Catherine skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas cette partie : tricoter A1 jusqu'à ce qu'il reste 6 m. Tricoter la 1ere m de A1 pour que le motif commence et se termine de la même façon. J'ai 115 m dont 10 de bordures. Le motif est sur 12m. Je peux faire 8 fois le motif et il me reste donc 9m à la fin du rang. Pouvez-vous m'expliquer comment faire ? Merci d'avance
27.05.2025 - 17:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, tricotez vos 115 mailles ainsi: 5 m de bordure devant, 8 x les 12 m de A.1, puis les 8 premières mailles de A.1 et enfin de nouveau la 1ère maille de A.1 (qui sera la même que la 9ème maille, et 5 m de bordure devant = 5+12x8+8+1+5=115. Bon tricot!
28.05.2025 - 08:15
Lisette Madsen skrifaði:
Jeg har strikket den med sort baggrund i stedet for lys eg. Sort fremhæver mønsterfarverne meget mere end lys eg og den er blivet rigtig flot.
10.09.2023 - 20:09
Palina skrifaði:
Kan inte förstå hur det blir den totala antal maskor om man stickar upp 2 till på var sida. Sätt de 59-67-73-79-81-83 m från tråden i den ena sida av arb på kort rundst 4 och sticka dessutom upp 1 m i var och en av de 8-8-10-10-12-14 m som lades upp under ärmen på fram- och bakst = 67-75-83-89-93-97 m.
19.06.2021 - 10:19DROPS Design svaraði:
Hei Palina. Litt usikker på hvor du ser at man skal strikke opp 2 til på hver side. Man setter de 59-67-73-79-81-83 maskene fra tråden i den ene side av arbeidet på liten rundpinne, strikker deretter opp 1 maske i hver av de 8-8-10-10-12-14 maskene som ble lagt opp under ermet på bolen = 67-75-83-89-93-97 masker. mvh DROPS design
21.06.2021 - 11:26
Bodil Riise Bjørnebye skrifaði:
Fargene på bildet og fargene i virkeligheten er helt forskjellig. Mye finere på bildet, så jeg ble så skuffet, men strikker likevel med fargene jeg har fått tilsendt.
26.04.2019 - 11:09
Mirja Kraack skrifaði:
Hallo, ich habe das Rumpfteil fertig und bin beim Ärmel angelangt, dass ich zu A3 wechseln soll. Irgendwie passt aber weder das Muster noch die Farbe zu dem Foto mit der Jacke. Wie geht's richtig? Viele Grüße Mirja
16.01.2017 - 15:15Laura skrifaði:
A really pretty & feminine design - love it - please include!
11.06.2016 - 08:03
Ynke skrifaði:
Beauty!
05.06.2016 - 12:17
Candy Lane Cardigan#candylanecardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa DROPS Karisma, prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 86 l), mínus kantlykkjur að framan (t.d 10 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25 l) = 3,02. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út á eftir ca þriðju hverri l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (aukið er út bæði frá réttu og frá röngu). LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur flíkin að verða of stutt og handvegur of lítill – hægt er að stilla þessu af með því að prjóna 1 auka umf með jöfnu millibili í einlitu mynstureiningunum. ATH: Ef prjónað er of laust verður flíkin of löng og handvegur og stór, þá er hægt að prjóna 1 umf færri með jöfnu millibili í einlitu mynstureiningunum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (úrtöku-l + 2 miðju-l undir ermi eru prjónaðar með litnum ljósri eik eftir allri erminni). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 l eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman og prjónið síðustu l slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fyrsta hnappagatið er fellt af í fyrstu umf frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af næstu 6-6-6-7-7-7 hnappagöt með ca 8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 86-90-92-96-98-102 l (meðdaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós eik. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem auknar eru út 25-25-27-31-33-33 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 111-115-119-127-131-135 l – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Til að peysan passi betur er nú prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá röngu með litnum ljós eik og prjónið br þar til prjónaðar hafa verið 13-13-14-15-16-17 l framhjá prjónamerki (kantur að framan er prjónaður sl), snúið við, herðið á þræði og prjónið 26-26-28-30-32-34 sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 39-39-42-45-48-51 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 52-52-56-60-64-68 sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 65-65-70-75-80-85 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 78-78-84-90-96-102 l sl til baka. Snúið við og prjónið br út umf (kantur að framan er prjónaður slétt). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 l eru eftir í umf (veljið mynstur fyrir rétta stærð), prjónið fyrstu l í A.1 (svo að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnt út í verri umf merktri með ör í mynstri eins og útskýrt er frá að neðan – LESIÐ ÚTAUKNING, LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: Aukið 40-42-44-50-56-62 l = 151-157-163-177-187-197 l. Ör-2: Aukið 40-42-44-50-56-62 l = 191-199-207-227-243-259 l. Ör-3: Aukið 30-36-38-44-48-52 l = 221-235-245-271-291-311 l. Ör-4: Aukið 30-34-36-40-44-48 l = 251-269-281-311-335-359 l. Ör-5: Aukið 26-30-34-38-38-38 l = 277-299-315-349-373-397 l. Ör-6: Aukið 16-24-32-34-34-34 l = 293-323-347-383-407-431 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 20-22-24-26-28-30 cm fyrir miðju að framan (meðtalinn kantur í garðaprjóni í hálsmáli). Næsta umf er prjónuð frá röngu með litnum ljós eik þannig: Prjónið 46-50-53-59-64-69 l eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 59-67-73-79-81-83 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóni (= í hlið), prjónið 83-89-95-107-117-127 l sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 59-67-73-79-81-83 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóninn (= í hlið) og prjónið þær 46-50-53-59-64-69 l sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónaðar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-205-221-245-269-293 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umf (= rétta) er aukið út um 0-2-2-2-2-2 l jafnt yfir JAFNFRAMT er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 6 l eru eftir í umf, prjónið fyrstu l í A.2 (svo að mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 191-207-223-247-271-295 l. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnt út í hverri umf merktri með ör í mynstri eins og útskýrt er frá að neðan – MUNIÐ EFTIR ÚTAUKNING! Ör-1: Aukið 12-10-10-6-6-6 l = 203-217-233-253-277-301 l. Ör-2: Aukið 18-18-16-10-14-18 l = 221-235-249-263-291-319 l. Ör-3: Aukið 14-14-14-14-14-14 l = 235-249-263-277-305-333 l. Ör-4: Aukið 8-10-12-14-18-14 l = 243-259-275-291-323-347 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós eik til loka. Þegar stykkið mælist 34 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl), skiptið yfir í hringprjóna nr 3. Prjónið 6 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð frá réttu), skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 4 og fellið LAUST af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: LESIÐ ALLAN KAFLANN UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM (útauknings umf í A.2 eiga ekki við um ermi)! Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið 59-67-73-79-81-83 l af þræði í annarri hliðinni á stykki á stutta hringprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 67-75-83-89-93-97 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og 1 prjónamerki í miðju-l í umf (= miðja ofan á ermi). Prjónið mynstur í hring eftir A.2, en í hvorum kant með mynsturbekk sem er prjónaður, er mynstrið talið út með byrjun frá miðju-l í mynstri (sjá ör í mynstrið – miðju-l í mynstri á að passa með l með prjónamerki í mitt ofan á ermi). ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi – prjónið eins mikið mynstur eins og mögulegt er, en 4 miðju-l undir ermi eru alltaf prjónaðar með litnum ljós eik. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona alls 13-16-19-21-22-23 sinnum: Í stærð S: Í 8. hverri umf, í stærð M: Í 6. hverri umf, í stærð L: Í 5. hverri umf, í stærð XL: Í 4. hverri umf, í stærð XXL + XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverja umf = 41-43-45-47-49-51 l. Þegar prjónað hefur verið að ör með punkti merkt í A.2 er mynstrið prjónað í hring eftir A.3 alveg eins. Eftir A.3 er prjónað með sléttprjóni með ljós eik þar til ermin mælist 42-40-39-38-36-35 cm frá skiptingu undir ermi (eða að óskaðri lengd). Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 3 og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna nr 4 og fellið LAUST af með sl. Ermin mælist ca 44-42-41-40-38-37 cm frá skiptingu undir ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candylanecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.