DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 181-12
DROPS Design: Mynstur li-088
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 14 - 15 - 15 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 4305, dökk blár
100-100-100 g litur 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 13-11-13 lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um tá):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkju í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, prjónið miðju lykkjuna í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með natur (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 64 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir (prjónið 15. og 16. hverja lykkju slétt saman) = 60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 5-6-6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 27 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 27 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir 27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 56 lykkjur og stykkið mælist ca 14-15-15 cm. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33 lykkjur ofan á fæti). Nú eru 23 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun umferðar með dökk blár, prjónið A.5A yfir fyrstu 22 lykkjur á hæl, prjónið A.5B (= 1 lykkja) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk blár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum dökk blár. Haldið áfram með A.5A/A.5B fram og til baka yfir 25 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur er sett 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram þegar lykkjum er fækkað fyrir hæl).
Eftir hælúrtöku er fyrsta umferðin prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-11-13 hællykkjur, prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir 33 lykkjur ofan á fæti og prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 70-72-74 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur með A.5 undir fæti, A.3 ofan á fæti og A.2 í hvorri hlið.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 miðjulykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31 miðjulykkjum ofan á fæti slétt saman með litnum natur og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 58-60-62 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð eru sléttar lykkjur prjónaðar með litnum natur yfir 27 miðjulykkjur ofan á fæti (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður).
Prjónið síðan til loka þannig: Haldið áfram með A.5A/A.5B yfir lykkjur undir fæti, haldið áfram með A.2 í hlið, prjónið A.5A yfir næstu 26 lykkjur ofan á fæti, prjónið A.5B (= 1 lykkja), haldið áfram með A.2 í hlið og A.5A yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti.
Þegar stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10-11-12 sinnum = 18-16-14 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-8-7 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = dökk blár
symbols = natur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lofoten Socks

Paulinette, United States

181-12 Lofoten Socks

@saramariashandarbete, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Majbritt Pedersen wrote:

Har strikker hælen, er kommet til at man skal strikke to masker sammen oven på foden for 31 masker og to sammen efter. Dette kan jeg ikke få til at passe me de 27 masker jeg har oven på foden

06.03.2022 - 20:56

DROPS Design answered:

Hej Majbritt, sæt gerne et mærke på hver side af de midterste 31 masker, så bliver det lettere at se :)

09.03.2022 - 10:42

country flag Anita wrote:

Kjempeflotte sokker som er veldig kjekke å strikke! Jeg strikker den største størrelsen og den passer perfekt til min fot, som vanligvis bruker 41. Men jeg måler arbeidet mitt til en strikkefasthet på 27m/10cm (bruker et annet garn enn anbefalt, garnet jeg bruker har oppgitt 22m/10cm med pinne 4, så litt tykkere garn sikkert).

22.01.2022 - 20:15

country flag Janka wrote:

I chose this as my first stranded knitting pattern and picked the 35/37 size of the sock, and I'm so disappointed. I casted on 64 stitches, and when I did first 15 rows of the color work, I saw that the leg of the sock is SO WIDE. Yes, I have my gauge correct - 22 st on 10 cm. Let's do the Match - the leg part should have 60 stitches, that means radius of the leg is 13 cm - my other socks have ~9 cm in leg part. Please fix the pattern for all sizes :/

22.01.2022 - 20:11

country flag Mildred wrote:

Jammer van het vele werk, las al dat t patroon te groot maar het is enkel het been dat veel te wijd is, voet is ok. Hierdoor kan ik noch mijn dochter de sokken dragen 😭

11.11.2021 - 13:10

country flag Sigga wrote:

Kan jeg finde opskriften på norsk?

12.02.2020 - 16:38

DROPS Design answered:

Hej Sigga, ja det er bare at "Endre språk" du finder knappen lige under billedet til venstre :)

13.02.2020 - 11:22

country flag Rose wrote:

This pattern is way too big - 64 stitches is appropriate for fingering yarn, not for the yarn this pattern calls for. Very disappointed

17.12.2019 - 19:29

country flag Susanne wrote:

Strikker den største størrelsen, men formen på sokken blir jo helt feil når man kommer til tå-partiet! Alt for bred! Eg har strikket prøvelapp og har rett strikkefasthet.

08.12.2019 - 10:05

country flag Merete Andersen wrote:

Må jo bli feil i mønster A3 hvis det skal felles midt oppå foten? Skjønner ikke dette helt.

26.09.2019 - 20:46

country flag Hetty wrote:

After a sufficient time to recover from the trauma of not being able to work out this pattern, I undid the entire thing and started again. I avoided the smaller and larger sizes and went for the medium size. This time it worked perfectly. Perhaps the pattern maker needs to put in some effort to ensure the socks turn out as in the photos when making a different size. I don’t know who, in my family, will get these lovely socks because I wasn’t able to make them in my chosen sizing. Cinderella?

30.05.2019 - 14:20

country flag Charlotte wrote:

Hei! Er mønsteret endret etter kommentarene fra de som ikke fikk til helen?

25.11.2018 - 10:12

DROPS Design answered:

Hei Charlotte. Det er ikke noe feil i oppskriften her - hælfellingen stemmer, og blir riktig. Om du refererer til faregene på stripene så kan dette være litt forskjellig i de forskjellige størrelsene. Sånn blir det noen ganger for at masketallet skal gå opp (og for at målene skal bli riktig). Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du tilpasser dette selv, om du ønsker det. Men det er altså ikke noe feil i oppskriften. God fornøyelse.

26.11.2018 - 10:38