Claude Caron skrifaði:
Pour le tour de cou, J’ai fait une petite erreur dans mon précédent courriel, J’ai bien monté 266 mailles et tricoter 2 mailles end.et 5 mailles env. (Il y a un 2 de trop dans mon précédent message)
11.01.2025 - 19:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Caron, pensez à bien vérifier vos côtes au 1er tour, car vous devez avoir 38 fois au total (2 m end, 5 m env) soit 38x7=266. Bon tricot!
13.01.2025 - 11:15
Claude Caron skrifaði:
Bonjour! Je suis à faire le tour de cou, j’ai bien 266 mailles et,2 tricoter 2 mailles end.5 mailles env. J’ai bien vérifié mais,j’ai une maille de trop à la fin du rang, Le montage devrait être 265 mailles?
11.01.2025 - 19:26
Marie skrifaði:
Hei, har dere oppskrift på lua? 😊 Supert sett å strikke!
29.03.2021 - 19:57DROPS Design svaraði:
Hei Marie, Hvis du søker etter Mariuska, mønster nr. u-774, får du oppskrift for både genser og lue i Moon Valley mønster. God fornøyelse!
30.03.2021 - 07:56
Louise Henrie skrifaði:
Hi, on the wrist warmers, I just realized I probably misunderstood what you mean by "worked from the top down". I was hoping this meant from fingers to wrist, but I guess I'm doing it upside down, thumb gusset and measurements don't make sense that way.
23.12.2020 - 14:54DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Henrie, you are right, these wrist warmers are worked from the wrist towards the edge round fingers. Happy knitting!
04.01.2021 - 07:25
Margarita skrifaði:
Hola, no entiendo muy bien para hacer el dedo del miton, entiendo que voy aumentando a los dos lados del tejido y despues es por donde se cose todo el miton, es asi. Gracias
28.11.2020 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hola Margarita, el mitón se trabaja en redondo, no hay costuras. Los aumentos se hacen antes de trabajar el pulgar para adaptarlo a la forma de la mano.
29.11.2020 - 18:59
Louise skrifaði:
Skal det økes for tommel kile i mønsteret ?
03.08.2020 - 08:01
Dan skrifaði:
Love this brilliant cosy set. I made it on my Brother standard-gauge knitting machine by splitting it in two. Used your Drops Merino yarn in same fab colours and it looks super cool. Love your round-neck Fair Isle designs, but can't do them on my knitting machine as I have 200 sts max. Might try and have a go at doing a yoke sideways and stitching it to the rest afterwards :-) such fun!
11.10.2019 - 15:24
Elena skrifaði:
Negli scalda polsi, mentre lavoro il diagramma A2, quando cambio colore dopo aver fatto, ad esempio, due giri con il colore rosa argento e poi passo ad un altro colore, come faccio a non lasciare un “buco” nel lavoro tra la prima e l’ultima maglia del giro? Grazie, Elena
15.11.2018 - 12:38
Mette Bülow skrifaði:
Förstår inte riktigt att man skall ta ut 28 maskar innan man stickar resår i halsen. Det har blivit ganska löst i halsen. Jag undrar också hur man får den att ligga så där fint runt. Min kryper uppåt så mönstret nästan ligger runt halsen :) Mvh Mette
22.12.2016 - 19:51DROPS Design svaraði:
Hej Mette, Jo men man måste öka först, då resåren drar ihop arbetet. Lycka till!
16.03.2017 - 11:16
Sandra Martins skrifaði:
Hi there, is there also a pattern for the beanie hat? Thanks, Sandra
29.06.2016 - 19:46DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, you can find the hat pattern in DROPS 165-23. Happy knitting!!
29.06.2016 - 21:31
Moon Valley Set |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu hálsskjóli og handstúkum úr DROPS Karisma með norrænu mynstri.
DROPS Extra 0-1264 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 266-294 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum gallabuxnablár DROPS Karisma og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 5 l br). Eftir 2-3 cm er öllum 5 l br fækkað í 4 l br með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman = 228-252 l. Þegar stroffið mælist 4-5 cm er öllum 4 l br fækkað í 3 l br með því að prjóna 2 síðustu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman = 190-210 l. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri brugðinni mynstureiningu þegar stroffið mælist 6-8 cm = 152-168 l. Haldið áfram með stroff með 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 8-10 cm. Prjónið 1 umf sl með litnum gallabuxnablár þegar fækkað er um 40-48 l jafnt yfir = 112-120 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 er lokið mælist hálsskjólið ca 14-16 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt með litnum gallabuxnablár þegar aukið er út um 28-24 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-144 l. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 8-10 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Hálsskjólið mælist ca 22-26 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og er prjónað ofan frá og niður. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 52 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum gallabuxnablár DROPS Karisma og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 48 l. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2. Eftir A.2 er prjónað áfram með litnum gallabuxnablár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm byrjar útaukning fyrir opi fyrir þumal og aukið er út um 1 l hvoru megin við 2. l í umf – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 5 sinnum – ATH: Aukið er út hvoru megin við allar útauknar lykkjur fyrir opi fyrir þumal, þ.e.a.s. það verða 2 l fleiri á milli uppslátta í hverri útaukningu = 11 l fyrir þumalopi og 58 l alls. Þegar stykkið mælist 14 cm eru 11 þumalfingurs-l settar á þráð og fitjuð er upp 1 ný l yfir l á þræði = 48 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni í litnum gallabuxnablár og fækkið jafnframt um 4 l jafnt yfir í 1. umf = 44 l. Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3. Eftir A.3 eru prjónaðar 2 umf slétt með gallabuxnablár – fækkið jafnframt um 4 l jafnt yfir í síðustu umf = 40 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 19 cm. ÞUMALL: Setjið 11 l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið að auki upp 1 l aftan við þumal með litnum gallabuxnablár = 12 l. Prjónið 4 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br) og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRI HANDSTÚKA: Prjónið á sama hátt og hægri, nema spegilmynd, þ.e.a.s. aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu l í umf (í stað hvoru megin við aðra l í umf). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1264
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.