Anthonia Onwordi skrifaði:
Thank you very much. That's what I've been doing wrong! I've never knit top down, and assumed the pattern is read the way the top is knit. You have lovely patterns, and your 'customer' service is excellent. Best wishes.
21.02.2017 - 19:42
Anthonia Onwordi skrifaði:
Hello. Are the charts worked from top down? Thanks
21.02.2017 - 17:37DROPS Design svaraði:
Hi Antonia! The charts are worked from the bottom, from the right to the left. Please see HERE. Happy knitting!
21.02.2017 - 18:50
Rebecka skrifaði:
Stickar i muscat för första gången och det blir hela tiden fnurror på tråden. Jag brukar alltid börja med änden inuti nystanet men denna gång lyckades jag inte få tag i den ändan utan började sticka från den ände som ligger utanför. Kan det vara det som orsakar trasslet?
16.02.2017 - 23:23DROPS Design svaraði:
Hej. Lite svårt att veta vad det beror på, det kan hjälpa om du lägger garnet i en påse när du stickar så att nystanet får "snurra upp sig" i den. Mvh DROPS Design
22.02.2017 - 11:08
Rebecka skrifaði:
Hej! Jag är inte en så erfaren stickerska är osäker på hur jag på snyggast sätt ska öka 20 maskor på det fjärde varvet i rätstickningen. Eftersom jag ska börja med ett rätt varv så blir det fjärde ett varv med udda maskor och då är det inte så snyggt att öka med omslag. Har ni något bra tips?
16.02.2017 - 23:09DROPS Design svaraði:
Hej. Här är ett exempel på hur du kan göra, lycka till!
22.02.2017 - 11:06
Vaudevire Maryse skrifaði:
Bonjour, J'ai commencé le modèle Petronella Top 175-32 Lorsque vous dite "les augmentations se font à un rythme différent sur le dos et devant et les manches" qu'est ce que ça veut dire ? devant-dos augmenter (12-15-.......35) x tous les 2 tours. faire 35 augmentations sur le rang. Merci de me m'informer.
09.02.2017 - 07:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vaudevire, vous n'allez pas augmenter pour le devant/le dos et les manches en même temps, par ex en taille S, on augmente 12x tous les 2 tours et 7x tous les 4 tours pour le devant/le dos mais 18x tous les 2 tours et 4 x tous les 4 tours pour les manches. Ainsi, les 12 premières augmentations seront sur chaque pièce (= manches + dos/devant), mais par la suite, vous augmenterez soit uniquement sur les manches (4 augm par tour), soit partout (8 augm par tour). Bon tricot!
09.02.2017 - 08:56
Michaela skrifaði:
Dieses Top hat das Zeug zum Lieblingsstück.
16.01.2017 - 19:31
Anita ZF skrifaði:
Hübsch und tragbar, würde ihn nachstricken
20.12.2016 - 17:40
Eva B. skrifaði:
Ich suche schon lange nach einem ganz simplen Baumwollpulli zum Nachstricken. Der hier wäre perfekt. Gefällt mir sehr gut darum hoffe ich, dass er ausgewählt wird.
18.12.2016 - 14:46
Petronella Top#petronellatop |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaður toppur með laskalínu og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-32 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út í annarri hverri umferð þannig: Aukið svona út á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki. Aukið svona út á eftir prjónamerki: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Aukið út í 4. hverri umferð þannig: Aukið ú á undan prjónamerki: UMFERÐ 1: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki. UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki. Ekki er aukin út nein lykkja, en gataumferðin heldur áfram eins og áður. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: UMFERÐ 1: Prjónamerki, prjónið 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Ekki er aukin út lykkja, en gataumferðin heldur áfram eins og áður. UMFERÐ 4: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ÚRTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið 4 GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: fyrsta prjónamerki eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur (= hálft bakstykki), annað prjónamerki eftir 12 nýjar lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki eftir 38-40-42-44-46-48 nýjar lykkjur (= framstykki), fjórða prjónamerki eftir 12 nýjar lykkjur (= ermi), nú eru eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Byrjið með útaukningu fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að ofan og prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki og framstykki og A.1 yfir lykkjur á ermum. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Mismunandi er aukið út á framstykki/bakstykki og ermum þannig: FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umferð 12-15-17-25-30-35 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 7-7-7-4-3-2 sinnum. ERMAR: Aukið út í annarri hverri umferð 18-23-27-29-26-25 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-3-2-2-5-7 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. Útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Eftir næst síðustu útaukningu á ermi (nú eru eftir 4 umferðir), prjónið áfram í garðaprjóni yfir lykkjur á hvorri ermi, lykkjur frá framstykki/bakstykki halda áfram í sléttprjóni eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 264-296-320-352-372-396 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), fellið af næstu 56-64-70-74-74-76 lykkjur, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 56-64-70-74-74-76 lykkjurnar, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjurnar (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan þannig: Prjónið hálft bakstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið framstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið hálft bakstykki. Nú eru 168-184-200-224-248-272 lykkjur á fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið áfram í sléttprjóni, en yfir nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur færri), fækkið með 3 cm millibili alls 4 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-19-19-18-18-19 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri), aukið út með 2 cm millibili alls 6 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 176-192-208-232-256-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-32-32-33-33-32 cm prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #petronellatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.