Kerry skrifaði:
Hello! I have crocheted the yoke twice and it doesn't look anything like the pattern shown on the model. Is there a difference between knitted and crocheted patterns? If there isn't then I am going wrong somewhere!
29.03.2017 - 07:04DROPS Design svaraði:
Dear Kerry, you have to follow each row step by step as explained in pattern. For any further individual assistance, remember you can get help from your DROPS store, even per mail or telephone. Happy crocheting!
29.03.2017 - 09:55
Naomi skrifaði:
Ik wil het patroon in maat M haken. Maar kom niet aan de 1e 86 stokjes.103 lossen opgezet, dan 1 stokje,vervolgens 16 maal 5=81 stokjes?? Groetjes
06.03.2017 - 12:56DROPS Design svaraði:
Hoi Naomi. Je haakt 103 lossen, sluit tot een ring en dan begin je met 3 lossen (1 stk), sla 1 l over en 1 stk in de volgende 5 l, herhaal nog 16 keer: 5x17 = 85 + de eerste 3 l = 86.
06.03.2017 - 13:28
June Oconnell skrifaði:
How many skeins of this yarn would I need to order to make this in medium
05.03.2017 - 02:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Oconnell, you will need 500 g DROPS Paris in size M, ie 500/50 g a ball Paris = 10 balls. Happy crocheting!
06.03.2017 - 09:36
Lesley-Ann skrifaði:
Hello Garn Studio! I'm hoping you can help me. In the directions for the YOKE, the pattern indicates that you need to work 3 chain stitches (1 double crochet), then work 1 double crochet in each of the next 3-0-0-0-0-3 stitches. Am I correct in assuming that the 0-0-0-0 means to skip those chain stitches? I've tried this a couple of different ways, but at no time do I come out with 84 stitches for a size small. Can you please help? Thank you!
04.02.2017 - 20:39DROPS Design svaraði:
Dear Lesley-Ann, Each number refers to the size, so that in size S you have 100 ch: 3 ch (= 1st dc), then work 1 dc in each of the next 3 ch (= 3 dc over 3 ch), then *skip 1 ch, 1 dc in each of the next 5 ch* (= 5 dc over 6 ch), repeat from *-* a total of 16 times (5 dc x 16 = 80 dc). So that you have : 1 + 3 + 80 = 84 dc. Happy crocheting!
06.02.2017 - 09:34
Diana skrifaði:
Very good!!!
18.01.2017 - 18:45
Denise skrifaði:
Easy Breezy
15.01.2017 - 02:21
Regina skrifaði:
Vielseitiges Modell: in rosa niedlich, in dunkleren Farben elegant. Das mag ich gerne.
30.12.2016 - 00:02
Amyah skrifaði:
Un autre ravissant modèle!
20.12.2016 - 17:11
Betina skrifaði:
Super Modell
16.12.2016 - 21:53
Lauren McRoberts skrifaði:
One of my favorites. Please include
14.12.2016 - 14:47
Astoria#astoriatop |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með hringlaga berustykki og gatamynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,5. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.1a og A.2a útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Byrjið með heklunál 5 og Paris, heklið 100-103-109-115-121-124 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 3-0-0-0-0-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 15-16-17-18-19-19 sinnum til viðbótar = 84-86-91-96-101-104 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum og aukið út um 24-30-29-32-31-40 tvíbrugðnum stuðlum jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 108-116-120-128-132-144 tvíbrugðnir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8-9-10-11-11-13 nýja tvíbrugðna stuðla. Setjið 2. prjónamerki eftir 38-40-40-42-44-46 nýja tvíbrugðna stuðla, 3. prjónamerki eftir 16-18-20-22-22-26 nýja tvíbrugðna stuðla og 4. prjónamerki eftir 38-40-40-42-44-46 nýja tvíbrugðna stuðla. Nú eru 8-9-10-11-11-13 tvíbrugðnir stuðlar eftir við miðju að aftan. Heklið mynstur A.1b (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.1 útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). JAFNFRAMT er aukið út um tvíbrugðna stuðla jafnt yfir 38-40-40-42-44-46 lykkjur í hvorri hlið. Lykkjufjöldinn á milli 2 prjónamerkja fyrir miðju að framan og við miðju að aftan við háls er stöðugur (= 16-18-20-22-22-26 lykkjur). Aukið út mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S og M: Aukið út 14-17 lykkjur hvoru megin við 2. og 5. umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-18 lykkjur í 6.-8. hverri umferð = 196-220 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið mismunandi eftir stærðum. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Aukið út 14-16-18-19 lykkjur hvoru megin við 2., 5. og 8. hverri umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-16-20-21 lykkjur hvoru megin við 9.-9.-11.-11. umferð í A.1b = 236-256-280-300 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið mismunandi eftir stærðum. Heklið næstu umferð í öllum stærðum þannig: ATH: Í stærð S og XL er heklað um loftlykkjur í stað í loftlykkjur. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 54-60-64-70-78-86 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum sem eftir eru í umferð. Stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm mælt frá kanti í hálsmáli og niður á hæðina. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 4-12-0-8-12-12 þríbrugðna stuðla jafnt yfir = 120-140-140-160-180-200 þríbrugðnir stuðlar. Klippið frá. Til að mynstrið verði staðsett samhverft við miðju að framan og við miðju að aftan á toppnum er byrjunin á umferðinni færð til þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-5-5-15-5-15 þríbrugðnu stuðlana í umferð og festið endann með 1 fastalykkju í næsta þríbrugðna stuðul. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar). Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um stuðla. Til að mynstrið verði samhverft við miðju framan og aftan á stykkinu, verður að auka út um jafn marga stuðla í hvorri hlið. Aukið út um 20 stuðla í hvorri hlið jafnt yfir á milli miðju að aftan og sólfjöður í mynstri við miðju framan á toppnum. Aukið út um 40 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 160-180-180-200-220-240 stuðlar. Heklið síðan 2. umferð í A.2a og A.2b (= 8-9-9-10-11-12 mynstureiningar í umferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er hekluð 2. og 3. umferð 1 sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 62-63-65-66-68-69 cm frá kanti í hálsi við miðju að framan og niður. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að aftan í hnakka og festið enda með 1 fastalykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju, en heklið bara í loftlykkjur sem þar sem stuðlar eru heklaðir í = 84-86-91-96-101-104 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið við miðju undir handvegi og heklið 4 loftlykkjur (= tvíbrugðinn stuðull). Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um ystu lykkju í skiptingunni á milli berustykkis og fram- og bakstykkis JAFNFRAMT er fækkað um 13-15-16-14-12-11 tvíbrugðna stuðlar jafnt yfir í umferð – LESIÐ ÚRTAKA = 41-45-50-56-62-67 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #astoriatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.