Nancy Oltman skrifaði:
I want to knit this sweater but even the S size dimensions are too big for me. My hip width is 86 cm (not 104) and my bust width is 84 cm (not 98). The length (52 cm) is correct. How can I make this pattern work for me? Thank you, Nancy Oltman
06.12.2023 - 01:24DROPS Design svaraði:
Hi Nancy, This jumper is meant to be loose fitting, so the measurements will be larger than your body measurements. Happy knitting!
06.12.2023 - 06:38
Renate skrifaði:
Die Armkugel hat eine Stufe, die beim Einnähen stört. Das kommt durch die 4 R glatt rechts nach dem Abketten der 6 M in der Mitte des Ärmels. Wie soll diese Stufe beim Einnähen behandelt werden? Das Video zum Ärmeleinnähen hilft nicht weiter, denn dort hat der Ärmel keine Kugel, sondern endet ganz gerade. Für Hilfe wäre ich dankbar.
28.01.2021 - 18:32
Furstenberger Michèle skrifaði:
Bonjour Est-il possible de remplacer la laine par de la laine air drops 2 fils Merci
05.05.2019 - 16:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Furstenberger Michèle! DROPS MERINO EXTRA FINE appartient au groupe de fils B, en revanche 2 fils de DROPS AIR donne deja le groupe E. Regardez la lecon suivante: Puis-je utiliser un fil différent de celui mentionné dans le modèle?. Bon travail!
06.05.2019 - 08:26
Elke skrifaði:
Kann ich diese Anleitung auch mit Belle stricken oder geht es von der Struktur nicht? Übrigens klappt es mit dem Ausdrucken der Anleitungen nicht.
08.07.2017 - 18:23DROPS Design svaraði:
Liebe Elke, gerne können Sie Belle anstatt Merino Extra Fine stricken, hier lesen Sie mehr über Ersatzgarn, Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne damit weiter helfen. Haben Sie die Druckeinstellungen überprüft? Wir haben gerade ein Test bestanden. Viel Spaß beim stricken!
10.07.2017 - 09:36
Annet Wilke skrifaði:
Onderaan de beschrijving staat het telpatroon, de vakjes met de uitleg daarvan zijn echter allen leeg. Ik heb nu geen idee hoe ik de telpatronen (4)moet breien. Kunt u mij helpen?
18.02.2017 - 20:55DROPS Design svaraði:
Hoi Annet. De beschrijving zou erbij staan. Probeer te vernieuwen (F5) en kijk opnieuw.
20.02.2017 - 15:54
Annet Wilke skrifaði:
Onderaan de beschrijving staat het telpatroon, de vakjes met de uitleg daarvan zijn echter allen leeg. Ik heb nu geen idee hoe ik de telpatronen (4)moet breien. Kunt u mij helpen?
18.02.2017 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hallo Annet, Is het inmiddels gelukt? Waarschijnlijk werd de afbeelding niet goed geladen in je browser op het moment dat je het patroon bekeek. Het is gecontroleerd en de vakjes van het telpatroon zijn gevuld.
04.11.2017 - 16:42
Henin skrifaði:
J'adore
25.01.2017 - 14:53
Linda skrifaði:
Ik kan niet wachten! Wat een mooi model.
23.01.2017 - 08:33
Karin skrifaði:
I do hope this is a rare side-to-side knitted pattern.
09.01.2017 - 21:58
Madeleine GUYAUX skrifaði:
Magnifique modèle, je souhaite qu'il soit dans la liste!
20.12.2016 - 05:51
Marion#marionsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hálfu klukkuprjóns afbrigði úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-19 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig auka/fella eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur í hvorri hlið) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 10,6. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis ca í 10. og 11. hverri lykkju. Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar til skiptis 9. og 10. hver lykkja og 10. og 11. hver lykkja saman. Ekki er útaukning/úrtaka yfir kantlykkjur. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-110-118-128-140-154 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT Í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 113-121-129-141-153-169 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjón, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 uppúr með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 107-115-123-135-147-163 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 33-33-33-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 35-39-43-47-51-59 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp á sama hátt og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm. Setjið nú miðju 19-19-19-23-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum = 35-39-43-47-51-59 lykkjur á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (stillið af eftir bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með garðaprjóni frá réttu (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 45-45-48-51-51-54 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5-3-4-5-3-4 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 40-42-44-46-48-50 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-8-10-6-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-13-14-15-16-17 sinnum = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 44-43-42-40-38-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið 4 umferðir sléttprjón, prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón þar sem fyrstu 5 lykkjur í byrjun þessa 2 umferða eru felldar af. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, ermin mælist ca 46-45-44-42-40-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 2 brugðið umferðir á móti hvor annarri á öxl (séð frá réttu). Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru ca 8 cm í hvorri hlið (= klauf). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 90 til 108 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.