Lamure skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas trop comment faire la 3 ème rangee du diagramme du diagramme A3 et enchaîner avec A4. Car le schéma A3 prends plus de 8 mailles et empiète sur le schéma A4.. Comment les intégrer ensemble ? Je vous remercie de la réponse
05.05.2025 - 17:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lamure, au 5ème rang des diagrammes, on va tricoter la dernière maille de A.1 avec les 2 premières mailles de A.2 (le 1er jeté est désormais la dernière maille de A.1), puis on tricote la dernière maille de A.2 avec les 2 premières mailles du A.2 suivant / de A.3, ainsi le 1er jeté est la nouvelle dernière maille de A.2. Bon tricot!
06.05.2025 - 10:05
Livia Bratus skrifaði:
Buonasera e grazie per la precedente risposta. Ho però un altro dubbio : ho iniziato gli aumenti del raglan ma non riesco a capire come inserire il motivo. Ho provato a leggere le risposte già date ma non riesco a capire. Grazie in anticipo per l\'aiuto
15.01.2025 - 21:58
Livia Bratus skrifaði:
Buongiorno ho confrontato la correzione con la spiegazione dello sprone ma non sono riuscita a trovare la differenza. potreste aiutarmi? Grazie, non vedo l'ora di iniziare a lavorare il modello!
11.01.2025 - 14:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Livia, le spiegazioni comprendono già le correzioni, non deve aggiungere nulla. Buon lavoro!
11.01.2025 - 20:04
Maria skrifaði:
Can the body also be knit in the round? I don't understand why it needs to be split. Thank you
04.04.2022 - 12:28DROPS Design svaraði:
Dear Maria, you can adapt the pattern to work the body in the round, but just note that there should be 12 cm vents on each side, ie you should divide piece and end front and back piece separately on the last 12 cm to keep vents. Happy knitting!
04.04.2022 - 15:06
Rita skrifaði:
Hej! Mönstret lämnar mycket utrymme för tolkning på flera ställen tyvärr. Trots upprepade kontroller och omstart 6ggr går inte mönstret ihop efter första raglanökningen. Instruktioner varv för varv skulle göra det lättare att förstå. För svårtolkad för en rätt erfaren stickare vilket är synd då mönstret är så vackert.
13.08.2021 - 18:12
Petra Wisiak skrifaði:
Hallo! Ich verstehe nicht, wie ich die Maschen der Raglanzunahme in das Muster einarbeiten soll. Bitte um Hilfe, danke!☺
05.12.2020 - 14:47DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wisiak, die neuen Maschen nach den Raglanlinien werden wie in A.1 gestrickt (= lesen Sie das Diagram links nach recht) - und vor den Raglanlinien werden die neuen Maschen wie in A.3 gestrickt (Diagram rechts nach links lesen). Stricken Sie krausrechts die Maschen, die nicht im Lochmuster gestrickt werden können (wenn Sie nicht genügend Maschen haben, um 1 Abnahme + den dazugehörigenden Umschlag zu stricken). Viel Spaß beim stricken!
07.12.2020 - 07:44
Amy skrifaði:
Prachtig patroon! Ik wil deze maken, maar dan de hele mouw ook in kantpatroon. Mijn vraag is: heb ik dan meer garen nodig? Ik heb nu 125g in huis. Volgens de beschrijving is dat genoeg voor de maat die ik wil maken, maar misschien moet ik dan nog een bol bijbestellen?
21.01.2020 - 15:35DROPS Design svaraði:
Dag Amy,
Nee hoor, je hoeft dan geen extra garen te bestellen. Je hebt genoeg aan dezelfde hoeveelheid (en misschien heb je zelfs minder nodig.)
26.01.2020 - 14:37
Katja skrifaði:
Es steht: Die Zunahmen in jeder 2. Runde 6x (Grösse L) arbeiten. Bedeutet das, dass ich in der 2. runde 6 mal zunehmen soll? Normalerweise nimmt man doch nur an den markierten Maschen/Raglanmaschen zu, aber das sind nur 4?
03.02.2019 - 09:45DROPS Design svaraði:
Liebe Katja, Sie sollen insgesamt 6 Zunahmenrunde (in jede 2. Runde) stricken, aber Siei werden jeweils 8 Maschen (= 2 für jeden Ärmel + 2 am Vorder bzw Rückenteil) zunehmen, nach diesen 6 Zunahmenrunde haben Sie 8 Maschen x 6 zugenommen. Dann in jede 4. Runde 22-24 x zunehmen (auch 8 Maschen wie zuvor). Viel Spaß beim stricken!
04.02.2019 - 12:06
Vibeke skrifaði:
Str. Xl
28.09.2018 - 15:09
Vibeke skrifaði:
Hej Jeg kan simpelthen ikke gennemskue hvori den rettelse I har beskrevet består. Jeg ender med at få 2 masker for meget når jeg er igennem første mønster pind Mvh. Vibeke
26.09.2018 - 17:01DROPS Design svaraði:
Hej Vibeke, hvilken størrelse strikker du, så skal vi prøve at guide dig igennem første mønsterpind :)
28.09.2018 - 14:47
Song of the Sea#songoftheseasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, gatamynstri, garðaprjóni og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu. Aukið út um lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur garðaprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 16 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 1,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 1. og 2. lykkju. ÚRTAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð frá röngu (þ.e.a.s. með sléttum lykkjum). Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), endið með 2 lykkjur slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring ofan frá og niður, á hringprjón, áður en það skiptist í fram- og bakstykki sem prjónað er fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 98-104-104-116-116-126 lykkjur á hringprjón 2,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið, aukið út og setjið 4 prjónamerki þannig: Prjónið 16 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 11 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1, setjið 1 prjónamerki (= vinstri ermi), 33-36-36-42-42-47 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 10-15-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 16 lykkjur jafnframt er aukið út um 11 lykkjur jafnt yfir (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 32-35-35-41-41-46 lykkjur slétt jafnframt er aukið út um 10-15-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki og endið með 1 lykkju garðaprjóni (= bakstykki) = 140-156-156-172-172-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = vinstri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 24-32-32-40-40-48 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = framstykki). A.1 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = hægri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 9 lykkjur, 1 lykkja garðaprjón (= bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Aukið svona út í annarri hverri umferð 1-2-6-6-7-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 21-23-22-24-26-28 sinnum (= alls 22-25-28-30-33-35 sinnum). Eftir allar útaukningar eru 316-356-380-412-436-468 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 66-74-82-86-92-92 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir næstu 92-104-108-120-126-142 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-92-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir næstu 92-104-108-120-126-142 lykkjur (= bakstykki). Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermum, í báðum hliðum. Þessi prjónamerki merkja skiptingu á milli fram- og bakstykkis. Framstykki, bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BAKSTYKKI: = 100-112-120-132-142-158 lykkjur. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Stillið mynstrið af þannig að það passi við mynstur á berustykki. Prjónið 5-7-7-5-6-6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, A.2 yfir næstu 72-80-88-104-112-128 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 6-8-8-6-7-7 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Aukið svona út með 4-5-5-5-3-4 cm millibili alls 5-4-4-4-6-5 sinnum = 110-120-128-140-154-168 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu (stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá öxl), endið mynstur eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki. ERMI: Setjið 66-74-82-86-92-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 3,5 og fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferða = 74-82-94-98-108-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, en rangan á að vísa út (brugðið frá réttu, slétt frá röngu). Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-16-21-21-25-24 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. Ermin mælist 43-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum frá skiptingu og niður – saumið innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma frá skiptingu og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur en endið þegar ca 12 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Saumið hinn hliðarsauminn alveg eins. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #songoftheseasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.