DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-14
DROPS Design: Mynstur z-779
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400 g litur 2917, turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndast göt (aðrar lykkjur eru prjónaðar með sléttprjóni).

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju mynstri (bak), síðan fram og til baka í hvorri hlið. Ermarnar eru prjónaðar hvor fyrir sig og saumaðar við stykkið í lokin.

PEYSA:
Fitjið upp 7 lykkjur með Alpaca og skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna 3. Prjónið eftir A.1 (= 7 mynstureiningar af A.1 í umferð). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið að umferð merktri með ör fyrir rétta stærð. Nú eru 273 lykkjur í umferð. Gerið handveg þannig: Prjónið fyrstu 58 lykkjur í umferð (= 1½ mynstureiningar), fellið af næstu 39-46-53 lykkjur, prjónið næstu 117-103-89 lykkjur, fellið af næstu 39-46-53 lykkjur, prjónið síðustu 20 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 39-46-53 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af = 273 lykkjur í öllum stærðum. Prjónið til loka A.1.

Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.1X yfir A.1. Fyrir hvert skipti sem A.1X er prjónað á hæðina, hefur verið aukið út um 6 lykkjur hvoru megin við hverja mynstureiningu, nýjar lykkjur eru prjónaðar síðan eins og ystu lykkjurnar í A.1X. Prjónið A.1X alls 2-3-4 sinnum á hæðina (aukið er út um 84 lykkjur í hvert skipti sem A.1X er prjónað) = 441-525-609 lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið síðan þannig: Setjið fyrstu 63-75-87 lykkjur á þráð (= 1 mynstureining), haldið eftir næstu 153-187-217 lykkjunum á prjóni, setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Nú er prjónað fram og til baka yfir lykkjur á prjóni. Prjónið A.2 mitt yfir blað í A.1X og GARÐAPRJÓN á milli blaða eins og áður – sjá útskýringu að ofan. Í lok hverrar umferðar eru 2 síðustu lykkjurnar settar yfir á þráðinn (þær eru ekki prjónaðar, snúið). Haldið áfram þar til eftir eru 41-75-49 lykkjur á prjóni (A.2 hefur nú verið prjónað 2-2-3 sinnum á hæðina). Setjið síðustu 41-75-49 lykkjurnar á þráðinn.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 153-187-217 lykkjur í umferð á prjóninn og prjónið eins og vinstra framstykki yfir þessar lykkjur.

Prjónið síðan allar lykkjur af þræði slétt frá réttu til baka inn á hringprjón 3, einnig eru teknar upp lykkjur á milli 2 og 2 lykkja sem settar voru á þráðinn í hvorri hlið þannig: Takið upp þráðinn á milli 2 lykkja, snúið þræðinum og setjið þá lykkju á hægri prjón (þ.e.a.s. á milli 2 og 2 lykkja er aukið út um 1 lykkju og komið í veg fyrir að göt myndist í skiptingunum) = 553-637-777 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur og fellið laust af.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir í stutta hringprjóna þegar nægilega margar lykkjur eru komnar á prjóninn.
Fitjið upp 46-50-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Alpaca. Prjónið A.3 yfir allar lykkjurnar. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6-10-4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2-2 cm millibili alls 15-21-25 sinnum = 76-92-106 lykkjur. Þegar ermin mælist 55-56-56 cm fellið af.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.02.2017
Mynsturteikning A.3 er uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið það eiga að myndast göt
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (106)

country flag Anne wrote:

Hallo liebes Strick-Team, ich möchte für die Kreisjacke ein Garn mit einem schönen Farbverlauf verwenden. Spricht etwas dagegen, nach den Löchern für die Ärmel im Kreis weiterzuarbeiten? Wenn ich in Reihen stricken würde, ginge der Effekt des Garns verloren. Herzliche Grüße und vielen Dank Anne

07.07.2023 - 18:59

DROPS Design answered:

Liebe Anne, die Jacke ist kein echter Kreis, siehe Maßskizze, wenn der Kreis fertig ist, wird man jede Seite separat stricken, so entsehen die Vorderteile. Wenn Sie ein Garn mit einem Farbverlauf benutzen, können Sie mal versuchen, die Vorderteile mit der selben Farben zu beginnen, so sollten sie ähnlich sein. Viel Spaß beim stricken!

27.07.2023 - 09:24

country flag Piera wrote:

Buongiorno, grazie per la risposta precedente. Quindi lavorando A2 sui ferri avanti e indietro le maglie a rovescio sui ferri pari andranno a formare una maglia rasata. In questo modo il motivo a foglia risulta diverso dai precedenti lavorati in tondo. É corretto? Grazie

14.03.2023 - 07:09

country flag Piera wrote:

Buongiorno, il diagramma A2 va iniziato a lavorare sul diritto o sul rovescio del lavoro? Grazie

13.03.2023 - 13:33

DROPS Design answered:

Buonasera Piera, può iniziare A.2 sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

13.03.2023 - 20:17

country flag Margaret wrote:

The final look of the sleeve . Does it look stocking stitch or garter stitch

21.11.2022 - 01:53

DROPS Design answered:

Hi Margaret, The sleeves are worked in stocking stitch. Happy knitting!

21.11.2022 - 06:46

country flag Lucille wrote:

J’aimerais faire une manche 3/4, combien de mailles je dois monter et combien d’augmentations? Je fais la taille L et XL. Merci

01.07.2022 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Lucille, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Merci pour votre compréhension. Toutefois, vous trouverez ici nos modèles de gilets et vestes à manches 3/4 qui pourront probablement vous inspirer. Bon tricot!

04.07.2022 - 07:39

country flag Lucille wrote:

Pour la bordure du chandail, c’est bien en aller retour pour les 3 côtes mousse? Merci beaucoup pour votre aide, j’apprécie

31.05.2022 - 22:07

DROPS Design answered:

Bonjour Lucille, les 3 côtes mousse tricotées tout autour du gilet à la fin (après les deux devants), se tricotent en rond, c'est la bordure finale du gilet. Bon tricot!

01.06.2022 - 08:17

country flag Lucille wrote:

Elever les mailles entre les 2 mailles placées en attente de chaque côté ainsi: relever le fil entre 2 mailles et le placer torse sur l'aiguille droite pour éviter un trou aux transitions (c'est-à-dire entre chaque 2ème maille, on augmente 1 maille et on évite un trou transitions) = environ 553-637-777 mailles. Je ne comprends pas

29.05.2022 - 02:08

DROPS Design answered:

Bonjour Lucille, lorsque vous avez tricoté les rangs raccourcis des devants, vous avez automatiquement un décalage dû à ces rangs raccourcis, pour éviter un trou à ces endroits-là, vous devez relever le fil horizontal entre 2 mailles et le placer torse (sans le tricoter) sur l'aiguille droite, autrement dit, vous augmentez et "comblez" ainsi les trous aux transitions des rangs raccourcis. Bon tricot!

30.05.2022 - 08:27

country flag Helena Košíková wrote:

Při pletení průramků mi nevychází sekvence na střed. Nemelo by být rozdělení očí jinak? 58 upletu, 46 uzavřít, 65 upletu 46 uzavřít a upletu 58 ok???

22.05.2022 - 23:53

DROPS Design answered:

Dobrý den, Heleno! Při pletení průramků se vzorem nijak nehýbeme, pokračujeme v jeho dosavadním rozložení. (Paprsek vzoru nevychází na střed průramku, ale směřuje do podpaží - viz foto.) Průramky začneme uzavírat v místě, které je ve schématu označené šipkou pro danou velikost. Uvedené počty ok by měly odpovídat rozmístění - pokud upletete mezi průramky jen 65 ok, bude díl zdeformovaný. Hodně zdaru! Hana

23.05.2022 - 08:49

country flag Lucille Pineault wrote:

Devant droit: reprendre les 217 dernières mailles, mais où je prends ces 217 mailles? Est-ce sûr les mailles restantes . Toutefois si je prends 609 moins 87 moins 217 mailles, il restv309 mailles sur l’arrêt de mailles. Est-ce que je prends 217 mailles sur cet arrêt?

10.05.2022 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pineault, vous aviez 609 mailles, vous avez glissé les 87 premières mailles en attente et tricoté les 217 mailles suivantes pour le devant gauche, il y a 305 mailles en attente après le devant gauche (609-87-217=305 ); vous tricotez maintenant les 217 dernières mailles du tour, autrement dit, après le devant gauche, vous "sautez" 88 des mailles en attente et tricotez maintenant les 217 mailles suivantes. Bon tricot!

11.05.2022 - 08:11

country flag Lucille Pineault wrote:

Expliquez-moi devant gauche et droit? Je ne comprends vraiment pas, explications plus simples peut-être? Merci

10.05.2022 - 02:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pineault, divisez les mailles comme indiqué pour ne tricoter ensuite que les 153-187-217 mailles indiquées en continuant A.x et le point mousse comme avant, et, en même temps, en glissant en attente 2 mailles à la fin de chaque rang de chaque côté jusqu'à ce qu'il reste 41-75-49 m, mettez ces mailles en attente et tricote le devant droit sur les 153-187-217 dernières mailles du tour et procédez de la même façon. Vous tricoterez une bordure de 3 côtes mousse tout autour de la veste (= les mailles en attente + les mailles restant des devants). Bon tricot!

10.05.2022 - 08:48