DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10340.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nineveh Jumper

Peysa með hringlaga berustykki, gatamynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk.

DROPS 179-8
DROPS Design: Mynstur bm-036
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-400 g litur 02, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 fyrir kanta með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10340.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8-9-10-10-10-11 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-20-20-22 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-27-30-30-31-33 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-36-40-40-42-44 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 40-45-50-50-53-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-54-60-60-64-66 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteiknin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.2).

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 14. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 14. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.5 (= 5 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkju sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96-102-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði Baby Merino + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-11-16-12-15-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 90-99-108-108-117-126 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. á milli fyrstu og síðustu lykkju í umferð) = miðja að aftan. Prjónið 1 umferð brugðið. Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á hringprjón 5.
Prjónið 4-8-4-4-8-4 lykkjur slétt og setjið eitt nýtt prjónamerki á undan næstu lykkju. Þetta er nú nýja byrjunin á umferð og er gert til að gatamynstrið verði samhverft við miðju að framan! Prjónið MYNSTUR í hring þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 7 lykkjur) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= 10-11-12-12-13-14 sinnum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 240-264-288-312-338-364 lykkjur í umferð. Prjónið 1-3-7-1-5-1 umferð sléttprjón og aukið JAFNFRAMT út 2-6-10-2-4-2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð. ATH: Til að mynstrið verði samhverft við miðju að framan þá er mikilvægt að auka út jafn margar lykkjur í hvorri hlið á milli miðju að aftan og miðju að framan (miðja að framan er miðju lykkjan í 5.-5.-6.-6.-6.-7. mynstureiningu A.2 í umferð) = 242-270-298-314-342-366 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 20-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Ef þetta mál passar ekki, prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið hefur rétt mál.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 25-16-32-34-26-44 lykkjur, setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-85-91-101-111 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-61-53-57-75-67 lykkjur sem eftir eru í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-168-184-200-220-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi í hvorri hlið (= 77-83-91-99-109-119 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á framstykki og bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í næstu umferð er A.3 prjónað yfir miðju 5 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir lykkjur með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þær). Haldið áfram í sléttprjóni, A.3 í hliðum og aukið út í 7. og 15. umferð í mynsturteikningu A.3 (= 8. hverri umferð í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 31-32-32-32-32-32 cm frá skiptingu. Nú hefur verið aukið út ca 8 sinnum í hvorri hlið = ca 188-200-216-232-252-272 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.4 hringinn í umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða að slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-58-64-66-70-72 lykkjur af þræði á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hvoru megin við 7-7-7-9-9-9 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 57-65-71-75-79-81 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Byrjun á umferð er eftir 7-7-7-9-9-9 nýjum lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir miðju 5 lykkjur undir ermi (= lykkja með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þessa lykkju) prjónið A.5. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-3.-3.-2. hverri umferð alls 6-9-11-11-11-10 sinnum = 45-47-49-53-57-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma eru sett 3 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjur) þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, setjið 2. prjónamerki á eftir 15-16-17-18-19-21 lykkju, setjið 3. prjónamerki á eftir 15-16-16-18-19-20 lykkjur = 15-15-16-17-19-20 lykkjur eftir í umferð á eftir 3. prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 3 lykkjur fleiri – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat).
Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 63-65-67-71-75-79 lykkjum í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og A.5 mitt undir ermi þar til stykkið mælist 31-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið A.4 hringinn og fækkið jafnframt um 1 lykkju í fyrstu umferð = 62-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Ermin mælist ca 35-35-34-32-30-28 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = síðasta umferð í mismunandi stærðum í mynsturteikningu A.1
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Jeanette Grimbergen wrote:

Het bovenstaande patroon is gemaakt met een dubbele draad. De eerste draad heeft een looplengte van 175 meter per 50 gram. De babymerino De tweede draad betreft een kidsilk met looplengte 200 meter per 50 gram Toch zeggen jullie250 gram babymerino = 875 meter te gebruiken in combinatie met 400 meter (100 gram) kidsilk. ik snap helemaal niks van deze logica. Dan kom je meer dan de helft aan meters van de kidsilk te kort lijkt mij. vriendelijke groet jeanette Grimbergen

28.03.2024 - 21:54

DROPS Design answered:

Dag Jeanette,

1 bol Kid-Silk weegt 25 gram (en geen 50 gram), dus dan kom je ongeveer op 840 m. Kid-Silk.

03.04.2024 - 21:09

country flag Gabriele Bauer wrote:

Hallo, bei Diagramm A.2 wurde in Reihe 45 rechts von der Mitte 1 x zusammengestrickt und links davon 2x zusammengestrickt. Ist das korrekt? Und A.3 wird im Rumpfteil rechts und links unter dem Arm gestrickt? Danke und Grüße

18.02.2023 - 11:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bauer, ja es ist richtig: hier soll man 1 Masche zunehmen (= 4 Umschläge aber nur 3 Abnahmen), so sind es 24 Maschen in jedem A.2 (Größe XL + XXL). A.3 wird gerade unter die Ärmel gestrickt, dh die Markierungen sollen in der mittlere Maschen von A.3 sein - Sie schlagen 9 Maschen unter die Ärmel, die Markierung wird in die 5. von diesen 9 Maschen seine und diese Masche ist die mittlere Masche in A.3. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2023 - 09:31

country flag Anita wrote:

Hallo Als ik de verdeling ga maken voor voorpand, armen en achterpand is dit vanaf midden achter? Groetjes Anita

18.01.2023 - 10:18

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Dit is niet helemaal midden achter, maar wel ergens halverwege op het achterpand.

18.01.2023 - 20:54

country flag Sandra wrote:

Can this sweater be made with two strands of Drops Kid Silk instead of one of Drops Kid Silk and one of Baby Merino?

06.10.2022 - 18:18

DROPS Design answered:

Dear Sandra, yes, you can work with 2 of DROPS Kid Silk, since both are from the same group (Kid Silk and Baby Merino). But the final garment will not drop and the texture will be different. Happy knitting!

07.10.2022 - 00:03

country flag Catherine Dufour wrote:

Bonjour, je réalise ce modèle, je signale cependant qu’il m’a fallu commander 2 pelotes supplémentaires de kid Silk pour finir l’ouvrage ….. en taille xxl c’est dommage car il aurait été moins onéreux de commander au départ

23.02.2022 - 18:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dufour, merci pour votre retour. Aviez-vous bien la bonne tension tout du long? Aviez-vous bien prévu 7pelotes Kid-Silk? J'arrive à un métrage total de 1470 m en Kid-Silk pour seulement 1400 m en Baby Merino, vous devriez avoir eu assez. Peut-être que Kid-Silk s'est un peu enroulée autour de Baby Merino au moment du tricot?

24.02.2022 - 10:14

country flag Randi Harriet Sørensen wrote:

Har 92 masker og skal øke 16 m jevnt fordelt. \r\n5,75 masker mellom hver økning. \r\nStrike 5 m, øke, strikke 7 m, øke.\r\nEr dette riktig

23.02.2022 - 18:25

DROPS Design answered:

Hei Randi. Du har 92 masker og du skal øke 16 masker jevnt fordelt. Bruk en kalkulator og dividere 92 med 16 så får du 5,75. Det antallet du får skal avrundes ned til hele eller halve nummer. Rund opp til 6, (men du vil få færre masker mellom økningene til slutt). Strikk 6 masker, så øke, strikk 6 masker, så øke osv pinnen/omgangen ut. Når du har igjen 8 masker, kan du strikke 4 masker, så øke, strikk 4 masker så øke. Da skal du ha fått økt 16 ganger. mvh DROPS Design

28.02.2022 - 12:02

country flag Guinevere Phaneuf wrote:

I am a bite confused can this pattern be knitted in Drops Foral with one strand or do I need to hold 2 strands together

24.07.2021 - 16:31

DROPS Design answered:

Hi Guinevere, you should use 2 strands together. Happy knitting!

24.07.2021 - 16:43

country flag Tiziana Ragusa wrote:

Si può realizzare questo maglione all'uncinetto?

21.11.2019 - 19:23

DROPS Design answered:

Buonasera Tiziana, questo modello è lavorato ai ferri, ma nella nostra sezione di modelli a uncinetto può sicuramente trovare un capo di suo gradimento. Buon lavoro!

21.11.2019 - 20:58

country flag Beata wrote:

Proszę o informację, która część swetra jest przerabiana tylko włóczką wełnianą, a która dwiema włóczkami. Włóczki jedwabnej zabraknie, gdyż jest jej mniej o ponad połowę. Nigdzie w opisie nie znajduję takiej informacji.

26.09.2019 - 17:02

DROPS Design answered:

Witaj Beato! Cały sweter jest przerabiany 2 nitkami razem. Włóczka KID-SILK jest bardzo wydajna i wystarczy jej na cały sweterek. Długość nitki w 25 g motku Kid-Silk to 210 m, długość nitki w 50 g motku Baby Merino to ok. 175 m. Powodzenia!

26.09.2019 - 17:37

country flag Cristina wrote:

Perciò , come dite voi,se al 7* giri sono 204 e al 15* giro 208. Ogni motivo sono 8 m in totale. 8 motivi per 8 m sono 64 aumenti. ??????

10.04.2019 - 21:51

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, le istruzioni dicono di ripetere gli aumenti, non il motivo, per 8 volte. Se ci sono 2 aumenti per lato, quindi 4 aumenti a giro: 4x8 volte= 32 aumenti. Buon lavoro!

10.04.2019 - 23:18