Helen East wrote:
I am knitting Magic Web Cardigan in large. I cannot find on the pattern how many balls I will need. Can you confirm please
14.03.2020 - 22:58DROPS Design answered:
Dear Heken, the sweater is knitted from Karisma yarn (100m / 50 gramm skeins), and depending on the size you are knitting you will need 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 skeins. Happy Knitting!
15.03.2020 - 10:10Helen East wrote:
I am knitting Magic Web Cardigan in large. I cannot find on the pattern how many balls I will need. Can you confirm please
14.03.2020 - 22:56DROPS Design answered:
Dear Helen, see our answer to the other question. Happy Knitting!
15.03.2020 - 10:13Sofie Laursen wrote:
Er det rigtigt forstået, at alle masker på vrangsiden skal strikkes vrang (bortset fra de få omslag, der skal strikkes drejet ret), når der står at diagrammet viser alle pinde i mønsteret set fra retsiden? Eller hvordan skal det forståes?
11.10.2018 - 21:07DROPS Design answered:
Hei Sofie. Ikke alle masker skal strikkes vrang fra vrangsiden: De hvite rutene strikkes vrang fra vrangen, og de rutene med sort strek skal strikkes rett fra vrangen (se symbolforklaringen). De kastene med sort symbol strikkes vridd rett slik at de ikke blir hull (som du sier), mens de grå kastene skal strikkes vrang slik at det blir hullmønster. God fornøyelse
16.10.2018 - 09:07Margaretha Jonsson wrote:
Mönstret börjar med nio maskor och ska upprepas nio ggr enl stl M. Min kalkyl. 111-14=97 /9 =10,8 Jag får helt enkelt inte ihop detta.
17.09.2017 - 12:01Margaret Wright wrote:
If my chest is 107 cms and my hips are 130 cms what size would you recommend I knit. Thank you
02.07.2017 - 05:42DROPS Design answered:
Dear Margaret, since your chest size would be of the XL size and your hips size would be of the XXL size, I recommend you start knitting the XL size and to finish the piece, in the area around the hips, you do some additional increases to end with the XXL size.
02.07.2017 - 11:53Anna wrote:
U schématu v popisu značek nahozených ok je v následující kruhové řadě ,ale v kruhu se neplete. Aby dírka nevznikla pletu hladce za zadní nit a aby vznikla pletu obrace?
21.03.2017 - 18:56DROPS Design answered:
Dobrý den, děkuji za upozornění - u vysvětlivek byla skutečně chyba, nyní jsou už vysvětlivy popsány správně. Ano, pletete tak, jak píšete - dírka = obrace, bez dírky = hladce za zadní nit. Hodně zdaru! Hana
05.05.2017 - 08:14Monika wrote:
Olen tekemässä kaarroketta koko L. A2 kaavio loppuu oikeaan kerrokseen. Ohjeen mukaan pitäisi tulla 2 nurjaa kerrosta peräkkäin? Miten on mahdollista?
12.10.2016 - 14:40DROPS Design answered:
Hei! Uskon, että kainaloiden silmukat päätetään työn oikealta puolelta. Ohjeeseen tehdään tarvittaessa pian korjaus!
19.10.2016 - 16:31Cheryl Stern wrote:
Waiting patiently for this pattern....interesting design at the shoulder area.
27.06.2016 - 16:55Karin wrote:
Hoppas denna går att sticka i lite större storlek, snygg!
26.06.2016 - 21:11
Magic Web Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma, prjónuð ofan frá og niður með gatamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, (t.d. 84 l), mínus kant að framan (t.d. 10 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16 l) = 4,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í 4. og 5. hverri l (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir hnappagötum í lok umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og prjónið síðustu l slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umf frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af næstu 6 hnappagöt með ca 7-7-7½-7½-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-86-90-90-96-96 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem auknar eru út 16-25-32-32-37-37 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 100-111-122-122-133-133 l. Til að peysan passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá röngu og prjónið br þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-13-15-15 l framhjá prjónamerki (kantur að framan er prjónaður slétt), snúið við, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-26-30-30 slétt til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-39-45-45 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-52-60-60 sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-65-75-75 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 66-72-78-78-90-90 sl til baka. Snúið við og prjónið br út umf (kantur að framan er prjónaður slétt). Næsta umf er prjónuð frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið A.1 (= 2 l), prjónið A.2 (= 9 l – veljið mynstur fyrir rétta stærð) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-11 sinnum, prjónið A.1 og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 284-318-352-372-397-419 l í umf. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br og aukið JAFNFRAMT út um 6-4-0-6-5-7 l jafnt yfir = 290-322-352-378-402-426 l (aukið út í sléttri mynstureiningu, þ.e.a.s. í br mynstureiningum séð frá réttu). Stykkið mælist nú ca 20-22-24-26-28-30 cm mælt frá miðju að framan (meðtalinn kantur í hálsi). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 40-44-48-53-58-63 l sl (= hægra framstykki), setjið næstu 60-68-75-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 80-88-96-106-116-126 l sl (= bakstykki), setjið næstu 60-68-75-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-48-53-58-63 l sl og endið með 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-222-242-266-290 l. Setjið 1 prjónamerki 49-53-58-63-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 88-96-106-116-128-140 l á milli prjónamerkja á bakstykki) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l svona með 2-2-2-2-3-3 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum í hvorri hlið = 170-186-206-226-254-278 l. Þegar stykkið mælist 15 cm (peysan mælist ca 39-41-43-45-47-49 cm frá öxl) aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 3½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum á hvorri hlið = 186-202-222-242-266-290 l. Þegar stykkið mælist ca 30 cm (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu – peysan mælist nú ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl) skiptið nú yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 6 umf garðaprjón, skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 4 og fellið af með sl frá réttu (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið 60-68-75-78-80-82 l af þræði í annarri hlið á stykki yfir á stutta hringprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 l í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 68-76-85-88-92-96 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (= byrjun umf) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 2½-2-1½-1½-1½-1½.cm millibili alls 14-17-20-21-22-23 sinnum = 40-42-45-46-48-50 l. Þegar ermin mælist 42-41-39-38-37-36 cm (eða að óskaðri lengd), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna nr 4 og fellið af með sl. Ermin mælist ca 44-43-41-40-39-38 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Rojas Anita wrote:
Das ist ein sehr schönes Muster und lässt sich super einfach stricken. Den Pullover mache ich mir auch noch.
11.07.2019 - 15:09