Agneta skrifaði:
"När arb mäter 14-14-13-16 cm mitt fram ökas det 2 m fram och bak" är det inklusive "Sticka resår 1 rm, 2 am över alla m i 4 cm"?
04.02.2019 - 20:21DROPS Design svaraði:
Hei Agneta. Du måler fra oppleggskanten så lenge det ikke står at du skal måle annerledes, så vrangborden er inkludert i de 14-14-13-16 cm. God fornøyelse
08.02.2019 - 13:52
Elisabeth skrifaði:
Ist es möglich, für dieses Modell noch ein Schnitt-Schema mit den Maßen zu veröffentlichen? Oder vielleicht für die Shorts aus der neuen Kollektion? Danke
09.06.2017 - 11:36DROPS Design svaraði:
Liebe Elisabeth, für dieses Modell können wir leider keine Schnitt-Schema veröffentlichen, jedoch finden Sie passenden Umfang in jeder Größe unter Tab "Material". Ihre Anfrage wird unserem Design Team weitergeleitet. Viel Spaß beim stricken!
09.06.2017 - 13:28
Ewa Svensson skrifaði:
Har stickat ett par "mamelucker" efter den här beskrivningen. Beskrivningen är lätt att följa. Jag gjorde dock några små avsteg: använde Drops Cotton Merino istället, gjorde extra elastisk uppläggning avmaskade med en picotkant. Detta kan du se och läsa om i min blogg.
06.01.2017 - 11:29
Erika skrifaði:
Hurray! Warm woolies for under winter skirts! I've been looking for a pattern to show me how to make some bloomers that are nicely fitted at the top. These could be lengthened to make a pair of winter leggings, or perhaps widened in the legs for a nice pair of flowing linen wide-leg pants. Add a ruffle to make them into bloomers? I'd have to see the pattern, but I'm grooving on the idea of knitted pants lately...
25.07.2016 - 16:38
Carola Eriksson skrifaði:
Fantatiskt!! Mycket användbara och precis vad min man efterfrågat till fisket!! Den måste komma med! Amasing, Very Useful and practical! and exactly what my husband asked me to make. Please include!
29.06.2016 - 20:43
Annukka skrifaði:
Love then :) Name suggestion "Grannies"
24.06.2016 - 22:11
Sabine skrifaði:
Ja, die Anleitung brauche ich ganz dringend. :-)
24.06.2016 - 21:33
Tone Gerd Utheim Frismo skrifaði:
Vil veldig gjerne ha denne oppskriften!
12.06.2016 - 15:35
Maria Nilsson skrifaði:
Vore skönt att ha under en kjol eller klänning!
11.06.2016 - 20:54
Nina skrifaði:
Denne vil vi ha til vinteren
08.06.2016 - 15:09
Winter Warmer#winterwarmertights |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar buxur úr DROPS Merino Extra Fine með stroffprjóni í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA (á við um skálmar): Lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerki þannig: Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BUXUR: Fitjið upp 144-168-192-216 l á hringprjóna nr 3 með Merino Extra Fine. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 72-84-96-108 l (= miðja að framan). Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br yfir allar l í 4 cm. Prjónið síðan upphækkun að aftan þannig (haldið áfram í stroffprjóni): Prjónið 9 l stroffprjón, snúið við, herðið á þræði, prjónið 17 l stroffprjón til baka, snúið við, herðið á þræði, prjónið 26 l í stroffprjóni. Haldið svona áfram með því að prjóna 9 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 107-125-143-161 l. Snúið við í síðasta skipti til að vera á réttunni á stykkinu. Prjónið að prjónamerki að aftan = byrjun umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan í hring yfir allar l þannig: 21-27-33-39 l sléttprjón, 31 l stroffprjón eins og áður, 41-53-65-77 l sléttprjón, 31 l stroffprjón eins og áður og 20-26-32-38 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 14-14-13-16 cm við miðju að framan er aukið út um 2 l að framan og að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf alls 7-8-10-9 sinnum = 172-200-232-252 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-31-34-36 cm við miðju að framan eru felldar af fyrstu 6-7-8-8 l á eftir prjónamerki við miðju að aftan, prjónið næstu 74-86-100-110 l og setjið þær síðan á þráð (= skálm), prjónið næstu 12-14-16-16 l og látið þær vera eftir á prjóninum (= op), prjónið næstu 74-86-100-110 l og setjið þær síðan á þráð (= skálm), fellið af þær 6-7-8-8 l sem eftir eru, klippið frá. Prjónið síðan 11-12-13-14 cm sléttprjón fram og til baka yfir 12-14-16-16 l á prjóni, fellið af og saumið opið saman við þær 12-14-16-16 l sem felldar voru af við miðju að aftan. HÆGRI SKÁLM: Setjið 74-86-100-110 l af þræði í hægri hlið á stutta hringprjóna nr 4, prjónið að auki upp 25-26-28-31 l meðfram annarri hliðinni á opinu = 99-112-128-141 l. Setjið 1 prjónamerki í innanverða skálmina (þ.e.a.s. mitt í þær l sem prjónaðar voru upp meðfram opinu) = byrjun umf. Prjónið síðan stroffprjón yfir 31 l í hlið eins og áður, hinar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar skálmin mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3-1½-1-1 cm millibili alls 6-11-16-18 sinnum = 87-90-96-105 l (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar það eru orðnar of fáar l fyrir hringprjóna). Prjónið síðan áfram þar til skálmin mælist ca 21-22-23-24 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3, prjónið nú stroffprjón 1 l sl, 2 l br yfir allar l (haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br í hlið). Prjónið stroffprjón í 4 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRI SKÁLM: Setjið til baka l frá hinum þræðinum á prjóninn og prjónið á sama hátt og hægri skálm. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterwarmertights eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.