Dilou skrifaði:
Pouvez vous m expliquer , car désolée mais je debute avec les aiguilles circulaires , pour le point fantaisie que veut dire une maille endroit sur endroit et une maille envers sur l endroit ? Comment sait on si on est à l endroit ou à l envers ? Mercide vos reponses
21.01.2018 - 18:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Dilou, quand on tricote en rond, on tricote toujours sur l'endroit, les cases blanches du diagramme vont ainsi se tricoter à l'endroit tous les tours (et les points noirs à l'envers tous les tours). Quand vous continuez le dos et le devant séparément, le rang avec la diminution et le jeté doit toujours être fait sur l'endroit, sur l'envers vous tricotez les cases blanches à l'envers (= jersey endroit) et les points noirs à l'endroit (= jersey envers). Bon tricot!
22.01.2018 - 10:12
Ida skrifaði:
Hei, ønsker svært gjerne å strikke denne genseren i Drops Cotton Merino. Bør jeg gå ned til pinne 4 da?
29.08.2017 - 22:23DROPS Design svaraði:
Hei Ida. Denne genseren er strikket i DROPS Air som tilhører garngruppe C. DROPS Cotton Merino tilhører garngruppe B (C er tykkere enn B). Om du bytter garn og går ned i pinnestørrelse, vil ikke maskeantallet gi de målene som er oppgitt i oppskriften stemme. F.eks 17 masker glattstrikk på pinne 5 i Air blir 10 cm, men i Cotton Merino må du ha 21 masker på pinne 4 for å få 10 cm. Om du ønsker å strikke denne genseren bør du holde deg til garn i garngruppe C (garn som har samme strikkefasthet som er oppgitt i oppskriften). God Fornøyelse.
30.08.2017 - 08:29
Bodil Jensen skrifaði:
Er der mon fejl i diagrammets forklaring? - vrang fra retsiden, ret fra vrangen - står ud for 2 forskellige tegn fra diagrammet
24.01.2017 - 22:14DROPS Design svaraði:
Hej Bodil. Ja, det er en lille fejl i den danske opskrift. Den förste er vrang fra retten og den anden skal vaere 1 sla om mellem to masker. Vi skal faa det rettet. Tak.
25.01.2017 - 14:01
Carmen skrifaði:
Muy bonito y apropiado para primavera.Me gustaría tejerlo
15.12.2016 - 23:39
Hege Engevold skrifaði:
Vedder på at denne er lun og myk å ha på. Fin til norske sommerkvelder :-)
14.12.2016 - 20:55
Summer Sky#summerskysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-27 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett í miðju á 4 lykkjunum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-180-196-216-236-256 lykkjur á hringprjóna 5 með Air. Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 84-90-98-108-118-128 lykkjur (= hliðar). Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 15-18-22-23-28-33 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 14-14-14-16-16-16 lykkjur), A.2 (= 26-26-26-30-30-30 lykkjur), A.3 (= 14-14-14-16-16-16 lykkjur), prjónið sléttprjón umferðina út. Haldið svona áfram með mynstur og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 78-84-92-102-112-122 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-3-4-4 sinnum = 68-72-74-82-86-90 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið nú af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 19-21-21-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið af. Prjónið síðan hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 78-84-92-102-112-122 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki = 68-72-74-82-86-90 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-52-54-56 cm. Setjið nú miðju 22-22-22-22-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-3-3-3 sinnum = 19-21-21-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 34-36-38-38-40-42 lykkjur á sokkaprjóna 5 með Air. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-8-8-8-6-10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-16-17-18 sinnum = 56-60-64-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á stutta hringprjóna. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-3-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-5-5-6 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar á hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 52-52-52-51-51-51 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni á hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53-53-53-52-52-52 cm. Prjónið aðra ermi alveg á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 80 til 92 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umf slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.