M - L - XL - XXL - XXXL. Also, look measurements chart at the end of the pattern (cm). Lessons are available at the top of the pattern. Happy knitting!
11.04.2025 - 20:58
Françoise Dumont skrifaði:
Question numéro 2 : Dans le modèle, on trouve les indications suivantes : "Terminer maintenant le dos/le devant et les manches séparément. MESURER DÉSORMAIS L'OUVRAGE À PARTIR D'ICI!!" Et puis plus loin : " "DOS & DEVANT: (...) Tricoter A.5 en rond " Je voudrais savoir si je dois tricoter le dos et le devant séparément, comme indiqué au-dessus, ou en rond, comme indiqué plus bas ? Merci pour votre aide précieuse.
18.02.2024 - 14:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dumont, lorsque vous avez mis les mailles des manches en attente, vous tricotez le bas du pull en rond jusqu'à la fente des côtés, alors vous terminerez le devant et le dos séparément en allers et retours. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:21
Françoise Dumont skrifaði:
Dans le modèle, vous indiquez ceci : "Quand A.4 a été tricoté 1 fois en hauteur, l'ouvrage mesure environ 25-25-26-27-29-31 cm depuis le rang de montage au milieu devant." Je voudrais savoir quel est le rang que vous appelez le rand de montage ? Est-ce que la mesure comprend le col ? Si oui, j'ai suivi vos indications à la lettre, mais je suis largement au-delà des 29 cm de longueur. Merci pour votre aide.
18.02.2024 - 14:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dumont, le rang de montage correspond au tout début du col/du pull, autrement dit, vous avez 3 cm de côtes + les diagrammes A.1 à A.4 = environ 26 cm soit 29 cm de hauteur totale, avez-vous bien vos 28 rangs = 10 cm comme dans l'échantillon? Si ce n'est pas le cas, vous devrez ajuster les augmentations/le jacquard en augmentant plus fréquemment en hauteur pour qu'elles soient toutes terminées au moment de diviser l'ouvrage. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:20
Adriana skrifaði:
Por que en unos patrones se hace aumento con lazadas y luego con el punto de abajo ?
29.12.2023 - 05:18DROPS Design svaraði:
Hola Adriana, cuando haces la hebra retorcida cogiendo el hilo de entre los puntos (hilo horizontal) el agujero quedará más pequeño. Pero puedes hacer la hebra retorcida normal si prefieres; solo cambia cómo de grande es el hueco formado por la hebra.
07.01.2024 - 15:27
Catherine skrifaði:
Bonjour, Je ne trouve pas les grilles A.5A et A.6A pour tricoter les manches dans les explications de ce modèle. Il y a juste A.5 et A.6. Est ce que je dois utiliser ces dernières ? Merci de votre réponse
22.11.2022 - 17:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, tout à fait, les explications ont été corrigées, merci pour votre retour. Bon tricot!
23.11.2022 - 08:58
Therese skrifaði:
Vad menas med "bottenfärgen i mönsterranden"? Bottenfärgen på tröjan skulle jag säga är blå i detta fallet, men det är kanske färgen på maskan rakt under ni menar? Eller något helt annat....
06.06.2022 - 17:31DROPS Design svaraði:
Hej Therese, Bottenfärgen på det varvet du håller på att sticka är den färgen, som du stickar mest på just det varvet :)
08.06.2022 - 14:35
Sara Iglesias skrifaði:
¿Cuántos ovillos necesito de cada color? es que no lo veo por ningún sitio y era para comprar los materiales hoy mismo a poder ser
21.02.2022 - 18:00DROPS Design svaraði:
Hola Sara, mira la leccion DROPS AQUI - ver la sección sobre los materiales. Los ovillos de esta lana tienen 50 g. Saludos!
22.02.2022 - 10:21
Bodil Dalbjerg skrifaði:
Hej Har lige strikket denne i str M i Karisma, men garnmængde er den samme. Jeg købte som står 700 g = 14 ngl blå, men står nu med 4 ngl garn til rest. Det forstår jeg ikke.
04.11.2021 - 14:16DROPS Design svaraði:
Hej Bodil, det er mange som har strikket den og vi har kun hørt en gang før at garnforbruget ikke stemmer, men da fik vi ikke størrelsen. Vi noterer at du strikker str M og har 4 nøgler for meget, så skal vi se på det. Tak for information!
05.11.2021 - 11:56
Anke skrifaði:
Mooi patroon, maar wanneer moet ik beginnen met minderen bij de mouwen?
15.03.2021 - 14:26
Marj Crane skrifaði:
P.S.: I'd like to keep the sleeves as narrow (that is, in the Small-size width) if I can, given the other alterations I've asked about. Is that possible? Many, many, thanks!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
16.12.2020 - 21:15
Lofoten#lofotensweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,6. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. og 9. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum dökk blár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Neðst niðri á fram- og bakstykki skiptist stykkið og það myndast klauf, framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÁLSMÁL: Fitjið upp 104-108-116-124-128-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-96-100-108-112-120 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 23-24-25-27-28-30 mynstureiningar 4 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 161-168-175-189-196-210 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru 31-36-47-51-56-60 lykkjur jafnt yfir (merkt með ör-1 í A.2) = 192-204-222-240-252-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 28-36-38-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-300-320 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka A.3 prjónað hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar 20 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.3 eru 275-300-325-350-375-400 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 1-8-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir = 276-308-336-360-384-408 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 69-77-84-90-96-102 mynstureiningar 4 lykkjur). Í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 10-8-14-8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 286-316-350-368-396-424 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðu að framan. Næsta umferð er prjónuð með litnum dökk blár þannig: 43-47-51-55-60-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 85-94-101-110-120-130 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-47-50-55-60-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-204-222-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum. STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið A.5 hringinn (= 31-34-37-40-44 mynstureiningar 6 lykkjur). Í umferð merktri með ör-5 í A.5 er aukið út um 6-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (á við um S, M og L, passið uppá að aukið sé út um jafn margar lykkjur og á fram- og bakstykki) = 192-208-224-240-264 lykkjur í umferð (96-104-112-120-132 lykkjur á fram- og bakstykki). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn (= 24-26-28-30-33 mynstureiningar 8 lykkjur). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXXL = 288 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 36 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er ekki prjónað A.5 þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. ALLAR STÆRÐIR: = 192-208-224-240-264-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-6-6-4-3 cm frá skiptingu við handveg. Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk blár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.6 er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8-6-8-6-6-6 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 200-220-236-252-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu eru prjónaðar 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (3 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í garðaprjóni á hæðina skiptist stykkið við prjónamerkin fyrir klauf og framstykki og bakstykki eru prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl (ca 5 cm frá skiptingu fyrir klauf) prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 24-26-30-30-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið) = 124-136-148-156-172-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 kantlykkjur slétt í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjum með garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 2 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri skiptingu á milli 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið = 153-168-183-193-213-233 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: = 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið á sama hátt og FRAMSTYKKI. ERMI: Setjið 58-64-74-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur og byrjið umferðina við prjónamerki (= mitt undir ermi). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið A.5 hringinn (= 11-12-14-14-15 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn, en passið uppá að A.6 gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi í öllum stærðum. Þegar A.6 byrjar hefur fækkað um 1-1-2-2-0 sinum mitt undir ermi eins og útskýrt undir ALLAR STÆRÐIR = 64-70-80-80-90 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. í S, L og XL byrjar A.6 með fyrstu lykkju í mynsturteikningu og prjónaðar 8-10-10 mynstureiningar 8 lykkjur. Í stærð M byrjar A.6 með 2. lykkju í mynsturteikningu og í stærð XXL byrjar A.6 með 8. lykkju í mynsturteikningu. STÆRÐ XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 12 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er A.5 ekki prjónað þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón síðan með litnum dökk blár, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu undir ermi er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-18-18-19-21 sinnum = 44-46-48-48-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-32-32-32-31-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-40-40-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lofotensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.