Ellinor skrifaði:
Kan det stämma att ärmen ska vara kortare ju större storlek man stickar? Storlek XXXL ska ha 36 cm lång ärm och storlek S ska ha 42 cm lång ärm?
23.11.2016 - 19:59DROPS Design svaraði:
Hej Ellinor. Ja, det er helt korrekt, da baerestykket er breddere i de store str.
24.11.2016 - 11:54Irena P skrifaði:
Hi, I have several questions : 1. I did not fully get the elevation part. Do u have a video or may be an illustration? 2. When do I join the stitches? Thank u
15.10.2016 - 18:32DROPS Design svaraði:
Dear Irina, when working the elevation, you will work short rows over sts on back of neck so that neckline on back piece will be higher than neckline on front piece. See technique in video below. Happy knitting!
17.10.2016 - 11:31DC skrifaði:
Thanks for reply. I have finished the yoke with a 10cm opening at the centre back. Yes, you are absolutely right, i could slip my head through the neck opening with the opening fastened. DC
30.08.2016 - 11:46DC skrifaði:
Is there an opening to Magic Web? Stitches on neck opening/neckline seem to be too tight for head to slip through. On the other hand, i could have read the instructions incorrectly. TY.
20.08.2016 - 10:00DROPS Design svaraði:
Dear DC, there is no opening to this jumper, make sure you have correct tension with needle size 4 mm so that your tension with needle size 3 mm should be correct - make sure your cast on edge is not too tight. Happy knitting!
22.08.2016 - 09:02
Anette skrifaði:
Hej Håber snart der kommer en opskrift, har købe garnet :-)
04.07.2016 - 13:58
Truus skrifaði:
Pretty sweater, would look good in puna too
21.06.2016 - 10:23
Karin skrifaði:
Den möchte ich mir stricken!
06.06.2016 - 12:01
Franca skrifaði:
Delizioso!
03.06.2016 - 16:13
Magic Web#magicwebsweater |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma, prjónuð ofan frá og niður með gatamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, mínus kanta að framan (t.d. 74) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14 l) = 5,3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 5. hverja l. Aukið út 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og er prjónað ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 74-76-80-80-86-86 l á stutta hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 14-23-30-30-35-35 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 88-99-110-110-121-121 l.. Til að fá betra form er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-13-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-26-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-39-45-45 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-52-60-60 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-65-75-75 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 66-72-78-78-90-90 l br til baka, snúið við og prjónið sl að miðju að aftan. Næsta umf er prjónuð þannig: * prjónið A.1 (= 2 l), prjónið A.2 (= 9 l – veljið mynstur fyrir rétta stærð) *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= alls 8-9-10-10-11-11 sinnum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 272-306-340-360-385-407 l í umf. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br og aukið út JAFNFRAMT 8-6-2-8-7-9 l jafnt yfir = 280-312-342-368-392-416 l (aukið út í br mynstureiningunum). Stykkið mælist nú ca 20-22-24-26-28-30 cm mælt frá miðju að framan (meðtalinn kantur í hálsmáli). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-48-53-58-63 l sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-75-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l í umf (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-116-126 l sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-68-75-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l í umf (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 40-44-48-53-58-63 l í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-212-232-256-280 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 88-96-106-116-128-140 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l svona með 2-2-2-2-3-3 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum á hvorri hlið = 160-176-196-216-244-268 l. Þegar stykkið mælist 15 cm (peysan mælist ca 39-41-43-45-47-49 cm frá öxl) aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 3½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum í hvorri hlið = 176-192-212-232-256-280 l. Þegar stykkið mælist 30 cm (peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl) skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 6 umf garðaprjón, skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 4 og fellið af með sl (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið 60-68-75-78-80-82 l af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 68-76-85-88-92-96 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (= byrjun umf) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm fækkið um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-17-20-21-22-23 sinnum = 40-42-45-46-48-50 l. Þegar ermin mælist 42-41-39-38-37-36 cm (eða að óskaðri lengd), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna nr 4 og fellið af með sl. Ermin mælist ca 44-43-41-40-39-38 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #magicwebsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.