Anja skrifaði:
Hej! Jag har stickat armen enligt monstret men den blir inte alls lik diagrammet/fotot. Hur ska overdelen av armen kunna bli 30 cm bred om man inte okar till mer an 63 maskor? (Jag stickar minsta storleken.) Nar masktatheten ar 17 per 10 cm sa blir ju det bara halften sa brett som det ska vara. Tack pa forhand for hjalpen, Anja
22.03.2017 - 13:54DROPS Design svaraði:
Hej Anja. Hvor faar du fra at den skal vaere 30 cm bred. Det er laengden paa ermet du ser nederst i diagrammet. Har du 63 m og den rette strikkefasthed, saa vil jeg skyde paa din omkreds vil vaere omkring de 35 cm (37 cm i glatstrik, men pga mönstret vil det nok traekke sig lidt sammen).
23.03.2017 - 15:34
Valy skrifaði:
Merci beaucoup, je refais un essai.
03.03.2017 - 10:07
Valy skrifaði:
Bonjour, Je n'arrive pas a faire le même motif que sur la photo. Pouvez-vous me faire un diagramme avec plusieurs points ? Je comprends pas bien. Par avance merci
03.03.2017 - 08:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Valy, le point fantaisie du diagramme A.1 se tricote sur 2 m et 4 rangs: Rang 1 (= sur l'endroit): 2 m end - Rang 2 (sur l'envers): 1 m end, 1 m env. Répétez ces 2 rangs. Bon tricot!
03.03.2017 - 09:21
Petra Goetz-Hennigs skrifaði:
Das ist ein sehr schöner Schnitt. Schön wäre der gleiche Entwurf für dünnere Wolle.
23.02.2017 - 16:57
Chiara skrifaði:
Semplice ma molto bello!!
18.12.2016 - 18:40
Anna Jääskeläinen skrifaði:
Lovely everyday jumper!
14.12.2016 - 22:10
Long Island#longislandsweater |
|||||||
|
|||||||
Peysa með áferðamynstri og saumaðri laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur í kantlykkju í hvorri hlið (= 2 lykkjur fleiri). Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í HVORRI HLIÐ ÞANNIG: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í HVORRI HLIÐ ÞANNIG: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI. Fitjið upp 87-93-101-109-119-129 lykkjur á hringprjóna 5 með Paris. Prjónið mynstur þannig (1. umferð = rétta): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynsturteikningu A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-2-2-3-3-4 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona ú í ca 6.-8.-8.-10.-10. hverri umferð 7-7-7-7-6-6 sinnum = 101-107-115-123-131-141 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stykkið – LESIÐ ÚRTAKA. Lykkjum er fækkað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð 5-3-1 sinnum til viðbótar (= alls 6-4-2 sinnum), síðan í annarri hverri umferð 23-28-33 sinnum. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 33-32-29 sinnum til viðbótar (= alls 34-33-30 sinnum), 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-4-8 sinnum og 1 lykkja í annarri hverri umferð 1 sinni. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 43-43-45-45-47-47 lykkjur í umferð. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm setjið miðju 21-21-21-21-23-23 lykkjur á þráð fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-2-2 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 2 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af. ERMAR: Fitjið upp 53-59-61-69-73-83 lykkjur á hringprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm og stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé frá röngu. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 5-4-6-5-6-4 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir útaukning! Aukið út í ca 14.-14.-8.-8.-6.-6. hverri umferð alls 5-5-7-7-8-8 sinnum = 63-69-75-83-89-99 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-27 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – munið eftir úrtöku! Lykkjum er fækkað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð 5-3-1 sinnum til viðbótar (= alls 6-4-2 sinnum), síðan í annarri hverri umferð 23-28-33 sinnum. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 33-32-29 sinnum til viðbótar (= alls 34-33-30 sinnum), 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-4-8 sinnum og 1 lykkja í annarri hverri umferð 1 sinni. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 5 lykkjur eftir í öllum stærðum. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við framstykki og bakstykki í hvorri hlið. Saumið lykkjur eina og eina innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið saum undir ermi og hliðarsaum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni hliðinni. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 102 til 114 lykkjur (meðtaldar lykkjur á þræði) á hringprjón 4 með Paris. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í kringum allt hálsmálið. Þegar stroffið mælist ca 2 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #longislandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.