Caroline Kvinge skrifaði:
Hvordan skal man strikke pulsvantene? Skal strikke M/L, har lagt opp 37 masker, strikker 13 masker riller, mønsteret går ikke opp, skjønner ingenting.
26.11.2017 - 20:25DROPS Design svaraði:
Hei Caroline. Du legger opp 37 masker, strikk 2 RILLER (1 rille = alle maskene på 1.pinne strikkes rett, snu arbeidet, strikk alle maskene på 2.pinne rett. Strikk 1 rille til (2 riller = 4 pinner frem og tilbake)). Nå strikkes det mønster, start pinnen med 13 masker rett (1. pinne av en rille), strikk 1. rad av A.1 ( = 11 masker), avslutt pinnen med 13 masker rett (1. pinne av en rille) = 13+11+13 = 37 masker. Snu arbeidet og strikk 13 masker rett (2. pinne av en rille), strikk 2.rad av A.1 ( = 11 masker), avslutt pinnen med 13 masker rett (2. pinne av en rille). Fortsett dette mønsteret oppover. God Fornøyelse!
27.11.2017 - 10:14
Ellinor Olsson skrifaði:
Jag tycker inte att mönster A2 stämmer med bilden. Om man följer mönstret så finns det ingen ensam rät maska från rätsidan som man ser på bilden. Det blir vanlig resår med två räta och två aviga.
13.11.2017 - 13:53DROPS Design svaraði:
Hej Ellinor, Jo den ser du på kanten på mössan. Lycka till!
13.11.2017 - 16:03
Lilyj skrifaði:
Salve, in questi giorni sto lavorando a questo scaldacollo, e mi sono accorta che nello schema A3 al ferro 28, maglia 13 (quella dopo il secondo gettato), dovrebbe esserci un rovescio, non un diritto… almeno stando al resto del motivo. Buona giornata.
01.11.2017 - 02:29DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lilyj. Invieremo una segnalazione alla casa madre per far correggere lo schema. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
01.11.2017 - 08:13
Mia skrifaði:
Pipo täytyy ehdottomasti tehdä. Paljon ihania ohjeita teillä tulossa talveksi.
30.06.2017 - 20:53
Karin skrifaði:
I really like the elegant fitted cowl / mini-cape / poncho with its interlocking leaf pattern, but the simpler loose hat and fingerless gloves let the supposed set down somewhat. The ribbing doesn't even match. Two designers? Too bad, an elegant leaf 'set' would be great.
17.06.2017 - 00:01
Silver Leaf#silverleafset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og handstúkum með blaðamynstri og garðaprjóni. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 181-35 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um húfu og handstúkur): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 99-105 lykkjur á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið A.2 (= 9-7 mynstureiningar 11-15 lykkjur) þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á prjón 4. Prjónið þannig: Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 44-45 lykkjur, prjónið A.1 (= 11-15 lykkjur), prjónið garðaprjón yfir síðustu 44-45 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 3 mynstureiningar af A.1 á hæðina. Stykkið mælist ca 20-23 cm. Prjónið nú stykkið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fækkið um 0-6 lykkjur jafnt yfir fyrstu umferð = 99 lykkjur. Setjið nú 11 prjónamerki frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 9 lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir (= alls 10 sinnum), endið með 8 lykkjur garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki (= 11 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð 2 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 4 sinnum = 22 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru 2 og 2 lykkjur prjónaðar slétt saman = 11 lykkjur. Húfan mælist ca 28-31 cm. FRÁGANGUR: Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. HÁLSSKJÓL: Fitjiið upp 128-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 12 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið síðan eftir A.3 (= 8-9 mynstureiningar 16 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 240-270 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HANDSTÚKA: Fitjið upp 34-37 lykkjur á prjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: 12-13 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 11 lykkjur), 11-13 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 20 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman handstúkuna í ystu lykkjubogana. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverleafset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.