Ingunn Fjæreide skrifaði:
Jeg har begynt på vesten og heklet mønster diag A.1 til A.3. Vesten måler nå 18 cm. På bildet ser det ut som jeg skal hekle hele A.1 til A.3 to ganger. Stemmer det?
12.11.2020 - 15:38DROPS Design svaraði:
Hei Ingunn, Ja, det er riktig. God fornøyelse!
18.11.2020 - 10:39
Sharin skrifaði:
Ik haak dit vest maat S. Graag advies zodat ik goed verder kan met dit vest. Patroon vest wordt gehaakt vanaf links-voor naar rechts-voor. Moet je na afloop nog een bies eraan haken? Ik neem aan dat vest linksvoor en rechtsvoor gelijk zijn? Ik begrijp dan niet dat je bij het begin ‘haak 1 stk in 5e losse vanaf de haak’ Op het eind van de toer heb ik dan 6 stokjes. Of wordt dat vanaf 2e toer weer gelijk getrokken door met 4 losse te beginnen?
05.09.2020 - 13:43DROPS Design svaraði:
Dag Sharin,
Nee je haakt geen bies meer langs de voorpanden, alleen langs de onderkant. De linker en rechter voorpanden zijn gelijk; dit komt inderdaad vanzelf goed op de volende toer(en) (Je hebt langs de voorbiezen steeds 4 dubbele stokjes naast elkaar.
11.09.2020 - 13:28
Mathilde skrifaði:
Hi. Im so confused. Right front piece. On next row dec 1 ch-space for armhole . Repeat dec 0-1-2-2) more times = 1-2-3-3 ch-spaces dec in total for armhole. Does it mean that i have to dec 3 times in one row?
21.08.2020 - 09:28DROPS Design svaraði:
Dear Mathilde, the decreases for armholes will be worked over 3 rows (next to last and last size), ie you decrease as explained under DECRASE TIP CH-SPACES a total of 3 times = 1 ch-space decrease on each row a total of 3 times = 3 ch-spaces decreased. Happy crocheting!
21.08.2020 - 10:14
Kathy E skrifaði:
Hej Jag virkar denna i, stl L nu ska jag börja med höger framst. Har totalt 161 st. A4 ska vara 12 m sen ska jag virka A5 21*7 vilket blir 147 m sen står det att jag ska virka A6 på de sista 6 m men det blir mer än de 161 m jag har. Det blir 165 m. Vad jag jag för fel?
13.08.2020 - 21:41DROPS Design svaraði:
Hej Kathy. Arbetet delas nu i 2 framstycken och ett bakstycke. 39 stolpar blir höger framstycke. Du virkar nu rad 2 av diagrammen (rad 1 är redan virkat/förklarat i mönster): A4 över de första 12 stolparna, A.5 över de nästa 21 stolparna (dvs 3 stolpar x 7 rapporter A.5), A.6 över de nästa 6 stolparna. När detta är gjort ska du ha 11 lm-bågar på första varvet av framstycket. Lycka till!
14.08.2020 - 08:29
Marie Palmhag skrifaði:
Hej! Jag tragglade med det här mönstret och förstod ingenting tills jag hittade videon på hur man virkar diagram A1-A3. Nu ska jag börja på höger framstycke st S och förstår ingenting. Snälla, gör en video på det?
16.06.2020 - 21:01DROPS Design svaraði:
Hej Marie. Vi skriver upp det på listan över önskemål på videor. Har du sett denna lektion om hur man läser ett virkdiagram? Den kan nog vara till hjälp. Mvh DROPS Design
17.06.2020 - 13:20
Barbara skrifaði:
Hi, I’m wondering if in A1-A3 row 3 all tr should be replaced by dtr because of the symmetry, so it would be similar to row 8 ? Thanks!
20.04.2020 - 12:59DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, on row 3 you work treble (US-English) and on row 8 double trebles (US-English) just as shown in the video. Happy crocheting!
20.04.2020 - 13:56
Ilona skrifaði:
Ik ben begonnen met met large met de Belle wol en haaknaald 4,5 zoals aangegeven. Maar de afmeting wordt dan met xxxl. Dus uitgehaald en de small maat genomen. Ik denk dat ik waarschijnlijk los haak. Zelfs bij de small maat wordt de breedte aan de onderkant 66 cm. Deze afmeting hoort bij maat XL . Aan het begin stuk onderaan ben ik al bijna één bol kwijt. Red ik het dan wel met 8 bollen?
11.04.2020 - 14:52DROPS Design svaraði:
Dag Ilona,
Het beste is om even een proeflapje te maken en dan kijken of je de juiste stekenverhouding hebt. Pas de haaknaald aan totdat je de stekenverhouding hebt zoals aangegeven in het patroon. Op die manier kun je gewoon het patroon in jouw maat volgen.
13.04.2020 - 10:18
Dinie Bouman skrifaði:
Volgens mij klopt er nog iets niet in het patroon, er staat dat je moet minderen voor de armsgaten bij het rechtervoorpand, als je dat doet volgens de beschrijving ziet het er raar uit eerst minderen voor de hals en dan pas de armsgaten, volgens mij moet je alleen minderen voor de hals. en als je die minderingen hebt gehad, dan haken volgens patroon tot je de juiste hoogte hebt gehad.
13.08.2019 - 15:23
Tina Comeaux skrifaði:
This is a comment because I am too confused to ask a question! This is a beautiful vest! I would love to make this for my beautiful niece, but it isn't going to happen! I have been crocheting by pattern for 35 + years and I have yet to find a pattern I can't figure out, I am totally defeated on this pattern. If someone else can figure it out I am so happy for them. I am not the one.
05.08.2019 - 22:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Comeaux, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!
08.08.2019 - 10:33
Marianne skrifaði:
Goedemorgen, Ik begrijp het begin van het patroon niet. Op de foto lijkt het heel anders dan de beschrijving doet vermoeden. Kunt u het aan me uitleggen? Vriendelijke groet, Marianne
06.06.2019 - 09:43DROPS Design svaraði:
Dag Marianne,
Het vest heeft inderdaad onderaan een netpatroon, terwijl je met stokjes begint te haken. Dit netpatroon haak je aan het einde onderaan het vest, zoals beschreven bij RAND LANGS DE ONDERKANT.
06.06.2019 - 21:05
Summer Bliss Vest#summerblissvestvest |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Belle með a-formi, gatamynstri og snúru. Stærð S-XXXL.
DROPS 167-19 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 4 ll. Í hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 5 ll. Í hverri umf með 3-tbst er fyrsta 3-tbst skipt út fyrir 6 ll. Í hverri umf með fl byrjar umf á 1 ll. Ll kemur ekki í stað fyrstu fl. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ÚRTAKA LL-BOGAR: Fækkið um 1 ll-boga í byrjun á umf séð frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta ll-bogann, heklið 1 st um næsta ll-boga. Í næstu umf er hoppað yfir síðasta ll-bogann séð frá röngu (= fyrsti ll-boginn séð frá réttu). Fækkið um 1 ll-boga í lok umf séð frá réttu þannig: Heklið þar til 1 ll-bogi er eftir, 2 ll, hoppið yfir síðasta ll-boga, heklið 1 l í hverja af þeim l sem eftir eru. Í næstu umf er hoppað yfir fyrsta ll-boga, heklið 2 ll og 1 st um næsta ll-boga séð frá röngu (= síðasti ll-boginn séð frá réttu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. Síðan er stykkinu skipt upp við handveg og haldið er áfram með bakstykki og framstykki hvort fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur neðst niðri með netamynstri. VESTI: Heklið 197-206-225-244-272-290 lausar ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með Belle. Snúið við og heklið þannig: Heklið 1 st í 5. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 st í hverja af næstu 3-5-3-1-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 26-27-30-33-37-39 sinnum til viðbótar = 166-174-190-206-230-246 st og 4 ll til að snúa við með – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm. Heklið nú mynstur frá umf 2 í mynstri frá réttu þannig: Heklið A.1 (= 8 st), heklið síðan A.2 (= 8 st) 19-20-22-24-27-29 sinnum á breiddina, A.3 (= 7 st). Í síðustu umf í mynstri A.1 til A.3 er fækkað um 32 st jafnt yfir í öllum stærðum – LESIÐ ÚRTAKA = 135-143-159-175-199-215 st. Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 25-25-26-26-27-27 cm á hæðina. Heklið síðan mynstur frá umf 2 í A.1, A.2 og A.3 eins og áður (en nú eru heklaðar 15-16-18-20-23-25 mynstureiningar af A.2 á breiddina). Endið á undan 2 síðustu umf í mynstri A.1 til A.3. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og lykkjufjöldinn er jafnaður til 136-140-161-173-197-210 st. Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nú er stykkinu skipt í 2 framstykki og eitt bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið fyrstu umf þannig: A.4 yfir fyrstu 12 st, heklið síðan A.5 yfir næstu 15-15-21-24-30-33 st (= 5-5-7-8-10-11 mynstureiningar á breiddina), A.6 yfir næstu 6 st = 9-9-11-12-14-15 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú áfram eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan: Stærð S og M: Haldið áfram fram og til baka þar til umf 4 í A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina. ATH: umf 2 og 3 í A.5 og A.6 eru endurteknar jafnóðum á hæðina. Nú hefur fækkað um 2 ll-boga fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan í báðum stærðum. Endurtaki síðan umf 3 og 4 í mynstri A.4 3-3 sinnum til viðbótar á hæðina = alls 5-5 ll-bogar færri í hálsmáli fyrir miðju að framan og það eru 4-4 ll-bogar (með 2 ll) eftir fyrir öxl. Stykkið mælist ca 13-13 cm. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram fram og til baka með ll-bogum, JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um ll-boga fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og fækkað er um ll-boga fyrir handveg þannig: ÚRTAKA HANDVEGUR: Í næstu umf er fækkað um 1 ll-boga fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar = alls 1-2-3-3 ll-bogar færri fyrir handveg. ÚRTAKA HÁLSMÁL: Þegar umf 4 í A.4 hefur verið heklað til loka og fækkað um 2 ll-boga í stærð L, XL, XXL og XXXL. Endurtakið síðan úrtöku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. umf 3 og 4 í A.4) 3-3-3-4 sinnum til viðbótar = alls 6-6-6-7 ll-bogar færri í hálsmáli. ALLAR STÆRÐIR: Haldið síðan áfram með ll-boga eins og áður, en nú er umf 5 og 6 heklaðar í A.4 við hálsmál jafnóðum þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. BAKSTYKKI: Byrjið við handveg á hægra framstykki og hoppið yfir 4-6-6-6-6-8 st fyrir handveg. Heklið A.7 (= 8 st), A.5 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.6 (= 6 st) = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan: Stærð S og M: Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.5 til A.7 þar til stykkið mælist 14-15 cm – passið uppá að næsta umf sé hekluð eins og umf 3! Stærð L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.5 til A.7, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg í hvorri hlið innan við 3 l – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. ATH: Heklið nú 3 tbst í stað 3 st í hvorri hlið í umf þar sem úrtakan er (þetta er gert svo að kantarnir verði ekki of stífir!). Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 1-2-3-3-3 úrtökur í hvorri hlið) = 20-20-22-23 ll-bogar eftir. Haldið nú áfram með ll-boga eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í mynstri A.5 til A.7 þar til stykkið mælist 16-17-18-19 cm – passið uppá að næsta umf sem er hekluð sé eins og umf 3. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan í öllum stærðum: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-4-4-5-5 heilir ll-bogar (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24-26-26-26-28 st jafnt yfir næstu 10-10-11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26-28-28-28-30 st eftir hverjum öðrum fyrir miðju á bakstykki. Heklið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir fyrir öxl. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg á sama hátt nema spegilmynd: Byrjið við handveg og heklið 1 st í hvern af ystu 3 st, heklið síðan ll-boga eins og áður yfir de 4-4-4-4-5-5 ll-boga og 1 st í hvern af næstu 3 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið við handveg á bakstykki og hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg. Heklið A.7 (= 8 st), A.5 (= 3 st) 4-4-6-7-9-10 sinnum á breiddina, endið með A.8 (= 13 st). Haldið svona áfram fram og til baka eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Stillið af eftir hægra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma. Saumið l eina og eina fallega saman og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Klippið frá og festið enda. KANTUR NEÐST NIÐRI: Heklið nú kant neðst niðri á vestinu: UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fl og 3 ll í fyrstu ll sem var hekluð í byrjun á stykki, heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll (= kantur að framan), heklið síðan * 2 ll, hoppið yfir ca 1½ cm, heklið 1 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum þar til ca 1½ er eftir á undan síðustu 4 ll í umf, heklið 2 ll og endið með 1 st í hverja af síðustu 4 ll. Nú eru ca 66-69-76-83-93-99 ll-bogar og 4 st að kanti að framan í hvorri hlið – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 st, heklið 1 ll, 1 st um næsta ll-boga, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga * í hvern ll-boga í umf og endið með 1 ll og 1 st í hvern af 4 st að kanti við kant að framan. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern af 4 fyrstu st, heklið 2 ll, hoppið yfir 1 l og 1 st, * 1 st um næsta ll-boga, 2 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir með 2 ll, heklið 1 st um þennan ll-boga, 2 ll og endið með 1 st í hvern af 4 st við kant að framan. Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm (mælt frá öxl) eða að óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda. SNÚRA MEÐ KÖGRI: Klippið 2 þræði ca 90 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í. Þræðið inn annan endann í gegnum síðustu st-umferðina sem hekluð var áður en stykkinu var skipt í framstykki og bakstykki og leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann sem hangir laus. Endurtakið á hinni hliðinni. Gerið síðan dúsk á endann á hvorri snúru: Klippið 14 þræði ca 24 cm, þræðið í gegnum endann á snúrunni og skiptið endunum þannig að þeir verði jafnir. Vefjið þráð nokkrum sinnum í kringum dúskinn ca 1 cm frá topp, þá myndast fallegt höfuð efst, og festið endann. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerblissvestvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.