Lena skrifaði:
Bonjour J ai commencé le gilet J ai un petit souci de compréhension A-1 (2 m) A-2 (7 m) 9 mailles 2 m end - 1jeté - 1m end - 1jeté - 2 m ens - 1m and - 2 m ens - 1jeté -1m end - 1jeté Je compte 11 mailles Pouvez vous me dire ou je me trompe ???
08.12.2017 - 20:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Lena, on tricote le 1er rang de A.2 sur 7 m et on augmente en même temps 2 m, on aura 9 m dans A.2 après le 1er rang, soit 11 m pour A.1 et A.2. Bon tricot!
11.12.2017 - 08:45Julie skrifaði:
Hi, The new patterns are beautiful. This one is so dainty! I'm wondering if it is my iPad,but some of the symbols in the key for the diagram aren't showing up e.g., should there be a / in the square for " knit two together"? I only have a blank square. On checking the other new patterns, some random symbols are also missing. Thanks!
07.07.2017 - 06:25
Birgitte Høft Larsen skrifaði:
Jeg vil rigtig gerne igang med denne model men det fremgår ikke på noget sted, i nogen af de tre opskrifter der kommer frem på en gang, hvor meget garn jeg skal bruge. Birgitte
06.07.2017 - 13:52DROPS Design svaraði:
Hei Birgitte. Her har det skjedd noe feil ved opplastningen på den danske siden, dette er nå ordnet og du finner informasjon om garnmengden til høyre for bildet (under bildet ved bruk av mobil). Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. God fornøyelse med ditt sommerprosjekt :)
07.07.2017 - 06:51
OLIVON skrifaði:
La petite veste à porter en toute occasion. Forme évasée qui s'adapte au plus grand nombre et ce point ajouré, si raffiné et féminin.
01.07.2017 - 16:38
Artmonique skrifaði:
C'est un rêve évasé. Une merveille
30.06.2017 - 17:17
Sommerdrøm skrifaði:
Nydelig sommerjakke
18.06.2017 - 23:36
Olga skrifaði:
Ein Traum in weiß!
06.06.2017 - 13:40
Nineveh#ninevehcardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, gatamynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk.
DROPS 179-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN: Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 51-55-60-60-64-69 lykkjur, setjið eitt prjónamerki (= miðja að aftan – ATH: Í M + XXL eru prjónamerkin sett í næstu lykkju, í öðrum stærðum er prjónamerki sett á undan næstu lykkju). Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8-9-10-10-10-11 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-19-20-20-21-22 sléttar lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-29-30-30-32-33 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 32-39-40-40-43-44 lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 40-51-50-50-56-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-62-60-60-68-66 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.2). ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 10,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.5 (= 5 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti með garðaprjóni í hálsi, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 9-9-9-8-8-8 cm bili á milli gata. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 94-98-102-106-112-118 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Baby Merino + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-13-18-14-17-20 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 102-111-120-120-129-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 7 lykkjur) *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 10-11-12-12-13-14 mynstureiningar 9 lykkjur), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 252-276-300-324-350-376 lykkjur í umferð. Prjónið 1-3-7-1-5-1 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið jafnframt út 1-5-9-1-3-1 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 253-281-309-325-353-377 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 20-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). (Ef málin passa ekki er prjónað áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið er komið með rétt mál). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 41-44-48-51-56-61 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-85-91-101-111 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-44-48-51-56-61 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 167-179-195-211-231-251 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 4.-48.-52.-56.-61.-66. lykkju inn frá hvorri hlið (= 77-83-91-99-109-119 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki á bakstykki). Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er prjónað A.3 yfir miðju 5 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir lykkjur með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þær). Haldið áfram í sléttprjóni, A.3 í hliðum og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og aukið út í 7.-15. umferð í mynsturteikningu A.3 (= 8. hverri umferð í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 31-32-32-32-32-32 cm frá þar sem stykkið er skipt upp. Nú á að verið aukið út ca 8 sinnum í hvorri hlið = ca 199-211-227-243-263-283 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.4B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar A.4 er hefur verið prjónað til loka á hæðina er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju, uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-58-64-66-70-72 lykkjur af þræði yfir á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-9-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 57-65-71-75-79-81 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna undir ermi. Byrjun á umferð er eftir 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir miðju 5 lykkjur undir ermi (= lykkja með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þessar lykkjur) prjónið A.5. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-3.-3.-2. umferð alls 6-9-11-11-11-10 sinnum = 45-47-49-53-57-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma eru sett 3 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á stykki, setjið 2. prjónamerki á eftir 15-16-17-18-19-21 lykkjur, setjið 3. prjónamerki á eftir 15-16-16-18-19-20 lykkjur = 15-15-16-17-19-20 lykkjur eftir í umferð á eftir 3. prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 3 lykkjur fleiri – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 63-65-67-71-75-79 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og A.5 mitt undir ermi þar til stykkið mælist 31-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið A.4A hringinn og fækkið að auki um 1 lykkju í fyrstu umferð = 62-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar A.4A hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju, uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Ermin mælist ca 35-35-34-32-30-28 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ninevehcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.