DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Glass

Hekluð hringpeysa með gatamynstri úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-16
DROPS Design: Mynstur nr me-080
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
700-850-950 gr litur nr 23, gráblár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-500-550 gr litur nr 12, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st verði 10 á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er í hring: Allar umf með st byrja á 3 ll og enda á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, ll kemur ekki í stað fyrsta st.
Þegar heklað er fram og til baka: Allar umf með st byrja á 3 ll.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.10. Mynsturteikning A.8 sýnir hvernig umf byrjar og endar. ATH: Í mynstri A.2-A.4, A.6 og A.10 er fyrsta umf í mynstri síðasta umf frá fyrra mynstri, hún er ekki hekluð, en útskýrt er hvernig heklað er síðan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.

HRINGUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine eða Sky og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan A.1 þannig:

UMFERÐ 1: Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 12 st um hringinn, endið á 1 kl í 3. ll.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st aftan í lykkjubogann á hverjum st = 24 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 2 st aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, 1 st aftan í lykkjubogann á næsta st *, endurtakið frá *-* út umf = 36 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið síðan A.2 alls 6 sinnum hringinn. ATH: A.8 í sömu mynstureiningu er sýnt hvernig hver umf byrjar og endar. Fylgist vel með hvort st sé heklaður aftan í lykkjubogann, í eða um l (á við um allt mynstrið). Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 96 st og 24 ll í umf (= alls 120 l). Stykkið mælist ca 28 cm að þvermáli. Heklið síðan A.3 alls 12 sinnum hringinn. Þegar heklaðar hafa verið 2-3-4 umf af A.3 (hringurinn mælist ca 36-38-40 cm að þvermáli) eru 156-168-192 l í umf (= 156-168-96 st og 0-0-96 ll). Heklið nú handveg eftir stærðum:

STÆRÐ S/M:
Umf skilur sig nú út frá mynstri vegna handvegar. Heklið þannig:
Heklið UMFERÐ 3 í A.3 þannig (allir st í þessari umf eru heklaðir aftan í lykkjubogann á st): Heklið 3 ll, * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 8 st *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 26 ll, hoppið yfir 26 st (= handvegur), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st í hvern af næstu 5 st JAFNFRAMT er aukið út um 1 st, 26 ll, hoppið yfir 26 st (= handvegur), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 116 st og 26 ll fyrir hvora ermi (= alls 168 l).
Heklið UMFERÐ 4 Í A.3 þannig (allir st sem heklaðir eru í st, heklast í þessari umf aftan í lykkjubogann): Heklið 3 ll, ** 1 st í fyrsta/næsta st/ll, 1 ll, * 1 st í næsta st/ll, 1 ll, hoppið yfir 1 st/ll *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st/ll, 1 ll, 1 st í næsta st/ll, 1 ll, hoppið yfir 1 st/ll **, endurtakið frá **-** 11 sinnum til viðbótar, heklið einnig svona yfir ll-bogana (= ermar), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 96 st og 96 ll (= alls 192 l). Heklið nú A.3 áfram eins og áður. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 192 st í umf. Heklið síðan A.4 alls 24 sinnum hringinn.

STÆRÐ L/XL:
Umf skilur sig nú út frá mynstri vegna handvegar. Heklið þannig:
Heklið UMFERÐ 4 í A.3 þannig (allir st í þessari umf eru heklaðir aftan í lykkjubogann): Heklið 3 ll, ** 1 st í fyrsta/næsta st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar, heklið 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, heklið 28 ll, hoppið yfir 28 st (= handvegur), endurtakið frá **-** alls 4 sinnum, heklið 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 stí næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 28 ll, hoppið yfir 28 st (= handvegur), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 65 st og 119 ll (= 28 ll fyrir hvora ermi, alls 184 l).
Heklið UMFERÐ 5 Í A.3 þannig (allir st sem heklaðir eru í st, heklast í þessari umf aftan í lykkjubogann): Heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll. Yfir ll-bogann fyrir hverja ermi er heklað þannig: Heklið * 1 st í hverja og eina af fyrstu 6 ll, 2 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 192 st. Haldið síðan áfram með mynstur A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 192 st í umf. Heklið síðan A.4 alls 24 sinnum hringinn.

STÆRÐ XXL/XXXL:
Umf skilur sig nú út frá mynstri vegna handvegar. Heklið þannig:
Heklið UMFERÐ 5 í A.3 þannig (allir st sem heklaðir eru í st eru heklaðir í þessari umf aftan í lykkjubogann): Heklið 3 ll, * 1 st í fyrsta/næsta st, 1 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* 24 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st, 30 ll, hoppið yfir 15 st og 15 ll (= alls 30 l) fyrir handveg, hoppið yfir 15 st og 15 ll (= alls 30 l) fyrir handveg, * heklið 1 st um næstu ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 39 sinnum til viðbótar, 1 st um næstu ll, 30 ll, hoppið yfir síðustu 15 st og 15 ll (= handvegur), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 132 st og 30 ll fyrir hvora ermi (= alls 192 l). Heklið síðan A.4 alls 24 sinnum hringinn. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll, * 3 ll, hoppið yfir 3 st/ll *, endurtakið frá *-* 23 sinnum til viðbótar, heklið einnig svona yfir ll-bogana (= ermar), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48 ll-bogar.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240 st í umf. Stykkið mælist ca 54 cm að þvermáli. Heklið síðan A.5 alls 24 sinnum hringinn. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 336 st í umf. Stykkið mælist ca 76 cm að þvermáli. Heklið síðan A.6 alls 42 sinnum hringinn JAFNFRAMT í síðustu umf á A.6 er aukið út um 2 st jafnt yfir með því að hekla 2 st í sama st. Þegar A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 380 st í umf. Heklið síðan A.5 alls 38 sinnum hringinn eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
Heklið 5 umf af A.5 = 494 st. Heklið síðan 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st JAFNFRAMT er aukið út um 42 st jafnt yfir (aukið ca 1 st út í 12. hverjum st) = 536 st í umf. Stykkið mælist nú ca 110 cm að þvermáli. Heklið síðan A.6 alls 67 sinnum hringinn. Klippið frá og festið enda þegar 2 fyrstu umf í A.6 eru heklaðar. Stykkið mælist ca 114 cm að þvermáli.

STÆRÐ L/XL:
Heklið A.5. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 532 st í umf. Heklið nú 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st JAFNFRAMT er aukið út um 36 st jafnt yfir (= aukið út ca 1 st í 15. hverjum st) = 568 st. Stykkið mælist ca 118 cm að þvermáli. Heklið nú A.6 alls 71 sinnum hringinn. Klippið frá og festið enda þegar 2 fyrstu umf af A.6 hafa verið heklaðir. Stykkið mælist ca 122 cm að þvermáli.

STÆRÐ XXL/XXXL:
Heklið A.5. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 532 st í umf. Heklið nú 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st JAFNFRAMT er aukið út um 36 st jafnt yfir (= aukið út ca 1 st í 15. hverjum st) = 568 st. Stykkið mælist ca 118 cm að þvermáli. Heklið nú A.6 alls 71 sinnum hringinn. Þegar A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 639 st í umf. Stykkið mælist ca 125 cm að þvermáli. Heklið 1 umf með 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st JAFNFRAMT er aukið út um 9 st jafnt yfir = 648 st. Heklið A.6 alls 81 sinni hringinn. Klippið frá og festið enda þegar 2 fyrstu umf af A.6 hafa verið heklaðar. Stykkið mælist ca 130 cm að þvermáli.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka, ofan frá og niður. Fyrst er hekluð ermakúpa. Heklið A.7 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni eru 25 st í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 14-16-18 lausar ll, heklið síðan 1 st í hvern st frá A.7, endið á 17-19-21 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með). Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja og eina af næstu 13-15-17 ll, 1 st í hvern st, 1 st í hverja ll = 53-57-61 st. Heklið nú 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st á hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 fyrstu st saman og 2 síðustu st saman (= 2 st færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-3-3½ cm millibili 10-10-9 sinnum til viðbótar = 31-35-41 st. Þegar stykkið mælist 38-39-40 cm heklið síðan stykkið í hring þannig: Heklið A.9 alls 6-7-8 sinnum hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 1-0-1 st = 30-35-40 st. Í síðustu umf í A.9 er fækkað um 2-3-4 st jafnt yfir = 28-32-36 st. Heklið síðan A.10 alls 7-8-9 sinnum hringinn. Klippið frá og festið endann þegar A.10 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 63-64-65 cm. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið niður ermar við hringinn yst í lykkjubogann. Saumið sauma undir ermum.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í st
symbols = fl í miðju st
symbols = fl um ll-boga
symbols = st aftan í ll-boga
symbols = st um ll-boga/hring
symbols = st í báða ll-boga
symbols = umf byrjar með 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll
symbols = umf byrjar með 1 ll og endar á 1 kl í fyrstu ll
symbols = 1 fl um ll, 3 ll, 1 fl um sömu ll
symbols = 7 st um ll-boga
symbols = 7 st í fl
symbols = heklið 1 tbst aftan í ll-bogann, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), 1 tbst í hverja og eina af 3 næstu l alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni
symbols = 5 st í miðju ll
symbols = hver umf byrjar á 4 ll og endar á 1 kl í 4. ll
symbols = 5 ll, 1 kl í fyrstu ll
symbols = 3 ll, 1 kl í fyrstu ll
symbols = heklið 2 st í sama st
symbols = síðasta umf frá fyrra mynstri, þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (190)

country flag Judi Stuffins wrote:

Hello, I'd really like to make my drops 164-16, much longer than the pattern so that it is nearly full length. I've just completed the second chart A5 and increased every 15 stitches to get 568 tr. (size XXL/XXXL) Would you recommend i do chart A5 again to make the garment longer before doing A6? I have a photo of what someone else has done but I'm not proficient enough to know how they extended it. I dont know if i can attach a photo here to help?

15.04.2024 - 16:21

DROPS Design answered:

Dear Judi, please understand that with many thousands of patterns available on our site, we cannot modify them to each individual request. Happy Crafting!

15.04.2024 - 20:21

country flag Melise Boardman wrote:

I'm working on the sea glass cardigan and am at A3 row 4 (the DC, chain 1, DC round) the last time I worked this round it was DC, chain 1, DC in the next stitch (inc), then work 9 stitches in chain1 DC. Now when I work this row how do I do it? I have 588 stitches in the round

10.04.2024 - 09:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Boardman, after row 3 you have 14 sts in each A.3 in width; on row 4 you will increase 2 stitches in each A.3 in width working *(1 dc, 1 ch, skip 1 dc) x 7, 1 dc in next stitch, 1 chain, skip 1 dc*, repeat from *-* (= 16 sts - 8 dc + 8 chains) all the round. The total number of sts depends on your size. Happy crocheting!

10.04.2024 - 13:45

country flag Melise Boardman wrote:

I'm still working through the pattern and am up to the chain 1 increase row. The last time I did this row it was DC,ch,DC,9 stitches. I have 588 stitches in this row. Do I still do DC,ch,DC, 9 stitches? As that doesnt math correctly. Please help

04.04.2024 - 07:31

DROPS Design answered:

Dear Melise, which size and chart are you working and in which specific increase row are you now?

07.04.2024 - 23:50

country flag Anna wrote:

Hei, olen tekemässä hihaa kohdassa "Kun työn pituus on 4 cm, kavenna kummassakin reunassa 1 p, virkkaamalla krs:n ensimmäiset ja viimeiset 2 p yhteen (työstä kapeni 2 p)." Miten teen kavennuksen kerroksen alussa? Virkkaan 3 kjs, sitten 1 p - miten tämä kaventuu? Kerroksen kaksi viimeistä osaan kaventaa ohjeessa olevan erillisen kavennusohjeen mukaan. Kiitos jo etukäteen!

10.03.2024 - 12:09

DROPS Design answered:

Hei, kavennus tehdään 3 ketjusilmukan sisäpuolella. Eli virkkaa 3 ketjusilmukkaa, virkkaa sitten seuraavat 2 pylvästä yhteen.

17.04.2024 - 17:35

country flag Alphayard wrote:

Bonjour je suis sur le motif A3 dans la section sur le côté à 8 je vois des numéros 2 3 4 5 qu'est-ce que ça veut dire s'il vous plaît

14.02.2024 - 19:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alphayard, les numéros à droite correspondent au rang correspondant: 2 = 2ème rang de A.3, 3 3ème rang de A.3 etc.En fonction de la taille, vous allez crocheter 2, 3 ou 4 tours de A.3 puis crocheter le tour suivant comme indiqué dans les explications (différemment selon la taille), c'est le tour où vous allez créer les emmanchures: sauter des mailles remplacées par des mailles en l'air. Bon crochet!

15.02.2024 - 07:29

country flag Antje wrote:

Hi there, could you possibly clarify what you say in "CROCHET INFO", that the first 3ch does NOT replace first dc? I don't understand how this is supposed to work when crocheting in the round - already in A2 in the first row I then have at the beginning a 3ch and a 2dc which basically comes out as 3dc when I slip stitch into the 3dc? Could you clarify? Thanks !

08.10.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Dear Antje, you work 3ch and then work 2dc. The 3ch are not part of the pattern and just allow the beginning of the round to be less tight. So they are only the start of the round, but aren't part of the repeats of the pattern in the round. You work the slip stitch over the 3ch, not 3dc. Happy crochetting!

09.10.2023 - 00:09

country flag Claudia Hannes wrote:

Leider eine ganz schreckliche Anleitung, nach mehrmals Ribbeln geb ich jetzt auf, soviele Fragen kann ich gar nicht stellen 🙈😂

11.09.2023 - 13:37

country flag Claudia Hannes wrote:

Ok, langen Text geschrieben, der komplett gelöscht wurde, oh man, genauso konfus wie die Anleitung....schade...aber ok, ich such mir eine andere Anleitung....

11.09.2023 - 13:36

country flag Pacheco Christine wrote:

What does the A stand for. This is the most confusing pattern I’ve ever looked at!!

10.08.2023 - 00:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pacheco, the A stands for the diagrams name, then all diagrams do have a number: A.1, A.2, A.3 etc... read more about diagrams here. Happy crocheting!

10.08.2023 - 09:37

country flag Amanda Kailey MacNaughtan wrote:

Both comment/question. Neurodivergnt, cannot make sense of this at all. Is there an actual written pattern as opposed to a series of cut up diagrams that one can't make sense out of? I can read diagrams, however this makes zero sense and I can't for the life of me figure it out. I'm now looking for something else to work on. Sorry.

23.03.2023 - 19:25