DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Peach Ballet

Prjónuð tunika með gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-6
DROPS Design: Mynstur w-641
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-650-700-800-850-950 g litur nr 01, apríkósa

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Á ermum er aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Aukið út þannig:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þannig:
Aukið út í hverri umferð alls 0-2-4-0-0-0 sinnum.
Aukið út í annarri hverri umferð alls 22-23-23-27-24-26 sinnum.
Aukið út í 4. hverri umferð alls 0-0-0-0-2-2 sinnum (= alls 22-25-27-27-26-28 sinnum) = alls 48-54-60-60-62-66 lykkjur á hvorri ermi.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA-1:
Þegar prjónað er í hring er lykkjum fækkað þannig:
Fækkið lykkjum við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-5-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2-2-2-6-8-8 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Þegar prjónað er fram og til baka er fækkað þannig:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið 3-3-3-3-4-4 lykkjur garðaprjón, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 5-5-5-5-6-6 lykkjur, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 3-3-3-3-4-4 lykkjur garðaprjón.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Fækkið lykkjum við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur slétt (prjónamerk er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Ef affellingarkanturinn verðu of stífur er hægt að fella af með ½-1 prjónanúmeri stærra.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður.

TUNIKA:
Fitjið upp 80-84-86-92-96-102 lykkjur á hringprjóna 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna 5,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-18-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir = 102-102-106-114-122-130 lykkjur. Í næstu umferð er prjónað mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1a yfir fyrstu 21-21-21-23-23-25 lykkjur, A.2a yfir næstu lykkju, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja að aftan), 1 lykkja brugðið, A.3a yfir næstu lykkju, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 lykkjur (= bakstykki), setjið 1. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 sléttar lykkjur, setjið 2. prjónamerki (= ermi), A.1a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 lykkjur, A.2a yfir næstu lykkju, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja að framan), 1 lykkja brugðið, A.3a yfir næstu lykkju, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 lykkjur slétt, setjið 4. prjónamerki (= ermi). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b og A.4b á hæðina.
Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 298-318-362-378-402-430 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-28-30 cm þar sem það er styst.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 lykkjur eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja að aftan), 1 lykkja brugðið, sláið uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 lykkjur, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 lykkjur, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki), A.1b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja að framan), 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 lykkjur, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 lykkjur, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki) = 218-226-258-282-306-326 lykkjur.

Prjónið 1 umferð mynstur, uppsláttur við miðju að framan og við miðju að aftan eru prjónaðir slétt, það eiga að myndast göt.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með * A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 lykkjur eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 lykkjurnar, A.5a yfir næstu lykkju (aukið út um 1 lykkju í A.5a), 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja aftan/framan), 1 lykkja brugðið, A.6a yfir næstu lykkju (aukið út um 1 lykkju í A.6a), A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 lykkjur, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 lykkjur eins og áður, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2-2-2-6-8-8 lykkjur garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Í þessari umferð er aukið út um 2 lykkju við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkað er um 2 lykkju í hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verði sá sami. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Prjónið síðan í hring þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 1 umferð með mynstri eins og áður (= umferð án uppsláttar í mynsturteikningu).
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert hliðarmerki – LESIÐ ÚRTAKA-1. Í þessari umferð er aukið út um 2 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkað er um 2 lykkjur á hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn heldur áfram að vera sá sami.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og umferð 1.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og umferð 1.
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 7: Prjónið eins og umferð 1.
UMFERÐ 8: Prjónið mynstur eins og áður. Í þessari umferð er aukið út um 2 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan = alls 4 lykkjur fleiri. Ekki er lykkjum fækkað á undan eða á eftir hliðarmerkjum.

Endurtakið umferð 1 til 8 til loka. Þegar A.5a og A.6a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.5b og A.6b á hæðina. Nú er prjónað A.7 á eftir A.5b og A.8 á undan A.6a við miðju að framan og við miðju að aftan til loka, þ.e.a.s. útauknu lykkjurnar við miðju að framan/aftan eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 18 cm frá prjónamerki undir ermi, passið uppá að síðasta umferðin sé 1 umferð með uppslætti, skiptið stykkinu upp við hliðarmerki, framstykki og bakstykki eru nú prjónuð til loka hvort fyrir sig fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
(Byrjið við vinstra hliðarmerki. Fyrsta umferð = frá röngu).
Prjónið mynstur og endurtakið umferð 1 til 8 eins og áður, en í 3-3-3-3-4-4 síðustu lykkjur í hvorri hlið á stykki eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 30 cm frá prjónamerki undir ermi, skiptið yfir á hringprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – LESIÐ AFFELLING.

BAKSTYKKI:
Prjónið eins og framstykki.

ERMI:
= 48-54-60-60-62-66 lykkjur. Ermin er prjónuð í sléttprjóni, hringinn á sokkaprjóna. Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjóna 5,5 og fitjið upp 6-6-6-10-12-12 lykkjur undir ermi = 54-60-66-70-74-78 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn og setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-3-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-2! Fækkið svona með ca 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 9-12-14-15-16-17 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-42-42-41-41-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umferð – það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í mynstri í næstu umferð – það eiga ekki að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = byrjið á þessari umferð - sjá ör fyrir rétta stærð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Christiane G wrote:

Bonjour. Je n arrive pas à avoir le bon échantillon. Avec les aiguilles indiquees j ai un demi centimetre de moins. Avec des aiguilles 6 j ai un demi centimetre de plus. Quelles aiguilles choisir pour etre la plus precise possible pourla taille XL? Merci

12.04.2022 - 16:46

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, essayez de bloquer votre échantillon (avec les aiguilles 5,5) pour voir si la hauteur s'en trouve ajustée - un blocage (ou même un simple lavage/séchage) aide à donner un air plus régulier aux mailles et peut vous permettre d'obtenir la bonne hauteur (tout en conservant la bonne largeur). Bon tricot!

19.04.2022 - 08:51

country flag Kasia wrote:

Mam pytanie może trochę dziwne czy w schematach są pokazane rzędy parzyste i nieparzyste Z góry dziękuje za odpowiedz

18.05.2021 - 21:13

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, pytaj zawsze kiedy musisz, nie ma dziwnych pytań :) Schemat przedstawia wszystkie rzędy (parzyste i nieparzyste), widok jest taki jak na prawej stronie robótki. Szczegółowo ten temat jest opisany w kursie TUTAJ. Pozdrawiamy!

19.05.2021 - 18:09

country flag Majbritt Teglgaard wrote:

Jeg har problemer med antallet af masker i diagrammetA1a. Jeg vil strikke str xxl. Af diagrammet fremgår det, at der er 23 masker . Af teksten fremgår det, at jeg skal strikke diagrammet over 25 masker. Hvordan gør jeg? Hvis det er over 25 går det op med omgangens samlede antal masker, men hvordan får jeg det til at passe med diagrammet?

27.01.2021 - 00:21

DROPS Design answered:

Hei Majbritt. Du strikker A.1a over 23 masker og så strikker du 2 masker av begynnelsen av A.1a = 25 masker av A.1a. God Fornøyelse!

01.02.2021 - 11:09

country flag Marita Sløgedal wrote:

Det er nødt til å være feil i forklaringen på økning med raglan. Det står at det skal økes etter merke 1 og 3 og før 2 og 4. Da blir det jo bare 4 masker til erme.....

29.05.2020 - 14:25

DROPS Design answered:

Hei Marita. Nei, det er ikke feil. Det økes også i diagrammene på for- og bakstykket, se diagrammene. God Fornøyelse!

03.06.2020 - 10:46

country flag Stef wrote:

Bonjour quand vous dites TOUR/RANG 1 : Tricoter 1 tour/rang comme avant (=1 tour/rang sans les jetés dans les diagrammes) cela veut dire ne pas faire de jetés dans tous les diagrammes du rang ou seulement dans les diagrammes A.5a et A.6a. merci

23.06.2017 - 23:44

DROPS Design answered:

Bonjour Stef, seulement dans A.5a et A.6a pour conserver le point fantaisie ajouré. Bon tricot!

26.06.2017 - 09:25

country flag Lisa-Sophia wrote:

Liebes Drops-Team, vielen Dank für dieses wunderschöne Strickmuster! Ich habe eine Frage zum Aufnehmen ganz am Anfang nach den 2 Krausrippen: Welche Technik sollte ich hierfür verwenden. Bei den Videos ist nur Aufnehmen 5 mit Umschlag. Was hierfür nehme ich an ungeeignet ist. Vielen Dank und herzliche Grüße!

20.06.2017 - 17:06

DROPS Design answered:

Liebe Lisa-Sophia, hier können Sie mit Ihrem Lieblingstechnick zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

21.06.2017 - 10:01

country flag Anne Marie Frolunde wrote:

Jeg har problemer med moensteret. Det er blokken A1 og A4 i str XL. Det er den del af moensteret, hvor der skal laves huller. jeg har ikke masker nok til at lave moensteret. I anden pind fra neden strikker jeg i A1 r,v,r,v,r,v,4r,v,slå om,r,sla om,r loes af, r, den loese over retten,2 r sammen,sla om,og så skulle det være 2r men der er kun 1 maske tilbage inden den gennemgaende retmaske. Hvad goer jeg forkert? Hilsen Anne Marie

09.06.2017 - 11:47

DROPS Design answered:

Hej Anne Marie, hvis du sætter en mærketråd på hver side af diagrammet, så du er sikker på at du har 23 masker til at strikke A.1 og A.4 og husk at du ikke skal strikke den rude som er helt sort, den tager du først ud til på 2.pind. God fornøjelse!

09.06.2017 - 15:43

country flag LAGUNA wrote:

Bonjour, Comment avez-vous réussi à aller au delà des 2 premiers rangs du point fantaisie? Je suis coincée, je n'arrive pas à savoir quoi faire de mes jetés qui ont créer des mailles, ce qui fait que je n'ai pas du tout de même rendu dans la constitution des diagrammes, je suis sans arrêt décalée. Je désire faire cette tunique pour cet été. Merci d'avance. MINA

19.05.2017 - 15:23

DROPS Design answered:

Voir réponse ci-dessous :)

19.05.2017 - 15:32

country flag Elizabeth Frost wrote:

Hej Hvor finder jeg mål på størrelsen i opskriften f.eks hvad er målene i omkreds på XL i opskriften Tunika med hulmønster, som jeg har fået mail på str går fra S til XXXL men jeg kan ikke finde cm mål på de forskellige størrelser. Vil jo hverken have den for lille eller foe stor. Hilsen Elizabeth

19.03.2017 - 12:48

DROPS Design answered:

Hej Elizabeth. Se nederst paa opskriften, her finder du alle maal i cm per störrelse. Laes ogsaa her nogle tips hvordan du vaelger den rette störrelse

20.03.2017 - 13:22

country flag Martha wrote:

Beautiful, can't wait to make it

06.01.2017 - 18:37