DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 177-10

#aflairforspringjacket

DROPS Design: Mynstur w-632
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
800-950-1150 g litur 16, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.
A.1 sýnir byrjun og lokin á hverri umferð, A.2 er heklað alls 5 sinnum hringinn.
A.3 sýnir byrjun og lokin á hverri umferð, A.4 er heklað alls 12 sinum hringinn.
Heklið A.5/A.6/A.7 hringinn – A.x sýnir byrjun og lokin á hverri umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðul í byrjun umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi):
Eftir síðustu fastalykkju í umferð, heklið 6 loftlykkju og haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (= fyrsti loftlykkjuboginn í næstu umferð). ATH: Merkið byrjun umferðar með 1 prjónamerki á milli síðustu loftlykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATH: PASSIÐ VEL UPPÁ AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI ÚR STAÐ!

ÚRTAKA:
Heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næstu fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (ekki eru heklaðar 6 loftlykkjur á milli fastalykkja), þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HRINGPEYSA:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Paris og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið síðan þannig: Heklið A.1 (miðja á A.1 sýnir byrjun og lok hverrar umferðar, þ.e.a.s. heklið frá miðju á A.1), A.2 alls 5 sinnum, endið með hinn helminginn á A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1/A.2 er lokið á hæðina eru 156-156-156 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 30 cm að þvermáli.
Heklið síðan þannig: Heklið A.3 (miðja á A.3 sýnir byrjun og lok hverrar umferðar, þ.e.a.s. heklið frá miðju á A.3), A.4 alls 12 sinnum, endið með hinn helminginn af A.3 – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 7 stuðla jafnt yfir (aukið með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul) = 202 stuðlar í umferð. Þegar A.3/A.4 er lokið á hæðina mælist stykkið ca 40 cm að þvermáli.
Heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af fyrstu 2 stuðlunum, næsta umferð byrjar héðan (þ.e.a.s. við miðju að aftan við hnakka). Mismunandi er heklað eftir stærðum.

STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 30 stuðlum, heklið 32 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 32 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 78 stuðlum, heklið 32 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 32 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 30 stuðlum = 202 lykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 32 stuðla um hvern loftlykkjuboga – JAFNFRAMT er aukið út um 14 stuðla jafnt yfir = 216 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir = 228 stuðlar.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 14 stuðla jafnt yfir = 216 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 32 stuðlum, heklið 35 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 35 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 82 stuðlum, heklið 35 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 35 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 32 stuðlum = 216 lykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 35 stuðla um hvern loftlykkjuboga – JAFNFRAMT er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir = 228 stuðlar.

STÆRÐ XXL/XXXL:
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 14 stuðla jafnt yfir = 216 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 24 stuðla jafnt yfir = 240 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af 34 stuðlum, heklið 38 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 38 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 96 stuðlum, heklið 38 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 38 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 34 stuðlum = 240 lykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 38 stuðla um hvern loftlykkjuboga – JAFNFRAMT er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir = 252 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið 1. umferð í A.5 = 84 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 6: Heklið 2. umferð í A.5 JAFNFRAMT er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir = 264 stuðlar.

ALLAR STÆRÐIR:
= 228-228-264 stuðlar.
Heklið nú hringinn eftir A.5 (A.x sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), JAFNFRAMT er aukið út (aukið er út í umferð með ör) þannig:
UMFERÐ 1 (engin útaukningu): = 76-76-88 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Aukið út um 33-33-33 stuðla jafnt yfir (ATH: aukið út í fastalykkjum, ekki um loftlykkjubogana) = 261-261-297 stuðlar.
UMFERÐ 3: Aukið út um 15-15-15 stuðla jafnt yfir = 276-276-312 stuðlar.
UMFERÐ 4: Aukið út um 18-18-18 stuðla jafnt yfir = 294-294-330 stuðlar.
Þegar A.5 er lokið á hæðina mælist hringurinn ca 29-29-33 cm frá miðju (= 58-58-66 cm að þvermáli).

Heklið nú hringinn eftir mynsturteikningu A.6 (A.x sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), JAFNFRAMT er aukið út um (aukið er út í umferð með ör) þannig:
UMFERÐ 1 (engin útaukning): = 49-49-55 sólfjöður.
UMFERÐ 2 (útaukning í mynsturteikningu): (24-24-27 mynsturteikning 13 stuðlar og 1 mynsturteikning a 7 stuðlar) = 319-319-358 stuðlar.
UMFERÐ 3: Aukið út um 23-23-23 stuðlar jafnt yfir = 342-342-381 stuðlar.
Þegar A.6 er lokið á hæðina mælist hringurinn ca 34-34-38 cm frá miðju (= 68-68-76 cm að þvermáli).

Heklið nú hringinn eftir A.7 (A.x sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), JAFNFRAMT er aukið út um (aukið er út í umferð með ör) þannig:
UMFERÐ 1 (engin útaukning): = 114-114-127 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2 (engin útaukning): = 114-114-127 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 3: Aukið út um 20-20-20 loftlykkjubogar jafnt yfir (aukið út með því að hekla 1 stuðul, 2 loftlykkjur, 1 stuðull og 2 loftlykkjur um sama loftlykkjuboga = 1 loftlykkja fleiri) = 134-134-147 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 4 (engin útaukning) = 402-402-441 stuðlar.
UMFERÐ 5. Aukið út um 15-15-15 stuðlar jafnt yfir = 417-417-456 stuðlar.
Endurtakið 1. og 2. umferð í A.7 (án útaukninga) = 139-139-152 loftlykkjubogar. Í stærð S/M er klippt frá. Heklið nú áfram í stærð L-XXXL, þannig:

STÆRÐ L/XL - XXL/XXXL:
Endurtakið 2. umferð í A.7 JAFNFRAMT er aukið út þannig:
UMFERÐ 6: Aukið út um 6-6 loftlykkjuboga jafnt yfir (aukið er út með því að hekla 1 fastalykkju, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkju og 2 loftlykkjur um sama loftlykkjuboga = 1 loftlykkjubogi fleiri) = 145-158 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 7 (engin útaukning): = 145-158 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 8: Aukið út um 5-6 loftlykkjuboga jafnt yfir = 150-164 loftlykkjubogar
UMFERÐ 9 (engin útaukning): = 150-164 loftlykkjubogar. Klippið frá.
ALLAR STÆRÐIR:
= 139-150-164 loftlykkjubogar.
Heklið nú einungis yfir 39-42-45 loftlykkjuboga í hvorri hlið – þ.e.a.s. ekki er lengur heklað yfir 30-33-37 loftlykkjuboga efst í hnakka og 31-33-37 loftlykkjuboga neðst á baki. Haldið áfram og lesið útskýringu undir vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 39-42-45 loftlykkjubogar. Haldið áfram fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1. Heklið keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja, * heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* endið með 1 fastalykkju um síðasta loftlykkjubogann = 38-41-44 loftlykkjubogar.
Endurtakið 1. umferð 3-3-7 sinnum til viðbótar. Nú eru 35-38-37 loftlykkjubogar eftir yst á framstykki. Klippið frá .

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og vinstra framstykki, yfir 39-42-45 loftlykkjuboga á hægri hlið. Klippið frá.

KANTUR Í LOKIN:
Heklið kant í kringum allan hringinn þannig:
Endurtakið 3. og 5. umferð í A.7 (og A.x), með útaukningu, þannig:
UMFERÐ 3 (engin útaukning): Þ.e.a.s. um hvern loftlykkjuboga er heklaður 1 stuðull og 2 loftlykkjur = 147-158-180 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 4: Aukið út um 15-27-18 stuðla jafnt yfir = 456-501-558 stuðlar.
UMFERÐ 5: Aukið út um 12-27-18 stuðla jafnt yfir = 468-528-576 stuðlar.
Endurtakið 1. og 2. umferð í A.6 (og A.x), þannig:
UMFERÐ 1 (engin útaukning): = 78-88-96 sólfjaðrir.
UMFERÐ 2 (engin útaukning): (39-44-48 mynstureiningar 13 stuðlar) = 507-572-624 stuðlar. Klippið frá og festið enda.
Hringurinn mælist ca 51-59-63 cm frá miðju að aftan (= 102-118-126 cm að þvermáli á hæðina) og ca 58-66-77 cm frá miðju út að hlið (= 116-132-154 cm að þvermáli á breidd).

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður, byrjið mitt undir ermi (= 64-70-76 stuðlar í handveg).
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 1 fastalykkju í stuðul, 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca 4 stuðla *, endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn, það eiga að vera 15-18-21 loftlykkjubogar í kringum handveg.
Haldið áfram að hekla 6 loftlykkjur og 1 fastalykkju um hvern loftlykkjuboga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 loftlykkjuboga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku til skiptis hvoru megin við prjónamerki með 4 cm millibili 4-5-6 sinnum til viðbótar = 10-12-14 loftlykkjubogar.
Þegar stykkið mælist 38-39-40 cm heklið síðustu umferð þannig:
Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 40-48-56 stuðlar. Ermin mælist ca 39-40-41 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2021
LEIÐRÉTTING:...STÆRÐ S/M:.. = 202 lykkjur. STÆRÐ L/XL:...= 216 lykkjur. STÆRÐ XXL/XXXL:... = 240 lykkjur.

Mynstur

loftlykkja = loftlykkja
6 loftlykkjur = 6 loftlykkjur
fastalykkja um loftlykkjuboga = fastalykkja um loftlykkjuboga
fastalykkja í lykkju = fastalykkja í lykkju
stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
stuðull í lykkju = stuðull í lykkju
hálfur stuðull um loftlykkju = hálfur stuðull um loftlykkju
um loftlykkjubogann er heklaður 1 hálfur stuðull, 1 stuðull, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull, 1 stuðull og 1 hálfur stuðull = um loftlykkjubogann er heklaður 1 hálfur stuðull, 1 stuðull, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull, 1 stuðull og 1 hálfur stuðull
heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni í lokin = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni í lokin
umferðin byrjar með 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar
umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar. Heklið síðan keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar. Heklið síðan keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar
á milli 2 hálfra stuðla er hekluð 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur og 1 fastalykkja<br />
<br />
= á milli 2 hálfra stuðla er hekluð 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur og 1 fastalykkja

útaukningsumferð = útaukningsumferð
sýnir síðustu umferð frá fyrri mynsturteikningu, umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið í síðustu umferð! = sýnir síðustu umferð frá fyrri mynsturteikningu, umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið í síðustu umferð!
umferðin er útskýrð í uppskrift, umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið í næstu umferð! = umferðin er útskýrð í uppskrift, umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið í næstu umferð!
5 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér = 5 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
kemur í stað fyrsta stuðul í byrjun umferðar með 3 loftlykkjum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = kemur í stað fyrsta stuðul í byrjun umferðar með 3 loftlykkjum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
skiptið út fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar með 1 loftlykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar = skiptið út fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar með 1 loftlykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar
Diagram for DROPS 177-10
Diagram for DROPS 177-10
Diagram for DROPS 177-10
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (170)

country flag Teresa Hoover skrifaði:

I’m not sure how to work the decreases in the mesh pattern of the sleeves

01.03.2018 - 16:13

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hoover, the decrease on sleeve is explained under DECREASE TIP at the beginning of the pattern. Happy crocheting!

01.03.2018 - 16:58

country flag April skrifaði:

I found it!!!! just needed my glasses....lol Thanx

27.02.2018 - 03:35

country flag April skrifaði:

I do not see diagram A.1 A.2

27.02.2018 - 02:36

country flag Kathy Mendel skrifaði:

I didnt find any where in the instructions that told you how much yarn to buy. I would like to make the spring fling white jacket in the cotton size lg. Could you please tell me how much yarn to buy for the pattern?

23.02.2018 - 13:32

DROPS Design svaraði:

Dear Kathy, for the size L/XL you will need 950 g of DROPS Paris (it means 19 skeins). Kind regards

23.02.2018 - 14:37

country flag Lillian Howell skrifaði:

Hi, I've not worked by diagram. I have chain 5 and slip stitch to form a circle, but haven't figured out how to do A1 then go to A2 or even any further. I do understand the symbols for the stitches, but don't understand how to get started from the circle. I know to chain 3, but what do I do from that point? Do I do 1 chain, 1 double, etc. from the right in A1 to the left in A2? I also don't understand how to finish A1. Is the circle crocheted in panels or is it a circle that goes in rounds?

31.01.2018 - 15:26

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Howell, the circle is worked in the round, work first end of A.1 starting from the 3 ch (= 1 ch on round 1), then repeat A.2 a total of 5 times in the round and finish with last part of A.1 (= beg of A.1, just before the 3 chains = 1 dc, 1 ch, 1 sl st in 3rd ch from beg of round). Continue that way working round 2 in A.1, then repeating round 2 in A.2 and finishing with round 1 at the beg of A.1. Happy crocheting!

31.01.2018 - 15:52

country flag Alexandra skrifaði:

Hallo, ich habe ein Verständnisproblem bei den Zunahmen. Ich habe bis A5 und dann bei alle Größen die 2. Runde fertig. Jetzt heißt es, ich soll 33 Maschen gleichzeitig zunehmen. Muss ich die nur vorne und hinten zunehmen oder auch über den Armlöchern? Gibt es einen Trick, der mir hilft, auszurechnen, nach wievielen Maschen ich wieder zunehmen muss? Lieben Dank!

06.01.2018 - 09:59

DROPS Design svaraði:

Liebe Alexandra, diese 33 Maschen sollen um der gesamte Runde zugenommen werden - siehe hier Tipp um die Zunahmen gleichmäßig zu verteilen. Viel Spaß beim häkeln!

08.01.2018 - 08:58

Sue Lopez skrifaði:

Thank you! I think it makes sense!!

28.11.2017 - 18:04

Sue Lopez skrifaði:

Finished round 6 of xxl, 264 dc. Next is all sizes -but its chain spaces not continuation of A.5 round 3. If I go to A.7 it shows 2 rows of chains not the one that is listed, followed by 3 rows of inc dc. I'm not sure which diagram and rows are correct.

27.11.2017 - 16:16

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Lopez, after you have worked the first 2 rounds in A.5 and get the 264 dc, work A.5 from row 1 again (= 88 ch-spaces), then work row 2 to 4 in A.5 increasing eenly 33 dc on row 1, 15 dc on row 2 and 18 dc on row 3 = 330 dc. A.5 has been worked 1 time in height, work now A.6 in the round (= 55 fans on row 1). Happy crocheting!

28.11.2017 - 08:45

country flag Nina Garland skrifaði:

I love this and it is so beautiful. I understand we are suppose to make it by diagram. Instead is there any way possible to get it in written form such as, row one chain 5 then slip stitch , row two 30 double crochets in circle . I have been crocheting all my life and this is so beautiful but I cannot for the life of me figure out what I am supposed to do.

24.08.2017 - 23:13

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Garland, you will find over diagrams all symbols used in diagram, and the sts /group of sts they are matching too. Should you need any further assistance reading diagrams, you are welcome to contact your DROPS Store even per mail or telephone. Happy crocheting!

28.08.2017 - 13:19

country flag Nikki Hightree skrifaði:

RVlry says this pattern is downloadable but I can't figure out how. Is there a link or button I'm missing? Thanks

17.08.2017 - 22:34

DROPS Design svaraði:

Dear Nikki, click on the icon 'Print pattern', just after materials. Happy crocheting!

18.08.2017 - 09:59