Sarthou -Moutengou skrifaði:
.J'adore ce modèle, sa forme,sa couleur et j'attends avec impatience ses explications.
28.12.2016 - 13:53
BROCHE Barbara skrifaði:
J'espere vraiment que nous aurons les explications de ce magnifique modele
27.12.2016 - 17:20
Gaby skrifaði:
Schlicht aber schön.
17.12.2016 - 21:16
Misty Moor#mistymoorsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, köðlum og A-formi prjónuð ofan frá og niður úr 2 þráðum DROPS Delight og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 38 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 6,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Byrjið frá réttu frá miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og prjónið 6-6-7-7-7-8 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-14-16 lykkjur brugðið frá röngu, snúið við, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-21-24 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-28-32 lykkjur brugðið, snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við miðju undir ermum): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 38-38-38-40-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 10 með 1 þræði Delight í hvorum lit + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Skiptið yfir á sokkaprjóna 9 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í þriðju umferð (= umferð með sléttum lykkjum) er aukið út um 6-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 44-46-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 10. Til að fá betra form er nú hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin er lokið eru sett 4 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT sem prjónað og aukið er út þannig: Prjónið 6-6-6-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann = 3 lykkjur fleiri) og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= mitt ofan á hægri ermi), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkju, 1 lykkja brugðið, 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja ofan á vinstri ermi), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið og 5-6-6-6-7-7 lykkja slétt (= ½ bakstykki) = 56-58-58-60-62-64 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 6-6-6-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt (= ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt (= ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu og prjónið þær 5-6-6-6-7-7 lykkjur sem eftir eru slétt. Haldið svona áfram í sléttprjóni og A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig – ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum: FRAM-/BAKSTYKKI: Aukið út um 1 lykkju á undan A.1 og á eftir A.2 í annarri hverri umferð alls 5-5-8-9-12-15 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan) og síðan í 4. hverri umferð 3-4-3-3-2-1 sinnum (= alls 8-9-11-12-14-16 sinnum). ERMI: Aukið út um 1 lykkju á eftir A.1 og A.2 í annarri hverri umferð alls 11-11-12-11-12-13 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð er að ofan) og síðan í 4. hverri umferð 0-1-1-2-2-2 sinnum (= alls 11-12-13-13-14-15 sinnum). Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 132-142-154-160-174-188 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ca 25-27-29-31-33-35 cm frá öxl). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 18-19-21-23-25-28 lykkjur slétt (þ.e.a.s. fram að prjónamerki (= ½ bakstykki), setjið næstu 31-33-35-35-37-39 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 35-38-42-45-50-55 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 31-33-35-35-37-39 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið 17-19-21-22-25-27 lykkjur sem eftir eru (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 78-84-92-102-112-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 10 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 90-96-104-114-124-134 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið var út um 14-16-16-22-20-26 lykkjur jafnt yfir = 104-112-120-136-144-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 9 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm eru auknar út aðra hverjar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 117-126-135-153-162-180 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 31-33-35-35-37-39 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 10, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og setjið 1 prjónamerki mitt í þessa 4-4-4-6-6-6 lykkjur = 35-37-39-41-43-45 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 19-21-21-23-23-25 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-35-33-32-30-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5-3-3-5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-28-28-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 9 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm (öll ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu) fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistymoorsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.