DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-5
DROPS Design: Mynstur w-622
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-800 g litur 01, apríkósa

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að fá 13 stuðla 10 cm á breidd. Mynstur A.1B mælist ca 7 cm á breidd og A.x mælist ca 6,5 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklað er neðan frá og upp.
Stykkinu er skipt upp við handveg og framstykkin og bakstykkið er heklað til loka hvert fyrir sig með ermum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 278-334-390 loftlykkjur með heklunál 5,5 með Paris. Heklið síðan með byrjun frá réttu þannig: A.1a, A.1b alls 19-23-27 sinnum, endið með A.1c. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið síðan A.x – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 38-38-44 cm, endið eftir 3. umferð í A.x (= umferð frá röngu). Heklið síðan 4. umferð í A.x frá réttu þannig: Heklið A.1a, A.1b alls 6-7-8 sinnum (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki í síðustu loftlykkju, heklið A.1b alls 7-9-11 sinnum (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í síðustu loftlykkju, heklið A.1b alls 6-7-8 sinnum, endið með A.1c (= vinstra framstykki). Nú skiptist stykkið upp og hvor hluti er heklaður til loka fyrir sig – ekki klippa þráðinn frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c, A.1b alls 6-7-8 sinnum, endið með 34-34-20 loftlykkjur fyrir ermi. Snúið við. Næsta umferð (= 2. umferð í A.x og 1. umferð í A.2) er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2a, A.2b alls 2-2-1 sinnum, A.1b alls 6-7-8 sinnum, endið með A.1c. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina. Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c, A.1b alls 8-9-9 sinnum, endið með A.1a. Endurtakið síðan A.x á hæðina þar til stykkið mælist ca 60-66-72 cm, passið uppá að síðasta umferð sé 4. umferð í A.x (= umferð frá réttu). Heklið sjalkraga.

SJALKRAGI:
Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c, A.1b alls 3-3-3 sinnum, endið með A.1a. Snúið við. Haldið áfram þar til A.x hefur verið heklað til loka á hæðina og heklið síðan 1. og 2. umferð í A.x 1 sinni til viðbótar á hæðina. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið 34-34-20 loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram yfir hægra framstykki þannig: A1b alls 6-7-8 sinnum, endið með A.1a. Snúið við. Næsta umferð (= 2 umferð í A.x og 1. umferð í A.3) er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a, A.1b alls 6-7-8 sinnum, A.3a alls 2-2-1 sinnum, endið með A.3b. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina.
Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c, A.1b alls 8-9-9 sinnum, endið með A.1a. Endurtakið A.x á hæðina þar til stykkið mælist ca 60-66-72 cm – stillið af eftir vinstra framstykki. Síðasta umferð er 4. umferð í A.x (= umferð frá réttu). Klippið frá og heklið sjalkraga alveg eins og vinstra framstykki nema spegilmynd, þannig að heklað er yfir síðustu 12 loftlykkjuboga með byrjun frá röngu.

BAKSTYKKI:
Næsta umferð (= 1. umferð í A.x) er hekluð frá röngu þannig: Heklið 34-34-20 loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram yfir bakstykki og heklið A.1b alls 7-9-11 sinnum, endið með 34-34-20 loftlykkjur fyrir ermi. Snúið við (= 2. umferð í A.x og 1. umferð í A.2 og A.3) er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2a, A.2b alls 2-2-1 sinnum, A.1b alls 7-9-11 sinnum, A.3a alls 2-2-1 sinnum, endið með A.3b.
Haldið svona áfram þar til A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina.
Næsta umferð (= 1 umferð í A.x) er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a, A.1b alls 11-13-13 sinnum, endið með A.1c. Endurtakið A.x á hæðina þar til stykkið mælist ca 60-66-72 cm – stillið af eftir framstykkjum. Síðasta umferð er 4. umferð í A.x (= umferð frá réttu). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykki ofan á bakstykki, réttu að réttu og heklið axlirnar saman þannig: 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga um bæði lögin *, endurtakið frá *-* meðfram allri öxlinni/erminni og endið með 1 fastalykkju. Ekki er heklað yfir miðju 5 loftlykkjubogana á bakstykki, þar verður frágangur á kraga í lokin. Endurtakið á hinni öxlinni.
Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga um bæði lögin, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju.

FRÁGANGUR Á KRAGA:
Leggið efsta kantinn/síðustu umferðina á hægri sjalkraga að efsta kanti/síðustu umferð á vinstri sjalkraga og saumið saman með smáu spori kant í kant. Saumið síðan hlið á kraga við hálsmál.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu loftlykkju og dragið síða þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja)
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðin í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næsta loftlykkjuboga og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul yfir loftlykkjuboga og niður í lykkju frá þar sem tvíbrugðnu stuðlarnir voru heklaðir saman í umferð neðan við loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið á næstu umferð!
symbols = byrjið hér
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Beaulieu, Sylvie wrote:

Bonjour, dans le 1er paragraphe je lis de faire A. 1a, 23 fois A 1b au total et terminer par A 1c. Je comprends pas trop. Dois-je faire A 1a, 1b et 1c un a la suite de l'autre 23 fois ?

10.11.2023 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beaulieu, vu sur l'endroit, vous allez crocheter: 1 fois A.1A (début du rang sur l'endroit/fin du rang sur l'envers), répéter A.1b (mettez bien les marqueurs comme indiqué) et terminer par A.1C (fin de rang sur l'endroit/début de rang sur l'envers). Bon crochet!

10.11.2023 - 16:01

country flag Ruth Weiss wrote:

Hallo zusammen, ich habe bevor ich angefangen habe eine Maschenprobe gemacht. Für die Größe S/M, habe ich ingesamt 154 cm für die Rumpfbreite. Ich häkle schon mit Nadelstärke 4. Können Sie mir bitte helfen?

10.01.2021 - 03:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Weiss, stimmt auch Ihre Maschenprobe mit A.1B? Sie sollten 7 cm für jeden A.1B haben, dh 19 x A.1B = 133 cm + A.1A + A.1C - Viel Spaß beim häkeln!

11.01.2021 - 09:07

country flag Julia Mödritscher wrote:

Hallo, ich habe das Rumpfteil, das linke Vorderteil und den Schalkragen fertig gehäkelt. Muss ich das rechte Vorderteil nun einzeln mit 34lm anschlagen oder kommen die 34lm beim linken Vorderteil dran? Vielen Dank

19.12.2020 - 20:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Mödritscher, das rechte Vorderteil beginnt mit den neuen 34 Luftmaschen für den Ärmel dann häklen Sie die nächste Rückreihe über die Maschen von rechten Vorderteil, bzw: A.1b und wie zuvor enden Sie mit A.1A. Viel Spaß beim häkeln!

21.12.2020 - 07:34

country flag Julia Mödritscher wrote:

Hallo, ich habe das Rumpfteil, das linke Vorderteil und den Schalkragen fertig gehäkelt. Muss ich das rechte Vorderteil nun einzeln mit 34lm anschlagen oder kommen die 34lm beim linken Vorderteil dran? Vielen Dank

19.12.2020 - 20:26

country flag Ellen Blom wrote:

Ik begrijp niet wat er bij de tekening 14 cm breed is? Enhoe breed is de sjaalkraag?

24.07.2019 - 15:08

DROPS Design answered:

Dag Ellen,

De 14 cm is de breedte vanaf waar de hals begint bij de linker schouder tot waar de hals ophoudt bij de rechter schouder. De totale breedte van de sjaalkraag staat inderdaad niet aangegeven in de tekening, maar de stippellijn is middenvoor, dus de hand van wat je over houdt (aantal steken bedoel ik) als je de helft van de steken van het achterpand van een voorpand aftrekt, dan weet je hoe breed de sjaalkraag is.

24.07.2019 - 20:26

country flag Patsy Gadberry wrote:

The photo of the jacket from the back shows the crocheted shoulder seam on the outside of the jacket. However, the instructions say, "Lay the front piece on the back piece, right side to right side and crochet the shoulders together," which would put the crocheted seam on the inside of the jacket instead of the outside.

27.06.2019 - 17:07

country flag Patsy Gadberry wrote:

I found in making the jacket that the techniques used in making the motifs pull inward and take out some of what seems at first to be extra width. Measurement for size is not accurate until several rows have been completed. Very pretty jacket!

11.10.2018 - 13:42

country flag Patsy Gadberry wrote:

Okay, gauge is 13 double crochets equals 10 cm / 4". To make 13 dc you have 13 chains, so by your gauge 13 chains equal 4". In that gauge you have 25 chains across the bottom of pattern A.1b, which would be 8" (not 2 3/4") across the bottom of A.1B, lacking one chain. With 334 chains (specified for L/XL) you would end up with a garment measuring 102.77" or 261.04 cm around the bottom! How many chains are truly supposed to be done to start (not 334) or what is the true gauge?

22.05.2018 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gadberry, A.1b should be 7 cm in width, in 2nd size you work 23 times A.1b (= A.1a at the beg of row and A.1c at the end of row, ie approx. 1 more repeat) so that you will have approx. 24 repeats x 7 cm = 168 cm in total. As you can see in the measurement chart, both front piece will be quite larger than the half of back piece: back piece is 9 repeats and front piece are each 7 repeats + A.1a/c. Pattern is correct as it is, but feel free to adjust it to your own measurements if you like to. Happy crocheting!

22.05.2018 - 15:26

country flag Patsy Gadberry wrote:

I am making size L/XL, but the pattern calls for 334 chains--I believe that is wrong. It makes up into something that would wrap around a person 2 or 3 times. When I made a blanket that was 80" wide, I used only 258 chains. The numbers of starting chains for all sizes in the pattern are in error! Can you please tell how many start chains there are actually supposed to be for L/XL? Thank you!

19.05.2018 - 07:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gadberry, make sure you get the correct tension, ie 13 double crochet on 10 cm / 4'' in width. Pattern A.1B measures approx. 7 cm / 2¾'' in width and A.x measures approx. 6.5 cm / 2½'' in height - and you'll get the measurements shown in the measurement chart (= in cm, taken flat from side to side). Happy crocheting!

22.05.2018 - 10:28

country flag Althea M Kirby wrote:

How many skeins does this pattern require?

12.05.2018 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kirby, you will find total weight of yarn required in each size under the header, ie 550-650-800 g DROPS Paris color 01, apricot - DROPS Paris = 50 g a skein, so that you will need 550/50= 11 balls in first size. Happy crocheting!

14.05.2018 - 11:53