DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Mauve

Prjónað sjal með gatamynstri og röndum úr DROPS Brushed Alpaca Silk, prjónað ofan frá og niður.

DROPS 177-20
DROPS Design: Mynstur nr as-076
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst ca 170 cm.
Hæð fyrir miðju ca 55 cm.

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 17, ljós fjólublár
50 g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkju x 21 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
Þegar stykkið mælist ca 35 cm á að prjóna rendur með 1 umferð með hvorum lit. Það þýðir að prjónuð er 1 umferð með litnum ljós fjólublár og 1 umferð með litnum natur á eftir hverri annarri frá sömu hlið á stykki. Vegna þessa þá verður að auka út öðruvísi en í fyrra mynstri A.x á hliðum. Fylgið útaukningu í mynstri í A.x yfir A.3, en fylgið útskýringu að neðan til að auka út í hliðum. Örvar í mynsturteikningu sýna stefnu sem prjónað er í.
UMFERÐ 1 = rétta: Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar (þetta er 1. umferð í A.x).
Snúið stykkinu ekki við!
UMFERÐ 2 = rétta: Notið litinn ljós fjólublár til að gera 2 nýjar lykkjur í byrjun á umferð frá réttu (geriði lykkjur sem settar eru snúnar á prjóninn), prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu (þetta er 2. umferð í A.x).
Snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 = ranga: Notið litinn natur til að gera 2 nýjar lykkjur í byrjun á umferð (gerið lykkjur sem settar eru snúnar á prjóninn), prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (þetta er 3. umferð í A.x).
Snúið stykkinu ekki við!
UMFERÐ 4 = ranga: Skiptið yfir í litinn ljós fjólublár og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fitjið upp 2 nýjar l í lok umferðar (þetta er 4. umferð í A.x). Snúið stykkinu.

Endurtakið þessar 4 umferðir þar til prjónaðir hafa verið 10 cm með röndum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjóna nr 6 með litnum ljós fjólublár. Prjónið eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón og fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 16 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.2, A.3 og A.4 þannig: A.2 yfir 2 lykkjur, A.3 er endurtekið fram þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 4 sinnum) og prjónið A.4 yfir 2 lykkjur. ATH! Lykkjur eru auknar út í allri mynstureiningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 76 lykkjur í mynstri. Setjið inn 4 prjónamerki, 1 prjónamerki í miðjulykkjuna á hverri endurtekningu af A.3. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, prjónamerkin auðveldara fyrir að sjá hvar auka eigi út (gera gatamynstur).

Endurtakið síðan útaukningu í hliðum eins og útskýrt er í A.x, þ.e.a.s. fitjaðar eru upp 2 nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið.
Útaukning (gatamynstur) í miðju á hverri endurtekningu af A.3 halda áfram eins og útskýrt er í A.X og fjöldi lykkja hvoru megin við A.3 fjölgar, látið því prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

Haldið svona áfram að auka út og prjóna þar til stykkið mælist ca 35 cm (mæld hæð fyrir miðju á stykki) og passið uppá að næsta umferð er 1. umferð í A.x.

Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með rendur og útaukningu í hliðum eins og utskýrt er frá að ofan og útaukningu (gatamynstur) eins og útskýrt er í A.x yfir A.3 þar til stykkið mælist ca 45 cm (mæld hæð mitt á stykki) og passið uppá að næsta umferð sé 1. eða 4. umferð í A.x.

Prjónið nú áfram með litnum natur, en nú er aukið aftur út í hliðum eins og útskýrt er í A.x, útaukning/gatamynstur yfir A.3 heldur áfram eins og útskýrt er í A.x þar til stykkið mælist ca 55 cm, passið uppá að næsta umferð sé frá röngu.

Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Notið tvöfaldan þráð og fellið laust af í næstu umferð með sl frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2019
Leiðrétting: Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 76 lykkjur í mynstri.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 2 nýjar lykkjur eftir þessa lykkju (þetta tákn er ekki notað þegar prjónaðar eru rendur – sjá útskýringu undir RENDUR)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = sýnir prjónstefnu þegar rendur eru prjónaðar
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag ScGabriele wrote:

Ich zähle am Ende des Diagramm A1 mit Umschlag nur 15 Maschen nicht 16?

05.06.2022 - 00:18

DROPS Design answered:

Liebe ScGabriele, A.1 beginnt über 4 Maschen und es werden 2 Maschen am Ende jeder der nächsten 6 Reihen angeschlagen , so haben Sie 4 M + 2 x 6 = 16 Maschen auf der Nadel. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2022 - 08:22

country flag Mariana wrote:

No me resultan muy claras las instrucciones, sobre todo la sección referida a las rayas o stripes. Me encantaría si hicieran un video explicando este patrón y como se debe leer el diagrama, como agregar puntos al final de la fila , no me queda claro como se agregan, veo que en youtube tienen videos sobre ciertos patrones. Gracias!

05.02.2022 - 07:49

DROPS Design answered:

Hola Mariana, no hacemos videos personalizados, pero cada vez vamos añadiendo más vídeos a nuestra colección, puedes seguir nuestras redes sociales para ver los nuevos videos que se publiquen. En todos casos, tienes bajo el patrón una lista de vídeos y lecciones que pueden ayudarte a realizar la labor.

05.02.2022 - 18:32

country flag Hannelis Olsen wrote:

Jeg har strikket A1 en gang nu går jeg videre til A2 strikker 2 masker nu er det A 3 strikker jeg en maske slår om strikker en maske slår om og videre i alt 4 gange det kan jeg ikke få til t passe der er jo 16 masker på pinden så det bliver megen end 4 gange Det er sådan jeg læser det håber du vil hjælpe mig Mvh Hannelis

19.03.2020 - 15:48

DROPS Design answered:

Hei Hannelis. Du har 16 masker når A.1 er ferdig strikket. Nå strikker du A.2 (over 2 masker), så A.3 4 ganger (over 12 masker) og til slutt A.4 (over 2 masker). 2+12+2 = 16 masker. Når 1. rad er strikket, har du 16 masker og 8 kast på pinnen. God Fornøyelse!

23.03.2020 - 09:48

country flag Barbara wrote:

I have completed the diagrams A2-A4 and am still struggling to understand this pattern, ending up with over 80 stitches instead of 58. What have I done wrong. Could you please tell me how many stitches should be on the needle at the end of each patterned row (A3, rows 1, 3, 7, 11, 15). Thanks.

04.03.2019 - 19:15

DROPS Design answered:

Dear Barbara, when diagrams are worked one time in height you should have 76 sts (pattern has been edited): 20 sts in A.2, 9 sts in each of the 4 A.3 and 20 sts in A.4. Happy knitting!

07.03.2019 - 09:29

country flag Barbara wrote:

Diagramm 3: is there an increase in this row? Please give further explanation of: between 2 stitches make 1 yarn—over = knit 2 stitches together. Is that , two stitches together after the yarn—over?

27.02.2019 - 08:57

DROPS Design answered:

Dear Barbara, you are increasing in diagram A.3 on row 1 (= K1, YO, K1, YO, K1), as well as on the rows where you will work 1 YO on each side of the middle st in A.3, on the row with dec and YO there will be no decreases, but you will have one more hole. Happy knitting!

27.02.2019 - 09:11

country flag ALLINSON SHERRATT wrote:

Hi, I've just finished knitting this & wonder if you added a crochet edge to the top. From the photograph it seems similar to the cast off edge. Did you block it before photographing it as the sides of mine look frilly ? I've started another one which I think I will knit in just one colour!!!

12.05.2018 - 13:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sherrattt, there is no crochet edge along the top but you can work one if you like to. You can block your work to the finsihed measurements to get it flat. Happy knitting!

14.05.2018 - 09:40

country flag Birgit Stauenberg wrote:

Jeg kan ikke få maskeantallet til at passe. Hvis jeg strikker A2, A3, A4 og stopper lige under linjen med X, så er der 52 masker og ikke 58? Mvh. Birgit

05.03.2018 - 16:36

DROPS Design answered:

Hej Birgit, tror du at du mangler en pind med 6 udtagninger, det er svært at gætte sig til hvor den mangler. Du ser alle udtagninger i diagrammerne. Held og lykke!

13.03.2018 - 15:59

country flag Nicki wrote:

Dear Drops-Team, Sorry I still don't understand. Do I cast on two stiches at the start and at the end of each row? Or only at the end? Many thanks

07.08.2017 - 18:56

DROPS Design answered:

Dear Nicki, you will increase either at the beginning or at the end of the row, follow arrows in diagram showing knitting direction and increase when there is the 2nd symbol in diagram saying "knit 1 stitch and cast on 2 new stitches after this stitch". Happy knitting!

08.08.2017 - 08:53

country flag Nicki wrote:

I'm starting A.x. Diagram and I'm wondering what's meant with 'cast on 2 new stitches at the end of every row in each side', specifically in each side? As the increases are shown just on one side of a row (the end of a row), where is the other side supposed to be? Many thanks

07.08.2017 - 09:09

DROPS Design answered:

Dear Nicki, the two stitches should be cast on at the end of each row, in other words, each side of the shawl, thus it will be simmetric at the end. Happy Knitting!

07.08.2017 - 16:58

country flag Miriam Duguid wrote:

I would like to knit Sweet Mauve by Drops Pattern but don't see the amounts of Brushed Alpaca Silk I would need in the pattern. Can you help me?

29.01.2017 - 00:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Duguid, you will find required amount of yarn under tab "Materials" (with needle size and tension), ie: 50 g in each colour - Brushed Alpaca Silk = 25 g balls, read more here. Happy knitting!

30.01.2017 - 11:36