DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 167-18
DROPS Design: Mynstur nr vs-020
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 g nr 03, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 8 umf verði 10 x 10 cm, eða 1 mynstureining af A.2 verði 5 cm á breidd. ATH: 1 ll-bogi = 1 st + 2 ll á að mælast 1½ cm á breiddina – passið uppá að hekla ll ekki of fast!

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 4 ll. Umf endar á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

ÚRTAKA LL-BOGAR:
Fækkið um 1 ll-boga í byrjun á umf séð frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta ll-bogann, heklið 1 st um næsta ll-boga. Í næstu umf er hoppað yfir síðasta ll-bogann séð frá röngu (= fyrsti ll-boginn séð frá réttu).

Fækkið um 1 ll-boga í lok umf séð frá réttu þannig: Heklið þar til 1 ll-bogi er eftir, 2 ll, hoppið yfir síðasta ll-bogann, heklið 1 l í hverja af þeim l sem eftir eru. Í næstu umf er hoppað yfir fyrsta ll-bogann, heklið 2 ll og 1 st um næsta ll-boga séð frá röngu (= síðasti ll-boginn séð frá réttu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp, síðan er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki og heklað er fram og til baka upp yfir öxl. Að lokum er heklaður kantur neðst niðri með netmynstri. Byrjun umf = í hægri hlið.

TUNIKA:
Heklið 195-205-223-242-270-289 lausar ll með heklunál nr 4,5 með Belle og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið 4 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 6-2-6-4-4-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 26-28-30-33-37-40 sinnum til viðbótar = 168-176-192-208-232-248 st + 4 ll í byrjun umf. Haldið síðan áfram hringinn með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú mynstur frá 2. umf í mynstri A.1 (= 8 st) 21-22-24-26-29-31 sinnum í umf. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Í síðustu umf í mynstri er fækkað um 32 st jafnt yfir í öllum stærðum – LESIÐ ÚRTAKA = 136-144-160-176-200-216 st + þær 4 ll í byrjun umf. Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 25-25-26-26-27-27 cm á hæðina. Heklið síðan A.1 eins og áður í umf 2 í mynstri nema nú eru heklaðar 17-18-20-22-25-27 mynstureiningar í umf. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Endið á undan 2 síðustu umf í mynstri A.1. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og lykkjufjöldinn er jafnaður til 132-136-154-166-190-198 st. Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nú skiptist stykkið upp í 2 hluta, í fram- og bakstykki.

BAKSTYKKI:
Hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg, heklið A.3 (= 8 st), A.4 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.5 (= 6 st) = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan:

Stærð S og M:
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.3 til A.5 þar til stykkið mælist 14-15 cm – passið uppá að næsta umf sé hekluð eins og umf 3!

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.3 til A.5, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg á hvorri hlið innan við 3 l – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. ATH: Heklið nú 3 tbst í stað 3 st í hvorri hlið í umf þar sem úrtakan er (þetta er gert svo að kantarnir verði ekki of stífir!). Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 1-2-3-3-3 úrtökur í hvorri hlið) = 20-20-22-23 ll-bogar eftir. Haldið nú áfram með ll-bogum eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í mynstri A.3 til A.5 þar til stykkið mælist 16-17-18-19 cm – passið uppá að næsta umf sem er hekluð sé eins og umf 3.

Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan í öllum stærðum:
Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24-26-26-26-28 st jafnt yfir næstu 10-10-11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26-28-28-28-30 st eftir hverjum öðrum fyrir miðju á bakstykki.
Heklið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir fyrir öxl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd: Byrjið við handveg og heklið 1 st í hvern af ystu 3 st, heklið síðan ll-boga eins og áður yfir de 4-4-4-4-5-5 ll-boga og 1 st í hvern af næstu 3 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg. Heklið A.3 (= 8 st), A.4 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.5 = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf og það eru 4-6-6-6-6-7 st eftir fram að byrjun á bakstykki. Heklið síðan eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan:

Stærð S og M:
Haldið áfram fram og til baka með umf 2 og 3 í A.3 til A.5 þar til heklaðar hafa verið 5 umf í báðum stærðum. Nú er heklað þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4 heilir ll-bogar (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24 st jafnt yfir næstu 10-10 ll-boga, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26 st fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan.

Stærð l, XL, XXL, XXXL:
Haldið áfram fram og til baka með umf 2 og 3 í A.3 til A.5, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki og þegar heklaðar hafa verið 5 umf með ll-bogum eru heklaðir st fyrir hálsmáli fyrir miðju á framstykki þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-5-5 heilir ll-bogar (þ.e.a.s ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st. Heklið síðan 26-26-26-28 st jaftn yfir næstu 11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 28-28-28-30 st fyrir hálsmáli fyrir miðju á framstykki.

Haldið nú áfram eins og útskýrt er frá að neðan í öllum stærðum:
Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið ll-boga eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og haldið svona áfram með ll-boga og 3 st í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina öxlina á sama hátt nema spegilmynd: Þ.e.a.s. byrjið við handveg!

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma. Saumið l eina og eina fallega saman og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST:
Heklið nú kant neðst á stykki þannig:
UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fl og 3 ll í byrjun umf. * 2 ll, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 st *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf en endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = ca 71-73-80-87-97-104 lm-bogar í umf.
UMFERÐ 2: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. Heklið nú þannig: Heklið 3 ll, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Endurtakið síðan umf 2 þar til stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm (mælt frá öxl) eða óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.03.2016
Mynstur A.1 - breyting í 4 umf og 9 umf. Það eiga að vera: fl í l, ekki fl um l

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 4 ll
symbols = 1 fl um l
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 st í l
symbols = 1 st um ll/ll-bogi
symbols = 1 þbst
symbols = Heklið 2 þbst í 1 st þannig: Heklið 1 þbst en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni). Heklið 1 þbst til viðbótar í sömu l, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift
symbols = heklið í þessa l
symbols = umferðin byrjar á 4 ll og endar með 1 kl í 4. ll frá byrjun umf
symbols = umferðin byrjar á 5 ll og endar með 1 kl í 5. ll frá byrjun umf
symbols = umferðin byrjar á 1 ll og endar með 1 kl í 1. ll í umf
symbols = heklstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Inge Umans wrote:

In afwachting van het antwoord op mijn eerdere vraag begin ik vast aan het voorpand. Daar moet ik wel aan weerszijden 6 steken overslaan voor de armsgaten. Dit bekent toch dat het ene armsgaten uit 12 en de andere uit 6 steken bestaat? Kunt u dit uitleggen?

03.06.2023 - 16:39

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Bij het voorpand staat dat je 4-6-6-6-6-7 steken over slaat voor het armsgat en dat je aan het eind ook weer 4-6-6-6-6-7 steken over houdt aan het begin van het achterpand.

04.06.2023 - 10:35

country flag Inge Umans wrote:

Goedenavond, Ik heb een probleem met het achterpand. Ik heb een soort net gehaakt en begrijp niet hoe ik verder moet bij de schouders: Wat zijn: 4 hele l-lussen (dus l-lussen met 2 l), Hoe kom ik vanaf de 3 buitenste stokjes in het midden van het rugpand uit? Bedankt, Inge

30.05.2023 - 19:19

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Onder hele lossenlussen worden lussen met 2 lossen verstaan. Je kunt de draad afknippen en opnieuw beginnen op de volgende toer door aan te hechten. Een andere manier is halve vasten te haken over de eerste steken tot je bij de steek bent waar je moet beginnen.

04.06.2023 - 10:42

country flag Gina wrote:

Jag får inte början och slutet på varven i diagram 1att stämma med resten av varvet, det ser inte likadant ut. Tex varv3 , när jag har virkat varvet klart så tänker jag att de första 5 lm ska bilda en del av den sista blomman men det gör det ju inte utan för mig blir det som så att från den sista blomman är det ett mellanrum där två stolpar från föregående varv är överhoppade innan de fem första lm som varvet började med bildar en egen enhet eller hur jag ska uttrycka mig?

16.05.2023 - 07:58

DROPS Design answered:

Hej Gina, du vil få rækker med luftmasker i højden i den ene side, for at komme op på næste varv :)

17.05.2023 - 08:46

country flag Gina wrote:

Redan på varv 2 i diagram A1 krånglar det till sig. Ska inte början och slutet på varven smälta in i mönstret på varvet? Alltså att det slutar med en luftmaska innan smygmaskan i fjärde luftmaskan? Enligt diagrammet slutar jag med en stolpe och sedan smygmaskan. En annan fråga är om det går att översätta alla frågor och kommentarer som kommit in på mönstret?

14.05.2023 - 23:25

DROPS Design answered:

Hej Gina, du skal afslutte varvet for at kunne hoppe op til næste varv, se videoen som er lavet til denne tunika nederst i opskriften. Nej du kan ikke oversætte på vores side, i så fald må du copy/paste ind i et oversættelsesprogram :)

17.05.2023 - 07:59

country flag Anne Louise Svendsen wrote:

Jeg er i tvivl om, hvor mange masker jeg skal have. For størrelse S står der når ringen er dannet og man har sprunget nogle af luftmaskerne over, at der skal være 168+4lm i starten af omg. Vil det sige at der skal være 168 masker? Eller 168 masker samt en ekstra maske fra de 4lm?

05.04.2023 - 09:00

DROPS Design answered:

Hej Anne Louise, diagrammet hækles over 168 masker, så lm er til at komme op på næste række :)

13.04.2023 - 12:17

country flag Mariann Arntsen wrote:

Hei. Jeg ønsker å hekle vs-020. Men beklager å måtte si det men oppskriften er helt gresk for meg og jeg ser på meg selv som en habil hekler. Hvordan leser jeg tallene? Skal hekle den i xxl. Hvordan leser jeg meg frem til hvor mange masker jeg skal legge opp, hvordan hekler jeg hver enkelt rad?

31.08.2022 - 21:39

country flag Christiane Althoff wrote:

Hallo liebes Drops Team. Ich habe ein Problem mit den Abnahme rückenteil in Größe L. Es sind 22 Luftmaschenbögen, es soll beidseits 3 x abgenommen werden (Armausschnitt) trotzdem sollen es anm Ende der Abnahme weiterhin 22 Luftmaschenbögen sein. Das will mir nicht klar werden. VG Christiane Althoff

12.07.2022 - 06:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Althoff, also wenn alle Abnahmen gehäkelt sind, haben Sie noch nur 20 Luftmaschenbogen übrig: u>Größe L, XL, XXL und XXXL: Weiter im Muster wie in der 2. und 3. R von A.3 bis A.5 gezeigt häkeln, GLEICHZEITIG in der nächsten R beidseitig für die Armausschnitte neben 3 M abnehmen - .../... Diese Abnahmen noch weitere 0-1-2-2 x wdh (= insgesamt 1-2-3-3 Abnahmen beidseitig) = 20-20-22-23 Lm-Bögen übrig. : Sie nehmen nur 1 Mal ab in L = erste Größe in diesem Absatz = 20 Lm-Bögen übrig. Viel Spaß beim häkeln!

12.07.2022 - 08:58

country flag Shelley wrote:

I’m having a great deal of difficulty parsing the pattern instructions after the first row of the back. Which stitches are we supposed to decrease? The three trebles? 3 spaces? Is it 3 on each side or just 3 at the beginning of each row? The wording in English is quite unclear to me (I imagine that when I get it, I’ll get it)

02.07.2022 - 23:40

DROPS Design answered:

Dear Shelley, you will decrease (size L - XXXL only) as explained under DECREASE TIP CH-SPACES:, you will decrease 1-ch-space a total of 1-2-3-3 times, at the same time, crochet 3 double treble crochets instead 3 treble crochets on each side when decreasing. Happy crocheting!

04.07.2022 - 08:07

country flag Linda wrote:

Im starting the back and have read your answers to other questions about row 1 of the back, but i still dont understand. I dont see any chain spaces (A3, A4, A5) on the 1st row, its all dc across (68 sts). I see chain spaces in 2nd row. Am i seeing this right? Someone else had asked the same question and your answer didnt make any sense to me. Am i to start with the 2nd row or the 1st? And what is the "star"? it say it is explained in pattern but i didnt see it, i guess

09.09.2021 - 10:18

DROPS Design answered:

Dear Linda, the star in A.3-A.4-A.5 shows the previous row, so that you know how to crochet the first row in these diagram. When working the diagrams, just start with A.3 (skipping the number of sts for your size), repeat A.4 and finish with A.5 (leaving unworked the number of sts for your size). Then read 2nd row from wrong side, ie from the left towards the right: A.5, repeat A.4 (read from the left towards the right), A.3. Happy crocheting!

09.09.2021 - 17:12

country flag Silvia wrote:

At the end of the first part of the work I have 136 st’s, therefore, when dividing the piece in two, I have 68 st’s left for the back and 68 for the front. If I add up the st’s from graphs: A3(8 st’s)+ A4 (3 st’s 16 times=48 st’s )+A5(6 st’s ) gives me 62 st’s + the 6 st’s without working from the beginning and the other 6 from the end , they make a total of 74 st’s. I am missing 6 st’s. Am I doing the wrong accounts?

21.08.2021 - 18:13

DROPS Design answered:

Dear Silvia, you are not supposed to skip 6 sts at the end of the row, you have to work the 68 sts (= half of piece as follows): skip 6 sts, work A.3 (= 8 sts), A.5 -(= 8 sts x 16) and A.5 (= 6 sts) - it remains 68 sts at the end the the round, these will be for front piece, where you will start skipping the first 6 sts, this means these 6 sts will be on each side for armholes. Happy crocheting!

23.08.2021 - 07:24