DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 165-32
DROPS Design: Mynstur nr fa-318
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Mittismál: ca 82 - 90 - 98 - 108 - 116 - 130 cm.
ATH! Mælt ca 10 cm neðan við nafla, ekki þar sem er breiðast.
Vegna stroffprjóns koma buxurnar til með að dragast saman, en þær eru mjög teygjanlegar, prjónaðu þá stærð sem þú er vön að nota.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
350-400-450-500-500-550 g nr 904, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 35 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón, þ.e.a.s. prjónið 2 fyrstu lykkjur sem auknar eru út slétt, 2 næstu lykkjur brugðið o.s.frv.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið í aftari lykkjubogann) (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LEGGINGS / BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umf byrjar við miðju að aftan.

LEGGINGS / BUXUR:
Fitjið upp 216-240-256-280-304-344 l á hringprjón nr 2,5 með DROPS Fabel. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 108-120-128-140-152-172 l (= miðja að framan). Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br, 1 l sl.
Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið 11 l stroffprjón, snúið við, herðið á þræði, prjónið 22 l stroffprjón til baka, snúið við, herðið á þræði, prjónið 32 l stroffprjón. Haldið svona áfram með því að prjóna 10 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 162-182-202-202-242-262 l. Snúið við, prjónið síðan hringinn aftur yfir allar l þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm fyrir miðju að framan.
Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðju-l framan og aftan – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 10-10-12-12-13-13 sinnum = 256-280-304-328-356-396 l. Þegar stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm fyrir miðju að framan fellið af fyrstu 7-7-7-9-9-9 l, setjið 114-126-138-146-160-180 l á þráð (= skálm), skiljið eftir næstu 14-14-14-18-18-18 l á prjóni (= klofbót), setjið 114-126-138-146-160-180 l á þráð (= skálm), fellið af þær 7-7-7-9-9-9 l sem eftir eru. Prjónið síðan 9-10-11-12-13-14 cm í stroffprjóni yfir 14-14-14-18-18-18 l fyrir klof, fellið af með sl yfir sl og br yfir br og saumið klofbótina saman við 14-14-14-18-18-18 l sem felldar voru af að aftan.

SKÁLM:
Setjið 114-126-138-146-160-180 l af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón nr 2,5, takið að auki upp 22-26-30-34-36-36 l meðfram annarri hlið í klofi = 136-152-168-180-196-216 l. Haldið áfram í stroffprjóni – setjið 1 prjónamerki að innanverðu á skálm. Þegar skálmin mælist 5 cm, fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fellið af í 10.-8.-6.-6.-5.-4. hverri umf alls 24-30-36-40-46-54 sinnum = 88-92-96-100-104-108 l. Þegar skálmin mælist ca 78-79-80-81-82-83 cm (mátið e.t.v. buxurnar á meðan verið er að prjóna, stillið af lengd á skálmum), fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið aðra skálm á sama hátt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (104)

country flag Tina wrote:

Hej. Tak for denne fine opskrift. Nu spørger den bedre halvdel om de ikke findes til herre?

26.03.2024 - 02:24

DROPS Design answered:

Hej Tina, det gør den ikke, men mon ikke du kan følge samme opskrift?

03.04.2024 - 12:05

country flag Ruth Stephen wrote:

Hi, I am knitting size XL and have completed the decreases on the first leg. While trying the leggings the length is a bit short not 81 cm when I measure from the inside (where the marker was). Do I continue up to 81cm without decreases?

07.01.2024 - 22:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stephen, correct, just continue to the requested length, but without decrease anymore. Happy knitting!

09.01.2024 - 08:04

country flag Kirsty Matthews wrote:

Hello me again!! I have got to the legs, and have started the rounds. However when I did the divide for the legs it wasn’t clear if the yarn needed to be carried around, now I have a bit of yarn restricting my leg. I will sort it out, but for future do I break yarn and then reconnect? I mean when I slip stitches onto holder, after then when I do the gusset stitches.

24.11.2023 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Kirsty, yes, you should cut the yarn and then rejoin when you start the next part of the piece. Happy knitting!

26.11.2023 - 22:47

country flag Kirsty Matthews wrote:

Hello do I have to do the short rows? Can I not just do straight rib until separation for legs?

10.11.2023 - 09:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Matthews, short rows will help to make the back higher for a better shape, reason why they are worked. Happy knitting!

10.11.2023 - 11:27

country flag Kirsty Matthews wrote:

Hello, I have cast on and tried about 5 times, and I do the short rows fine but when I go to do the next round after turning I can’t get it right- I have a hole!! How do I rectify this or can I do it without the short rows?

09.11.2023 - 20:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Matthews, work the short rows using either the basic method (see video) or for ex. with wrap and turn (see video here and here). Happy knitting!

10.11.2023 - 09:26

country flag Lisa Van Doornik wrote:

Zou ik dit patroon ook kunnen haken? Ik ben geen brei-ster.

29.08.2023 - 12:36

DROPS Design answered:

Dag Lisa,

Helaas hebben we alleen een breipatroon hiervan.

04.09.2023 - 20:33

country flag Marieke Van De Graaff wrote:

Ik moet meerderen voor en na de twee rechtse steken op middenvoor en achter door een omslag te maken. Wat ik dan graag wil weten is hoe ga ik verder met de boordsteek. Omdat ik er een aan elke kant van de rechtse bijmaak komt de boordsteek 2r 2av natuurlijk niet meer uit. Brei ik die dan rechts totdat 2r 2av weer past? Ik moet dit om de naald 13 keer doen en wil graag dat het er mooi uitziet. Kunnen jullie mij dit uitleggen? Groetjes marieke

24.04.2023 - 09:43

DROPS Design answered:

Dag Marieke,

De 2 rechte steken midden voor en midden achter blijven in tact en je probeert vanaf beide kanten zover mogelijk door te breien in boordsteek. dus als je 2 averechte steken naast de middelste rechte steken hebt en je meerdert ertussen, dan brei je de gemeerderde stek recht. Bij de volgende meerdering brei je hem ook weer recht, maar bij de meerdering daarna brei je hem averecht.

24.04.2023 - 20:30

country flag Anni Andersen wrote:

Jeg f er ikke sikker på at jeg forstår indtagningerne på benene. Når det er taget ind to gange har jeg 6 ret masker ved siden af hinanden i 10 omgange. Herefter har jeg 4 ret masker i 10 omgange. Er det rigtig læst/forstået? Synes ikke det er pænt. Er det mon forkert forstået, eller kan jeg gøre noget andet? Mvh Anni

18.01.2023 - 09:45

DROPS Design answered:

Hej Anni, jo det stemmer, det er vigtigt at ribben fortsætter over ribben, men når du tager ind vil du få flere af de samme masker ved siden af hinanden :)

19.01.2023 - 08:24

country flag Margi wrote:

Wenn die letzten 7 Maschen abgekettet sind, wird dann der Faden abgeschnitten um den Zwickel zu stricken? Oder wird mit dem gleichen Faden eine Rückreihe am Zwickel gestrickt und der so beendet?

16.12.2022 - 17:50

DROPS Design answered:

Liebe Margi, wenn die letzte 7 Maschen abgekettet werden, wird der Faden abgeschnitten, und dann den Zwickel gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2022 - 08:40

country flag Margi wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort. Wenn man es weiß, erscheint es logisch

16.12.2022 - 16:36